hæ sæta fjölskylda ,hann er yndislegur og ég fékk nú alveg tár í augun að horfa á myndbandið ,,vona að fréttirnar verði ykkur góðar knús á ykkur,,,kveðja olga
Hæ Litla fjölskylda
Hann er yndislegur hann Keran og alveg ótrúlega duglegur.
Kíki hér inn oft á dag í von um góðar fréttir.
Æðislegt að sjá hvað Keran er duglegur að hreyfa sig í baðinu, vona svo heitt að þetta sé upphafið að góðum bata.
Gefið honum knús frá mér
-Iris-
Langaði bara að segja að það er yndislegt að sjá myndbandið af litla prinsinum ykkar. Vonandi er þetta upphafið að bata hans. Þið eruð í bænum mínum.
Hæ Sigrún og Keran.Þið voruð ekki allveg ein í dag.Óskar afi kom og Steini langafi.Einnig komu langafi og langamma úr Garðabæ.Svo á morgun kemur Óskar afi og lærir á fleyri tæki og björgunar æfingar.Sjáumst hress og Guð geymi ykkur.
Duglegur og fallegur strákur þarna á ferð.
Gangi ykkur vel og hann er áfram í mínum bænum litli snáðinn.
Kveðja Jenný og fjölskylda
Mikið er drengurinn ykkar fallegur og duglegur. Ég fékk tár í augun við að sjá hann hreyfa sig í baðinu...vonandi kemur þetta allt með æfingu. Maður hefur heyrt um ótrúlegustu sögur af fólki sem aldrei átti að geta labbað, en með réttri æfingu og hugarfari hleypur það maraþon í dag.
Ég skoða síðuna hans Kerans á hverjum degi, og hugsa mikið til ykkar. Ég vona að duglegi strákurinn haldi áfram að vera svona duglegur, ég hef ekki trú á öðru með ykkur sem foreldra.
Kæ kveðja, Linda
Fallegur frændi sem ég á og rosalega duglegur í baðinu :) Vonandi á þetta allt eftir að ganga vel hjá ykkur. Mér sýnist þið vera að standa ykkur mjög vel í foreldrahlutverkinu. Bestu kveðjur Halla, Daníel og Þórhalla Guðný.
Gaman að sjá hvað hann Keran er duglegur að hreifa sig í vatninu og hann hefur dafnað vel
Dúna frænka
Hæ hædúllunar minar váhvað hann kerann er mikil dúlla flott hvernig hann hreifirsig i baðinu.
styrkur ogkveðjur að vestann
Elsku Sigrún mín og Óli. Innilega til hamingju með fallega prinsinn ykkar Keran Stueland. Guð veri með ykkur. Kveðja frá fjölskyldunni á Lækjamótum.
Vá flottar hreyfingar, maður veltir því fyrir sér hvaða niðurstöður þið fáið fyrst að hann getur hreyft sig svona.
Sendi mína bestu strauma.... Guð veri með ykkur!
Elsku litli snúllu dúlli, guð hvað það er gaman að sjá myndbandið af þér í baðinu og sá þig hreyfa hendur og fætur eins og ekkert sé! Þú ert algjör gullmoli.
Kveðja Hjördís frænka
Sæl elsku fjölskylda!
Mikið óskaplega eigið þið fallegan dreng og óhjákvæmilega er maður farin að koma hingað á hverjum degi að fylgjast með fréttum. Lenti sjálf með stelpuna mína strax inn á spítala eftir fæðingu þar sem hún var mjög veik og enginn vissi hvað var að, óvissan er svo erfið og erfitt að horfast í augu við það að þær vonir og draumar sem maður hafði fyrir barnið sitt væru hugsanlega brostnir. Það var líka svo erfitt að fara heim þar sem allt var tilbúið fyrir komu hennar nema hún var enn á spítalanum. Sagan okkar endaði vel en óvissutímabilið var verst.
Maður er svo hjálparlaus gagnvart aðstæðum og gjörsamlega valdalaus yfir þessum mikilvægu örlögum.
Ég veit það er verið að hugsa rosalega vel um drenginn ykkar en þið verðið að hugsa vel um ykkur og fá alla þá hjálp sem þið þurfið líka og ekki vera feimin að biðja um hana. Það skiptir miklu máli fyrir Keran að þið séuð í góðu lagi. Sérstaklega líka fyrir mömmuna þar sem það er ekki langt liðið frá fæðingu og allir hormónar á fullu.
Sendi ykkur alla þá strauma sem ég get og ég bið fyrir stráknum ykkar.
Elsku fjölskylda! Ég þekki ykkur ekki en ég fylltist þvílíkri aðdáun og ánægju þegar ég horfði á Keran í baðinu. Mikið óskaplega megið þið vera stolt af fallega drengnum ykkar. Megi guð og gæfa fylgja ykkur um ókomna tíð. Kveðja, Berglind
Mér fannst ég verða að kvitta fyrir innlitið. Ég kíki af og til á síðuna til að fylgjast með litlu hetjunni. Keran litli er rosalega fallegur drengur og þó ég þekki ykkur ekkert þá táraðist ég af gleði þegar ég horfði á mydbandið af honum í baði :)
Megi guð vaka yfir ykkur
Sæl öll, ég er ókunnug en hef fylgst með ykkur á blogginu hjá ömmunni Birnu. Langaði bara að senda ykkur baráttukveðjur og styrk . Litli drengurinn er alger hetja og svo fallegur. Augun hans eru svo falleg og árvökul, það er eins og hann viti meira... Gangi ykkur vel. Kveðja frá okkur mæðgum.
hæ kæra fjölskylda,ég er ókunnug.En vá hvað það var gaman að horfa á duglega strákinn í baði!!!'Eg hreinlega grét af gleði:').Þið verið áfram í mínum bænum.
Ég er hugfangin af litla drengnum ykkar. Takk fyrir að leyfa okkur hinum að fylgjast með honum. Gangi ykkur vel með hann.
Kv. Martha
halló halló fallegi strákur ekkert smá flott myndbandið af þér ekkert smá duglegur ;o) maður þarf nú að fara kíkja aftur á þig og mömmu og pabba náttla en við biðjum að heilsa ykkur og við biðjum fyrir þér litla gull.
Ég má til með að kvitta hér í gestabókina því ég er búin að fylgjast aðeins með ykkur þótt ég þekki ykkur ekki persónulega.
Ég kíki hingað reglulega og í hvert skipti vona ég svo heitt að lesa góðar fréttir af litla Keran!
Ég vona svo innilega að litli fallegi drengurinn ykkar nái fullri heilsu svo fljótt sem hægt er. Ég sendi ykkur mínar allra bestu og fallegustu hugsanir sem ég á til.
Kær kveðja,
Sólveig
Hugsa til ykkar oft á dag, þið eru svo miklar hetjur öll þrjú. Raunar allir sem eru í kringum ykkur. Gangi ykkur vel
Kveðja frá Fjólu og co.
Hamingjuóskir með drenginn og gangi ykkur vel.
Bestu kveðjur
Sigga Sveins. ( frá Innri-Múla)
Elsku Sigrún innilega til hamingju með Keran litla. Guð veri með ykkur. Kveðja Sandra Dögg (systir Brynju Dísa)
Rakst á slóðina ykkar í umræðu á barnalandi. Fékk smá sting í hjartað við lestur vefdagbókarinnar því ég var fyrir nokkrum árum með litlu stelpuna mína á vökudeild í öndurnarvél, með sondu og allar græjur. Vonandi verðið þið jafn heppin og við því ég fékk litlu stelpuna mína heim eftir mánuð.Óska ykkur alls hins besta og kem til með að fylgjast með síðunni.
Kveðja
Anna
Mátti til með að setja inn línu. Datt inn í umræðuna um litla snáðann og blogginu hennar Birnu. Kem hérna inn á hverjum degi til að skoða hvað er að frétta.
Krossa putta og bið þess að þið fáið góðar fréttir á föstudag og að litli maður fari að braggast.
kv. Kolbrún
Elskulega fjölskylda. Við biðjum og vonum allt það besta.Við kíkjum á síðuna ykkar á hverjum degi og þið eruð í öllum okkar bænum og við höldum í vonina að kraftaverkin gerist enn. Þið eruð svo dugleg. Sendum ykkur hlýja strauma og knús og kossa úr Keflavíkinni. Biðjum að heilsa öllum . Kv Þórey og co.
Ég skrifa ekki alltaf en ég kíki hingað á hverjum degi! Vonum bara að allt fari vel á föstudaginn!
Kveðja til ykkar!
Siggeir frændi og Arna Margrét.
Óskar frændi þinn var að tala um flotta frænda sinn í skólanum og leyfði mér að kíkja á síðuna þína.
Til hamingju með litla prinsinn ykkar, hann er algjört æði.
Hulda Björk, kennarinn Óskars
◄ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 ►