Fyrstu árin
Fæðingin
Ég fæddist þann 11. Janúar 2007 klukkan 3.00.
Fæðingin fór fram á Landspítalanum og Eva Laufey ljósmóðir tók á móti mér.
Viðstödd fæðinguna voru pabbi minn hann Diddi og Guðrún Hanna amma mín.
Hárið mitt var dökkt á litinn og augun blá
Þegar ég fæddist var ég 3490 grömm eða 14 merkur og 51 cm að lengd.
Fyrstu hríðir komu kl.7 um kvöldið og tók fæðingin um 8 klst.
Pabbi keyrði mömmu á spítalann.
Skírnin
Skírnin fór fram þann 11.mars 2007 í Hjallakirkju í Kópavogi.
Séra Sigfús Kristjánsson skírði mig nafninu Janus Breki .
Skírnarvottar voru ömmur mínar þær Iðunn og Guðrún Hanna
Veislan var haldin í sal Hjallakirkju og lukkaðist með eindæmum vel.
Ég vil taka það fram að ég er ekki hrifin af að vera í kjól og orgaði þess vegna allan tímann, rétt þagði á meðan það var sungið og byrjaði svo aftur alveg þangað til að ég var tekinn úr kjólnum.
Afmæli
Fyrsta afmælið mitt var þann 11.janúar árið 2008.
Veislan var haldin heima hjá mér á tveimur dögum.
Ég bauð 35 manns í afmælið.
Ég bauð upp á mexíkóska kjúklingasúpu í veislunni og marens í eftirrétt.
Kakan mín var skúffukaka og með 1 kerti.
Ég fékk fullt af skemmtiegu dóti, nýjan bíl, samlokusíma,smíðadót og margt fleira.
Jól
Fyrstu jólin voru þann 24.desember árið 2007.
Við héldum jólin heima hjá okkur í Engihjallanum og komu amma Iðunn, amma Una, afi Gestur og Ingibjörg til okkar.
Ég var rosa fínt klæddur í svörtum buxum, hvítri skyrtu með slaufu.
Ég fékk helling af dóti og fötum í jólagjöf,t.d.snjóþotu, trommur, bíla og margt fleira.
Aðal jólagjöfin var svona göngutæki sem Ingibjörg frænka gaf mér.
Jólaveinninn kom í heimsókn til okkar og ég var ekkert hræddur við hann. Fannst hann heldur skrítinn með allt þetta skegg.
Helstu viðburðir fyrstu árin
Fyrsta brosið var í kringum 4 vikna aldurinn.
Fyrsta hjalið tæplega 2 mánaða
Sat með stuðningi 11 vikna
Stóð upp sjálfur 7 mánaða
Sat án hjálpar ca.6 mánaða
Fyrsta tönnin kom í ljós 27.ágúst 2007
Stóð fyrst með stuðningi ca.7 mánaða
Stóð fyrst hjálparlaust ca.9 mánaða
Fyrsta orðið var afi,datt, takk, agú(öll dýr),pabbi
Fyrsta alvöru setningin var: hvað er þetta?(ka e etta)
Byrjaði að skríða ca.8 mánaða
Fyrstu sporin voru tekin 24.desember 2007
Hæð og þyngd
Við fæðingu var ég 51 cm og vó 3490 grömm.
Eins mánaðar var ég 56,5 cm og vó 4910 grömm.
2ja mánaða var ég 59 cm og vó 5390 grömm.
3ja mánaða var ég 61,8 cm og vó 6060 grömm.
5 mánaða var ég 66 cm og vó 6880 grömm.
6 mánaða var ég 68,2 cm og vó 7530 grömm.
8 mánaða var ég 71 cm og vó 8075 grömm.
10 mánaða var ég 73 cm og vó 8725 grömm.
12 mánaða var ég 76 cm og vó 9665 grömm.
18 mánaða var ég 80 cm og vó 11345 grömm.
Mataræði
Ég var á brjósti frekar stutt og hætti á brjósti þann 06.júlí 2007.
Daginn sem ég hætti á brjósti var ég 5 mánaða og 3 vikna.
Eftir að ég hætti fékk ég barnamauk og grauta að borða.
Uppáhalds maturinn minn fyrst um sinn var ALLT!
Ég byrjaði að borða fastan mat þann 11.júlí 2007 og vildi þá helst borða gular baunir.