Nöfnin okkar
Janus Breki
Janus er sennilega tökunafn úr dönsku, komið úr latínu Janus, sem var heiti á einum guði Rómverja. Hann var upphaflega guð ljóss og sólar en síðar sá guð sem réð gangi tímans og upphafi alls. Byrjun ársins var helguð honum og fyrsti mánuðurinn janúar, latínu januarius, nefndur eftir honum. Nýársdagur, kalendae Januariae, var aðalhátíð guðsins.
Nafnið er sama orð og breki "brot-sjór, blindsker", en einnig merkti það "eldur" í skáldamáli. Skylt braka, brak og brek.
Linda Mist
Í Þýskalandi er Linda talið stytting á kvenmannsnöfnum sem enda á -linda, -linde, t.d. Belinda, Sieglinde. Viðliðurinn -linda er myndaður af fornháþýska lýsingarorðinu lind "mjúkur". Á Englandi er Linda annaðhvort talið stytting á kvenmannsnafninu Belinda eða myndað fyrir áhrif frá spænska lýsingarorðinu linda "fögur". Linda þekkist sem kvenmannsnafn á Ítalíu og er þar einnig ýmist talið stytting eða myndað af lýsingarorðinu lindo "fagur; hreinn".
Mist er fornt valkyrjuheiti. Ein kona var skráð svo í þjóðskrá 1989. Uppruni er óviss. Giskað hefur verið á tengsl við sænsku sögnina mista, í dönsku miste "missa, tapa" og að nafnið merki þá "sú sem veldur missi".