

Halló, halló !!
Jæja þá er maður orðinn stóri bróðir og bara nett ánægður með það :-) Mér finnst hann krúttilegur og þegar ég er spurður hvort ég sé sætastur þá segi ég :" Litli bróðir er sætastur, ég er bestur í heimi". Það er ekki enn komið nafn á litla guttann en hann mun fá nafnið þann 14.feb. næstkomandi en þá verður haldin heljarinnar skírnarveisla.
Ég er orðinn 3ja ára ofurgutti og mér finnst ég alveg ægilega stór. Arnar Már "frændi" gaf mér mótorhjól um daginn. Alvöru racer, bara minni útgáfu, ég er alveg afskaplega sáttur við það. Hef reyndar ekki fengið að fara á það ennþá þar sem það á eftir að setja hjálparadekk á það og kaupa fyrir mig almennilegan hjálm.
Ég fékk fullt af fínu dóti í jólagjöf en við fjölskyldan héldum upp á jólin saman hérna heima ásamt ömmu Iðunni, Ingibjörgu, langömmu Unu og langafa Gesti. Við vorum að opna pakka til að verða 10 að mig minnir.
Ég fékk hlaupabólu á jóladag og var alveg doppóttur fram yfir áramót og náði örugglega að smita Karvel frænda þar sem hann fékk hlaupabólu fyrir stuttu. Ég veiktist reyndar ekkert og þessar bólur virtust ekkert angra mig.
Áramótin voru haldin heima hjá Hrefnu frænku og var alveg feikna fjör þar á bæ, við strákarnir skemmtum okkur alveg rosa vel og fór ég ekki að sofa fyrr en kl.2 um nóttina. Pabbi minn náði að slasa sig á hendinni og þurfti upp á slysó en honum er batnað núna, sem betur fer. Hann lætur ekki svona mikið á sig fá, sá gamli.
Linda systir er orðin alveg rosa flínk að spila á þverflautuna og fer hún bráðum í Lúðrasveitina í Skólahljómsveit Kópavogs. Hún ætlar að spila í skírninni hans litla brósa. Kennarinn hennar sagði að hún væri mjög músíkölsk og væri fljót að læra. Við erum svo stolt af henni
.
Hann Dabbi, gamli kötturinn okkar sem flutti til Ómars pabba Lindu, er dáinn. Það var keyrt á greyið. En Linda og Ómar fengu sér nýjan kött sem fékk nafnið Kleópatra og er rosalega sæt.
Annars er allt gott að frétta af okkur hérna í Kópavoginum, við erum að passa hana Störu Björgvinsdóttur, sem er kisa, systir hans Dabba meira segja. Hún er rosa góð og stillt, ekki jafnmikill geðklofi og hinir kettirnir sem við höfum átt.
Jæja, nóg í bili.
Adios, Mótorhjóla Janus
Sæl öll nær og fjær,
Nú styttist óðum í að ég verði stóri bróðir. Ekki nema vika í settan dag. Spurning hvort hann verði jafn tímanlega í þessu og ég... annars er ég orðinn bara nokkuð spenntur. Sagði við mömmu um daginn þegar við vorum að skoða vögguna að ég vildi bara fá litla barnið núna. Hún var líka að sýna mér öll litlu fötin og litlu bleiurnar sem barnið á og mér fannst það allt voða spennandi. Svo vil ég líka oft fá að liggja á köldu bumbunni hennar mömmu. (Hún skilur samt ekki af hverju mér finnist hún vera köld)
Pabbi er búinn að vera að kenna mér nokkra frasa, eins og að kreppa upphandleggsvöðvana og segja: "Sjáðu byssurnar á kallinum" og líka: "Klesst´ann !" Ég er mjög krúttilegur þegar ég geri þetta.
Svo er ég hættur að nota bleiju!!! Fer meira að segja sjálfur á klósettið. Á það til að loka og læsa baðherberginu þegar ég pissa, verð víst að vera eins og hinir á heimilinu.
Nýi kisinn okkar hann Dabbi fékk nýtt heimili um daginn, hann er kominn heim til Ómars, pabba hennar Lindu og hefur það alveg stórfínt þar. Kemst út og svoleiðis, þannig að hann getur tekið æðisköstin þar.
Það gengur annars allt vel hérna hjá okkur og ég verð ákveðnari með hverjum deginum, en er samt ljúfur sem lamb þrátt fyrir að reyna að stjórna öllu á heimilinu. Búinn að reyna að hóta pabba með að siga löggunni á hann og svoleiðis.
Læt þetta duga í bili. Og munið nú að kvitta í gestabókina, þið eruð alltof löt við það.
Janus Breki
Halló allir saman!
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá er ég að verða stóri bróðir
. Já, hún mamma mín er víst með lítinn strák í bumbunni, heppinn ég
. Hann er væntanlegur í heiminn 21.nóvember 2009 og það verður spennandi að sjá hvort að hann komi á réttum tíma eins og ég. Linda systir vildi reyndar litla systur en þegar hún frétti að þetta væri strákur þá sagði hún: " Það er allavega skárra en ekkert" Krúttið hún 
Ég, mamma og Ingibjörg frænka kíktum í búðir í dag og var fjárfest í nýju rúmi fyrir mig ásamt náttborði. Ég er sem sagt kominn í rúm fyrir stóra stráka, rimlarúmið var skrúfað sundur og verður geymt fram í nóvember. Við kíktum líka í Litaver og keyptum nýjan veggborða í herbergið mitt. Ég var búinn að rífa niður hundaveggborðana báðum megin á herberginu og var það frekar ljótt að sjá. Mamma og Ingibjörg voru snöggar að þrífa þetta í burtu og skella upp nýjum og núna er ég með gó kart veggborða, ég kalla þetta kappakstursbíla, en það er reyndar ekki það mikill munur, útlitslega séð. Nú er herbergið mitt orðið alveg ægilega flott. Svo á mánudaginn þá ætlum við í Ikea og kaupa pínulítinn fataskáp handa mér. Herbergið mitt er frekar lítið,(eiginlega mjög lítið) en kósý. Ingibjörg frænka kallaði þetta kompu! Shame on you, Imba! 
Annars er allt gott að frétta af mér og okkur. Ég hef ekkert orðið neitt veikur síðan ég fékk rörin í eyrun, nema smá kvef af og til.
Við hlökkum alveg svakalega til að fara í sumarfrí, en það er ekki nema mánuður í það. Við erum að fara í veiði með pabba fjölskyldu og svo förum við beint þaðan í Selvík, og verðum þar í viku.
Búið að smella inn nýjum myndum í maí albúmið, þar sem ég sést meðal annars máta nýja rúmið mitt.
Læt þetta nóg í bili.
Janus "big brother" Breki
Góðan daginn allir,
Það hefur nú ýmislegt gerst hjá okkur hérna í Engihjallanum.
Elskulegur Kúri okkar er dáinn. Hann fékk ólæknandi veirusýkingu og þurfti að svæfa hann. Við vonum að honum líði nú betur þar sem hann er núna.RIP elsku Kúri. Þrátt fyrir að hann hafi verið kolgeðveikur og skemmt húsgögnin okkar svo þúsundum skiptir þá var hann svo ljúfur inn á milli og verður hans sárt saknað. Enginn til að taka á móti okkur þegar við komum heim og enginn sem liggur fast ofan á löppunum á mömmu á nóttunni.
Mamma og pabbi brugðust hins vegar fljótt við og bættu upp missinn með páfagauk sem fékk nafnið Babú, sem ég stakk upp á. Ég sagði reyndar Baba en þau breyttu því í Babú. Það verður sjálfsagt auðvelt að kenna honum að segja það. Þetta er gári og er hægt að þjálfa þá upp og kenna þeim að tala.
Ég er kominn með rör í eyrun og hef ég ekkert orðið veikur síðan. Það gengur allt ljómandi vel þar.
Ég fór í Hveragerði á kosningadag til Runna afa og fórum við að kjósa saman. Þegar ég var spurður hvað ég ætlaði að kjósa sagðist ég ætla að kjósa appelsínu, afi hins vegar sannfærði mig um að kjósa Framsókn.
Jæja, hef þetta nóg í bili og kveð að sinni. Endilega tékkið á nýju myndunum í aprílalbúminu.
Peace out
Janus Breki
Halló, halló,
Nú styttist óðum í að ég fari í röraaðgerðina. Mamma fékk tíma fyrir mig þann 13.mars en hún bað um að fá einhvern annan dag þar sem hún er í skólanum akkúrat þann dag. Fáum örugglega að vita í dag hvenær ég kemst.
Annars er ég bara hress og kátur eins og alltaf. Elska Lindu mína alveg út af lífinu, fæ ekki nóg af að vera inn í herberginu hennar og leika við hana. Hún er líka svo dugleg að vera með mig og passa mig. Ég segi líka mjög oft: "Linda á mig". Við erum sko heppin að eiga hana að
.
Það eru komin 2 ný myndbönd af mér hérna á netið. Tékkið á krúttinu!
Og endilega kvittið í gestabókina!!!
Janus Breki
Var að setja inn nýtt myndband af Janusi. Frekar fyndið 
Begga
Halló allir,
Nú er maður allur að hressast eftir þessi miklu veikindi sem eru búin að vera að hrjá mig síðan fyrir jól. Nú er komið í ljós að ég á að fá rör í eyrun. Nú bíðum við bara eftir því að það verði hringt í okkur og við fáum tíma í aðgerðina. Það verður nú munur að losna við þessa eyrnabólgu og allt þetta ógeðslega pensilín sem virkar hvort eð er ekkert á mig.
Linda er farin til Reyðarfjarðar yfir helgina í heimsókn til Kristínar Óskar vinkonu sinnar. Mamma skutlaði henni út á flugvöll í gær og flaug hún alein til Egilsstaða.Dugleg stelpa. Ég sakna hennar alveg óskaplega, enda er ég mikill Lindu strákur þegar mér hentar. Hún er líka allaf svo góð við mig, nennir alltaf leika við mig, baða mig, svæfa mig eða bara hvað sem er.
Ég varð alveg brjálaður í morgun þegar mamma skildi mig eftir í leikskólanum...það hefur aldrei gerst eftir að ég fór yfir á Ólátagarð. Ég hef síðustu vikur neitað að fara í leikskólann, segist ekki vilja hitta krakkana. Mömmu og pabba grunar að það sé út af því að það eru mum meiri læti á þessari deild en á Undralandi. Ég er nefnilega rólyndiskall og er ekki mikið fyrir gauragang, þó ég geti alveg verið fjörugur. Fóstrunum finnst ég hafa verið frekar orkulítill undanfarið, svona eins og ég sé ekki alveg búinn að jafna mig eftir þessi veikindi.
Við 3/4 af fjölskyldunni ætlum að hafa það notalegt um helgina, í kvöld erum við að spá í að skella á grillið í frostinu og elda okkur lambakjöt með piparostasósu, mmmmhhh. Ég get borðað hana eintóma.
Mamma ætlar svo að skella inn nýjum myndum af mér og okkur hérna inn á netið í kvöld þegar hún kemur heim.
Adios amigos,
Janus Breki
Halló allir,
Þetta eru nú búin að vera meiri jólin ! Ég er búin að vera meira og minna veikur síðan þá. Þetta byrjaði allt 20.des þegar það byrjaði að leka úr eyranu á mér fullt af drullu. Mamma stökk með mig á læknavaktina og kom í ljós að ég var með svona heiftarlega eyrnabólgu og hafði hljóðhimnan sprungið. Ég var samt ekkert veikur þarna og hafði ekkert verið að kvarta. Ég fékk pensilín en svo á þorláksmessu þá gleymdist pensilínið í leikskólanum og við þurftum aftur á læknavaktina til að fá meira. Svo milli jóla og nýárs þá fór ég að fá sveppasýkingu á bleiusvæðið, sem er bein afleiðing pensilín kúrsins. Aftur var farið á læknavaktina og ég fékk 2 gerðir af kremum, eins skoðaði hann eyrun og sá að eyrnabólgan var ekki alveg farin en vildi ekki láta mig fá neitt við henni. Síðan mánudaginn 5.jan þá var ég orðinn stútfullur af kvefi og kominn með hita, þannig að mamma fór aftur með mig á læknavaktina til að láta athuga hvort að það væri nokkuð komið aftur í eyrun á mér, þar sem ég hafði verið að toga aðeins í þau. Og viti menn, kominn með bullandi eyrnabólgu aftur. Fékk pensilín enn eina ferðina og annað krem á sveppasýkinguna þar sem hin voru ekki að virka. Þegar ég var búinn að vera veikur alla vikuna og sveppasýkingin lítið búin að ganga til baka þá fékk mamma nóg og hringdi í lækninn sinn sem sagði henni að fara með mig upp á bráðmóttöku. Þarna var ég líka allur í útbrotum með þurra, rauða húð og sprungnar varir. Þar kom í ljós að pensílínið var ekki að virka nógu vel á mig og fékk ég sýklalyf sprautuð í lærin á mér. Eftir það gat ég hætt að taka pensílínið. Fór svo aftur uppeftir á mánudaginn í tékk og þurfti þá að fá fleiri sprautur þar sem eyrnabólgan var ekki alveg farin. Læknarnir sögðu við okkur að það yrði að meðhöndla eyrnabólguna út af sögunni minni.
Ég er samt allur að koma til núna. Þar sem ég er búin að vera heima í dekri hjá foreldrum og langafa og langömmu þá er ég orðinn all verulega frekur. Vil bara sofa upp í hjá mömmu og pabba og er farinn að væla þegar ég á að fara að sofa. Er með stæla og leiðindi aðeins of oft. Þau voru auðvitað rosa góð við mig þegar ég var veikur og leið illa. En ma&pa eru að taka hart á mér núna þar sem ég er orðinn hress af veikindunum. Ég er meira að segja aðeins farinn að vera ég sjálfur aftur, ekki eins erfiður.
En ég átti nú afmæli um daginn, já ég varð 2ja ára! Til hamingju ég! Það var haldin smá veisla fyrir nánustu fjölskyldumeðlimi og fékk ég fullt af fínu dóti.
Það eru einnig fleiri fréttir, ég er að fara yfir á stórudeildina í leikskólanum
Nýja deildin mín heitir Ólátagarður og fór ég í heimsókn þangað í gær. Voða gaman!
Annars gengur bara mjög vel hjá okkur. Mamma er byrjuð í skólanum og er mjög ánægð. Lindu finnst voða sport að fá að læra með henni. Þær sitja við borðstofuborðið og reikna saman
. Á meðan chilla ég bara fyrir framan stubbana eða er að leika mér í dótinu mínu.
Þangað til næst, adios
Janus Breki
Sæl öll sömul,
Það er allt gott að frétta af okkur hérna í Engihjallanum. Ég er orðinn altalandi.Alveg eins og páfagaukur, apa allt upp eftir öllum. Nú verður fullorðna fólkið að fara að passa orðbragðið.
Mamma sótti mig í leikskólann í dag þar sem Linda var heima veik, þegar hún kom þá sagði fóstran henni að ég væri svo ægilega geðgóður. Ég var að kubba með risastórum kubbum og gat ekki sett þá saman...í stað þess að verða pirraður þá sagði ég bara "Hvað er í gangi ? " Mömmu til mikillar skemmtunar! Ég hef sjálfsagt heyrt þetta frá foreldrum mínum...eða Lindu. Ég verð ægilega fúll oft á morgnana þegar hún fer í skólann og ég þarf nánast að draga mömmu út því ég get ekki beðið eftir að komast í leikskólann sjálfur. Svo þegar þangað er komið þá hef ég engan tíma til að kveðja hana. Fóstrunar eru rosa ánægðar með mig, því ég er svo duglegur að tala, borða sjálfur og sef eins og engill. Það eina sem ég vil er að Szdenka, fóstran mín, haldi í hendina á mér á meðan ég sofna. Ég segi bara "hendi" og sofna svo.
Mamma hitti aðra mömmu í dag sem var að sækja dóttur sína og sagði hún henni að í hvert skipti sem minnst er á leikskólann við litlu stelpuna(mamma veit ekki hvað hún heitir) þá segir hún bara Janus Breki
. Jú, jú, maður er vinsæll og svo kyssti ég hana bless! Maður er bara kominn með kærustu
. Ætli ég hafi ekki sjarmann frá honum pabba mínum.
Mamma, amma Iðunn og Ingibjörg frænka fóru til Boston núna í október. Þær versluðu nánast allar jólagjafirnar og hittu fjölskylduna sem mamma var au-pair hjá fyrir 10 árum. Þau heita Mark og Michelle og strákarnir heita Scott, 18 ára og Ben, 16ára. Þær skemmtu sér voða vel og nutu þess að vera í góða veðrinu í Boston. Mamma fékk líka nett flashback af því að koma þangað og ef ég og Linda hefðum ekki verið fædd og mamma ekki hitt pabba þá hefði hún örugglega orðið eftir. Michelle vill ólm fá Ingibjörgu frænku til að flytja til sín, sagði að hún gæti bara komið í skóla í Boston og búið hjá sér á meðan eða farið að vinna. Og næst þegar mamma ætlar að fara til Boston þá á hún að taka okkur Lindu og pabba með. Þið getið skoðað myndir af ferðinni hér á síðunni.
Það gengur allt vel með gleraugun fyrir utan að það er alltaf verið að brjóta þau. Ég hef 3svar þurft að fá nýja spöng á gleraugun og eru þau í öllum regnbogans litum núna. Það er ein stelpa í leikskólanum sem er sérstaklega hrifin af að taka þau af mér og í eitt skiptið þá brotnaði spöngin og rispaði mig niður allt andlitið. Annars er ég farinn að biðja um að þau verði sett á mig á morgnana.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur héðan, allir hamingjusamir og ánægðir.
Endilega munið að kvitta í gestabókina.
Kveðja
Mr.Popularity
Janus Breki
Jæja, þá er kallinn kominn með gleraugu og gengur bara ágætlega að venja mig við. Ég ríf þau af mér reglulega en annars er ég mjög duglegur að hafa þau á nefinu.
Það gengur rosalega vel í aðlögunni í leikskólanum og er aðlögunar vikan núna búin. Byrja á fullu á mánudaginn. Fóstrurnar eru svakalega ánægðar með mig. Þeim finnst ég svo duglegur að tala og borða alveg sjálfur. Það var heldur ekkert mál að leggja sig þarna hjá þeim. Tók bara koddann minn og fór að sofa. Svaf svo í einn og hálfan tíma. Duglegur strákur. Tók ekki af mér gleraugun nema einu sinni á 5 og hálfum tíma.
Ég kvaddi Helgu dagmömmu á föstudaginn. Ég fékk pakka frá henni og kort. Fékk líka þessa fínu bók um dýrin. Enda er ég mikill lestrarhestur, elska bækur! Ég get sko dundað mér við það.
Pabbi sagði Helgu að hún fengi símtal frá okkur þegar þau væru komin með annað barn sem vantaði dagmömmu... vonum bara að hún hætti ekki í millitíðinni. Þetta er sko langbesta dagmamma sem við höfum haft.
Mamma er búin að setja inn myndir af mér með gleraugun.Þau eru í september albúminu, alveg neðst í því. Fyrstu myndirnar eru soldið lúðalegar af mér þar sem ég er skítugur í framan með hor. En hinar eru betri.
Endilega tékkið á því. Bið að heilsa!
Prófessor Janus