

Halló, halló !!
Jæja þá er maður orðinn stóri bróðir og bara nett ánægður með það :-) Mér finnst hann krúttilegur og þegar ég er spurður hvort ég sé sætastur þá segi ég :" Litli bróðir er sætastur, ég er bestur í heimi". Það er ekki enn komið nafn á litla guttann en hann mun fá nafnið þann 14.feb. næstkomandi en þá verður haldin heljarinnar skírnarveisla.
Ég er orðinn 3ja ára ofurgutti og mér finnst ég alveg ægilega stór. Arnar Már "frændi" gaf mér mótorhjól um daginn. Alvöru racer, bara minni útgáfu, ég er alveg afskaplega sáttur við það. Hef reyndar ekki fengið að fara á það ennþá þar sem það á eftir að setja hjálparadekk á það og kaupa fyrir mig almennilegan hjálm.
Ég fékk fullt af fínu dóti í jólagjöf en við fjölskyldan héldum upp á jólin saman hérna heima ásamt ömmu Iðunni, Ingibjörgu, langömmu Unu og langafa Gesti. Við vorum að opna pakka til að verða 10 að mig minnir.
Ég fékk hlaupabólu á jóladag og var alveg doppóttur fram yfir áramót og náði örugglega að smita Karvel frænda þar sem hann fékk hlaupabólu fyrir stuttu. Ég veiktist reyndar ekkert og þessar bólur virtust ekkert angra mig.
Áramótin voru haldin heima hjá Hrefnu frænku og var alveg feikna fjör þar á bæ, við strákarnir skemmtum okkur alveg rosa vel og fór ég ekki að sofa fyrr en kl.2 um nóttina. Pabbi minn náði að slasa sig á hendinni og þurfti upp á slysó en honum er batnað núna, sem betur fer. Hann lætur ekki svona mikið á sig fá, sá gamli.
Linda systir er orðin alveg rosa flínk að spila á þverflautuna og fer hún bráðum í Lúðrasveitina í Skólahljómsveit Kópavogs. Hún ætlar að spila í skírninni hans litla brósa. Kennarinn hennar sagði að hún væri mjög músíkölsk og væri fljót að læra. Við erum svo stolt af henni
.
Hann Dabbi, gamli kötturinn okkar sem flutti til Ómars pabba Lindu, er dáinn. Það var keyrt á greyið. En Linda og Ómar fengu sér nýjan kött sem fékk nafnið Kleópatra og er rosalega sæt.
Annars er allt gott að frétta af okkur hérna í Kópavoginum, við erum að passa hana Störu Björgvinsdóttur, sem er kisa, systir hans Dabba meira segja. Hún er rosa góð og stillt, ekki jafnmikill geðklofi og hinir kettirnir sem við höfum átt.
Jæja, nóg í bili.
Adios, Mótorhjóla Janus
Skrifa athugasemd