

Sæl öll nær og fjær,
Nú styttist óðum í að ég verði stóri bróðir. Ekki nema vika í settan dag. Spurning hvort hann verði jafn tímanlega í þessu og ég... annars er ég orðinn bara nokkuð spenntur. Sagði við mömmu um daginn þegar við vorum að skoða vögguna að ég vildi bara fá litla barnið núna. Hún var líka að sýna mér öll litlu fötin og litlu bleiurnar sem barnið á og mér fannst það allt voða spennandi. Svo vil ég líka oft fá að liggja á köldu bumbunni hennar mömmu. (Hún skilur samt ekki af hverju mér finnist hún vera köld)
Pabbi er búinn að vera að kenna mér nokkra frasa, eins og að kreppa upphandleggsvöðvana og segja: "Sjáðu byssurnar á kallinum" og líka: "Klesst´ann !" Ég er mjög krúttilegur þegar ég geri þetta.
Svo er ég hættur að nota bleiju!!! Fer meira að segja sjálfur á klósettið. Á það til að loka og læsa baðherberginu þegar ég pissa, verð víst að vera eins og hinir á heimilinu.
Nýi kisinn okkar hann Dabbi fékk nýtt heimili um daginn, hann er kominn heim til Ómars, pabba hennar Lindu og hefur það alveg stórfínt þar. Kemst út og svoleiðis, þannig að hann getur tekið æðisköstin þar.
Það gengur annars allt vel hérna hjá okkur og ég verð ákveðnari með hverjum deginum, en er samt ljúfur sem lamb þrátt fyrir að reyna að stjórna öllu á heimilinu. Búinn að reyna að hóta pabba með að siga löggunni á hann og svoleiðis.
Læt þetta duga í bili. Og munið nú að kvitta í gestabókina, þið eruð alltof löt við það.
Janus Breki
amma og afi bíða spennt eftir að fylgjast með þér þegar þú veður orðin stóri bróðír :-)