

Halló allir saman!
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá er ég að verða stóri bróðir
. Já, hún mamma mín er víst með lítinn strák í bumbunni, heppinn ég
. Hann er væntanlegur í heiminn 21.nóvember 2009 og það verður spennandi að sjá hvort að hann komi á réttum tíma eins og ég. Linda systir vildi reyndar litla systur en þegar hún frétti að þetta væri strákur þá sagði hún: " Það er allavega skárra en ekkert" Krúttið hún 
Ég, mamma og Ingibjörg frænka kíktum í búðir í dag og var fjárfest í nýju rúmi fyrir mig ásamt náttborði. Ég er sem sagt kominn í rúm fyrir stóra stráka, rimlarúmið var skrúfað sundur og verður geymt fram í nóvember. Við kíktum líka í Litaver og keyptum nýjan veggborða í herbergið mitt. Ég var búinn að rífa niður hundaveggborðana báðum megin á herberginu og var það frekar ljótt að sjá. Mamma og Ingibjörg voru snöggar að þrífa þetta í burtu og skella upp nýjum og núna er ég með gó kart veggborða, ég kalla þetta kappakstursbíla, en það er reyndar ekki það mikill munur, útlitslega séð. Nú er herbergið mitt orðið alveg ægilega flott. Svo á mánudaginn þá ætlum við í Ikea og kaupa pínulítinn fataskáp handa mér. Herbergið mitt er frekar lítið,(eiginlega mjög lítið) en kósý. Ingibjörg frænka kallaði þetta kompu! Shame on you, Imba! 
Annars er allt gott að frétta af mér og okkur. Ég hef ekkert orðið neitt veikur síðan ég fékk rörin í eyrun, nema smá kvef af og til.
Við hlökkum alveg svakalega til að fara í sumarfrí, en það er ekki nema mánuður í það. Við erum að fara í veiði með pabba fjölskyldu og svo förum við beint þaðan í Selvík, og verðum þar í viku.
Búið að smella inn nýjum myndum í maí albúmið, þar sem ég sést meðal annars máta nýja rúmið mitt.
Læt þetta nóg í bili.
Janus "big brother" Breki
Skrifa athugasemd