Janus Breki
 

Appelsína skal ţađ vera heillin!

Góðan daginn allir,

Það hefur nú ýmislegt gerst hjá okkur hérna í Engihjallanum.

Elskulegur Kúri okkar er dáinn. Hann fékk ólæknandi veirusýkingu og þurfti að svæfa hann. Við vonum að honum líði nú betur þar sem hann er núna.RIP elsku Kúri. Þrátt fyrir að hann hafi verið kolgeðveikur og skemmt húsgögnin okkar svo þúsundum skiptir þá var hann svo ljúfur inn á milli og verður hans sárt saknað. Enginn til að taka á móti okkur þegar við komum heim og enginn sem liggur fast ofan á löppunum á mömmu á nóttunni.

Mamma og pabbi brugðust hins vegar fljótt við og bættu upp missinn með páfagauk sem fékk nafnið Babú, sem ég stakk upp á. Ég sagði reyndar Baba en þau breyttu því í Babú. Það verður sjálfsagt auðvelt að kenna honum að segja það. Þetta er gári og er hægt að þjálfa þá upp og kenna þeim að tala.

Ég er kominn með rör í eyrun og hef ég ekkert orðið veikur síðan. Það gengur allt ljómandi vel þar.

Ég fór í Hveragerði á kosningadag til Runna afa og fórum við að kjósa saman. Þegar ég var spurður hvað ég ætlaði að kjósa sagðist ég ætla að kjósa appelsínu, afi hins vegar sannfærði mig um að kjósa Framsókn.

Jæja, hef þetta nóg í bili og kveð að sinni. Endilega tékkið á nýju myndunum í aprílalbúminu.

Peace out

Janus Breki

26. April 2009 - 22:03



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti