

Halló allir,
Nú er maður allur að hressast eftir þessi miklu veikindi sem eru búin að vera að hrjá mig síðan fyrir jól. Nú er komið í ljós að ég á að fá rör í eyrun. Nú bíðum við bara eftir því að það verði hringt í okkur og við fáum tíma í aðgerðina. Það verður nú munur að losna við þessa eyrnabólgu og allt þetta ógeðslega pensilín sem virkar hvort eð er ekkert á mig.
Linda er farin til Reyðarfjarðar yfir helgina í heimsókn til Kristínar Óskar vinkonu sinnar. Mamma skutlaði henni út á flugvöll í gær og flaug hún alein til Egilsstaða.Dugleg stelpa. Ég sakna hennar alveg óskaplega, enda er ég mikill Lindu strákur þegar mér hentar. Hún er líka allaf svo góð við mig, nennir alltaf leika við mig, baða mig, svæfa mig eða bara hvað sem er.
Ég varð alveg brjálaður í morgun þegar mamma skildi mig eftir í leikskólanum...það hefur aldrei gerst eftir að ég fór yfir á Ólátagarð. Ég hef síðustu vikur neitað að fara í leikskólann, segist ekki vilja hitta krakkana. Mömmu og pabba grunar að það sé út af því að það eru mum meiri læti á þessari deild en á Undralandi. Ég er nefnilega rólyndiskall og er ekki mikið fyrir gauragang, þó ég geti alveg verið fjörugur. Fóstrunum finnst ég hafa verið frekar orkulítill undanfarið, svona eins og ég sé ekki alveg búinn að jafna mig eftir þessi veikindi.
Við 3/4 af fjölskyldunni ætlum að hafa það notalegt um helgina, í kvöld erum við að spá í að skella á grillið í frostinu og elda okkur lambakjöt með piparostasósu, mmmmhhh. Ég get borðað hana eintóma.
Mamma ætlar svo að skella inn nýjum myndum af mér og okkur hérna inn á netið í kvöld þegar hún kemur heim.
Adios amigos,
Janus Breki
Skrifa athugasemd