Janus Breki
 

Jól og veikindi

Halló allir,

 Þetta eru nú búin að vera meiri jólin ! Ég er búin að vera meira og minna veikur síðan þá. Þetta byrjaði allt 20.des þegar það byrjaði að leka úr eyranu á mér fullt af drullu. Mamma stökk með mig á læknavaktina og kom í ljós að ég var með svona heiftarlega eyrnabólgu og hafði hljóðhimnan sprungið. Ég var samt ekkert veikur þarna og hafði ekkert verið að kvarta. Ég fékk pensilín en svo á þorláksmessu þá gleymdist pensilínið í leikskólanum og við þurftum aftur á læknavaktina til að fá meira. Svo milli jóla og nýárs þá fór ég að fá sveppasýkingu á bleiusvæðið, sem er bein afleiðing pensilín kúrsins. Aftur var farið á læknavaktina og ég fékk 2 gerðir af kremum, eins skoðaði hann eyrun og sá að eyrnabólgan var ekki alveg farin en vildi ekki láta mig fá neitt við henni. Síðan mánudaginn 5.jan þá var ég orðinn stútfullur af kvefi og kominn með hita, þannig að mamma fór aftur með mig á læknavaktina til að láta athuga hvort að það væri nokkuð komið aftur í eyrun á mér, þar sem ég hafði verið að toga aðeins í þau. Og viti menn, kominn með bullandi eyrnabólgu aftur. Fékk pensilín enn eina ferðina og annað krem á sveppasýkinguna þar sem hin voru ekki að virka. Þegar ég var búinn að vera veikur alla vikuna og sveppasýkingin lítið búin að ganga til baka þá fékk mamma nóg og hringdi í lækninn sinn sem sagði henni að fara með mig upp á bráðmóttöku. Þarna var ég líka allur í útbrotum með þurra, rauða húð og sprungnar varir. Þar kom í ljós að pensílínið var ekki að virka nógu vel á mig og fékk ég sýklalyf sprautuð í lærin á mér. Eftir það gat ég hætt að taka pensílínið. Fór svo aftur uppeftir á mánudaginn í tékk og þurfti þá að fá fleiri sprautur þar sem eyrnabólgan var ekki alveg farin. Læknarnir sögðu við okkur að það yrði að meðhöndla eyrnabólguna út af sögunni minni.

Ég er samt allur að koma til núna. Þar sem ég er búin að vera heima í dekri hjá foreldrum og langafa og langömmu þá er ég orðinn all verulega frekur. Vil bara sofa upp í hjá mömmu og pabba og er farinn að væla þegar ég á að fara að sofa. Er með stæla og leiðindi aðeins of oft. Þau voru auðvitað rosa góð við mig þegar ég var veikur og leið illa. En ma&pa eru að taka hart á mér núna þar sem ég er orðinn hress af veikindunum. Ég er meira að segja aðeins farinn að vera ég sjálfur aftur, ekki eins erfiður.Óviss

En ég átti nú afmæli um daginn, já ég varð 2ja ára! Til hamingju ég! Það var haldin smá veisla fyrir nánustu fjölskyldumeðlimi og fékk ég fullt af fínu dóti.

Það eru einnig fleiri fréttir, ég er að fara yfir á stórudeildina í leikskólanum Bros Nýja deildin mín heitir Ólátagarður og fór ég í heimsókn þangað í gær. Voða gaman!

Annars gengur bara mjög vel hjá okkur. Mamma er byrjuð í skólanum og er mjög ánægð. Lindu finnst voða sport að fá að læra með henni. Þær sitja við borðstofuborðið og reikna saman Bros. Á meðan chilla ég bara fyrir framan stubbana eða er að leika mér í dótinu mínu.

Þangað til næst, adios

Janus Breki

14. January 2009 - 11:09



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti