Janus Breki
 

Orđinn altalandi

Sæl öll sömul,

 Það er allt gott að frétta af okkur hérna í Engihjallanum. Ég er orðinn altalandi.Alveg eins og páfagaukur, apa allt upp eftir öllum. Nú verður fullorðna fólkið að fara að passa orðbragðið. 

Mamma sótti mig í leikskólann í dag þar sem Linda var heima veik, þegar hún kom þá sagði fóstran henni að ég væri svo ægilega geðgóður. Ég var að kubba með risastórum kubbum og gat ekki sett þá saman...í stað þess að verða pirraður þá sagði ég bara "Hvað er í gangi ? " Mömmu til mikillar skemmtunar! Ég hef sjálfsagt heyrt þetta frá foreldrum mínum...eða Lindu. Ég verð ægilega fúll oft á morgnana þegar hún fer í skólann og ég þarf nánast að draga mömmu út því ég get ekki beðið eftir að komast í leikskólann sjálfur. Svo þegar þangað er komið þá hef ég engan tíma til að kveðja hana. Fóstrunar eru rosa ánægðar með mig, því ég er svo duglegur að tala, borða sjálfur og sef eins og engill. Það eina sem ég vil er að Szdenka, fóstran mín, haldi í hendina á mér á meðan ég sofna. Ég segi bara "hendi" og sofna svo.

Mamma hitti aðra mömmu í dag sem var að sækja dóttur sína og sagði hún henni að í hvert skipti sem minnst er á leikskólann við litlu stelpuna(mamma veit ekki hvað hún heitir) þá segir hún bara Janus Breki . Jú, jú, maður er vinsæll og svo kyssti ég hana bless! Maður er bara kominn með kærustu . Ætli ég hafi ekki sjarmann frá honum pabba mínum.

Mamma, amma Iðunn og Ingibjörg frænka fóru til Boston núna í október. Þær versluðu nánast allar jólagjafirnar og hittu fjölskylduna sem mamma var au-pair hjá fyrir 10 árum. Þau heita Mark og Michelle og strákarnir heita Scott, 18 ára og Ben, 16ára. Þær skemmtu sér voða vel og nutu þess að vera í góða veðrinu í Boston. Mamma fékk líka nett flashback af því að koma þangað og ef ég og Linda hefðum ekki verið fædd og mamma ekki hitt pabba þá hefði hún örugglega orðið eftir. Michelle vill ólm fá Ingibjörgu frænku til að flytja til sín, sagði að hún gæti bara komið í skóla í Boston og búið hjá sér á meðan eða farið að vinna. Og næst þegar mamma ætlar að fara til Boston þá á hún að taka okkur Lindu og pabba með. Þið getið skoðað myndir af ferðinni hér á síðunni.

Það gengur allt vel með gleraugun fyrir utan að það er alltaf verið að brjóta þau. Ég hef 3svar þurft að fá nýja spöng á gleraugun og eru þau í  öllum regnbogans litum núna. Það er ein stelpa í leikskólanum sem er sérstaklega hrifin af að taka þau af mér og í eitt skiptið þá brotnaði spöngin og rispaði mig niður allt andlitið. Annars er ég farinn að biðja um að þau verði sett á mig á morgnana.

Annars er bara allt gott að frétta af okkur héðan, allir hamingjusamir og ánægðir. 

Endilega munið að kvitta í gestabókina.

Kveðja

Mr.Popularity

Janus Breki

20. October 2008 - 21:09



Athugasemdir

Berglind Ţöll Heimisdóttir

Litla stelpan heitir Sigurún og mamma hennar Elsa, hehe er međ mér í hjúkkuni og var ađ tala um dóttir sína og vin hennar Janus Breka á leikskólanum :)

Bestu kveđjur!

29. November 2008

Nafn


Texti