

Jæja, þá er kallinn kominn með gleraugu og gengur bara ágætlega að venja mig við. Ég ríf þau af mér reglulega en annars er ég mjög duglegur að hafa þau á nefinu.
Það gengur rosalega vel í aðlögunni í leikskólanum og er aðlögunar vikan núna búin. Byrja á fullu á mánudaginn. Fóstrurnar eru svakalega ánægðar með mig. Þeim finnst ég svo duglegur að tala og borða alveg sjálfur. Það var heldur ekkert mál að leggja sig þarna hjá þeim. Tók bara koddann minn og fór að sofa. Svaf svo í einn og hálfan tíma. Duglegur strákur. Tók ekki af mér gleraugun nema einu sinni á 5 og hálfum tíma.
Ég kvaddi Helgu dagmömmu á föstudaginn. Ég fékk pakka frá henni og kort. Fékk líka þessa fínu bók um dýrin. Enda er ég mikill lestrarhestur, elska bækur! Ég get sko dundað mér við það.
Pabbi sagði Helgu að hún fengi símtal frá okkur þegar þau væru komin með annað barn sem vantaði dagmömmu... vonum bara að hún hætti ekki í millitíðinni. Þetta er sko langbesta dagmamma sem við höfum haft.
Mamma er búin að setja inn myndir af mér með gleraugun.Þau eru í september albúminu, alveg neðst í því. Fyrstu myndirnar eru soldið lúðalegar af mér þar sem ég er skítugur í framan með hor. En hinar eru betri.
Endilega tékkið á því. Bið að heilsa!
Prófessor Janus
Skrifa athugasemd