

Sólveig byrjar að tjá sig á fullu í setningum 21 mánaða.
21 mánaða:
-Steinar pabbi farinn í vinnuna og Sólveig vaknar og seigir: Pabbi farinn burt út! svo kom Pabbi týndur!
-Sólveig má ekki fá meira kakó og labbar fram í skóna sína og seigir: Ég er farin burt!
-Sólveig þykist eiga ein Steinar pabba og ef einhver reynir að knúsa hann þá öskrar hún: MITT!
-Steinar keyrir stjúspsyskinin heim: Sólveig horfir á bílinn fara og seigr: Pabbi taka Gabríel burt!
-Pabbahelgi og henni er sagt að nú sé hún að fara til Hrólfs pabba og eigi að sofa þar, þá seigir músin: Nei sofa Holf pabba, leika og tala pabba!
- Mamman ætlaði að leggja sig með skottu í miðdeigislúr. Mamman seigir: mamma ætlar að sofa! Þá svarar skottan: OK, ég sofa nóttinni horfa á mynd!!!
- Þegar einhver meiðir sig eða er í skoðun hjá lækni stríkur hún viðkomandi og seigir: allt í lagi, svona svona, allt í lagi, dugleg.
22 mánaða
- Sólveig ógó góð að tengja saman, stendur í veiðibúð að skoaða byssur með mömmu og Steina pabba, bendir á plast Svan á gólfinu og seigir: Pabbi skjóta bíbí!
24 mánaða
- Sólveig getur sagt næstum allt og langar setningar: 2 ára og 2 daga sagði hún: Bíddu aðeins ég er að búma :) svo náði hún í teiju og bað um að láta seta tigó í hárið. Voða dugleg mús :) Líka farin að þvo sjálf hendurnar!
- 24 mánaða er hún farin að myndast við að læra að skrifa nafnið sitt og kann að skrifa S og O :)
31 mánaða
- hefur mikinn áhuga á að þvo þvott. Fer úr öllu, setur inn í þvotavélina, kveikir á on takkanum og bíður í smá tíma. Opnar og klæðir sig í fötin. Heldur sko að hún kunni alveg að þvo þvottin. Sólveig er líka snilingur að ganga frá og moppa gólfin.
Tveggja ára og tíu mánaða
-Sólveig lærði orðið kúkur í leikskólanum, fór að kalla fólk kúk ef henni mislíkaði. Henni var náttulega sagt að þetta væri ljótt orð. Sólveig var fljót að svara fyrir sig: Ég var ekki að seigja kúkur, bara kúkur í klóstinu!
Fram að fjögurra ára aldri var Sólveig alltaf með ýmundunarvininum sínum Fúfú, hann var mjög hrekkjóttur en líka mjög hjálpsamur. Fúfú t.d kenndi Sólveigu að láta sig fljóta í vatni. Þá sagði Sólveig sem var mjög vasshrædd: Mamma sjáðu hvað Fúfú var að kenna mér. Svo gerði hún sig alveg beina í vatninu og lét sig fjóta í heita pottinum.
Fjögurra ára
- Sólveig segir að jólasveinninn fylgist ekki með á nóttinni eftir að hafa leikið sér með skódótið að nóttu til. Hún sagði að hún hefði laumst út um nóttina og kíkt til jólasveinana, þeir voru uppteknir við að spila froskaspil og eru ekki að fylgjast með!
-Sólveig ákvað að hún vildi litla systur heim til sín, mamman varð ekki að þeirri ósk þannig að hún náði sér í plamóbarn. Nefndi hana Örnu litlu. Á hverjum degi þá tabustar hún hana með plamó tannbusta og á hverri nóttu þá leggur hún hana í plemó rúm hliðin á rúmminu hennar mömmu og pabba.
Fimm ára
-Sólveig ný orðin fimm ára vill ekki fara til pabba síns og segir: Mamma skrifaðu bara á facebook STOPP Hrólfur. Svo seigir hún að hún vilji ekki fara til hans vegna þess að hann flutti frá henni. Seinna sagði hún: Ef Hróflur pabbi saknar mín þá getur hann bara flutt til mín. Mamman segir: En hann á heima hjá Önnu og börnunum. Þá segir skotta: Sko þau meiga bara öll koma. Fullorðnir sofa bara saman í ykkar herbergi og ég sef í mínu rúmi og allir krakkarnir á dínu á góflinu hjá mér!
- Sólveig fimm ára og tveggja mánaða:
-Skottan varð ástfangin, fyrsta ástin er hann Spok. Sólveig fimm og hálfs árs gerðist Startrekkari
Hún ætlar að giftast Spok þegar hún verður stór. Þessa daganna föndrar hún eitthvað sem hún vill senda Spok út í geim. Það þýðir ekkert að segja henni að hann sé leikari!
-Fimm og hálfs árs skottan sagði: Mamma Arnþór verður ekki sjálfráða 18 ára heldur 20 ára. Svo bætti hún við: Ég verð sjlfráða sex ára, nei ég meinti fimm ára!
- Á leið úr bústað í svarta mirkri spurði Sólveig: Erum við að keyra tl himna? Þá hélt hún að trén á Þingvöllum væru ský. Henni fannst þau hvít.
Vika í að verða fimm ára:
- Steinar pabbi spyr: Villt þú horfa á barnafrétt? (hún hefur kallað teiknimyndir barnfréttir)
-Sólveig: Hvað er það? (Eitt spurningarmerki í framan eins og hún viti ekkert hvað hann sé að tala um)
-Steinar pabbi: Það sem þú kallar teiknimyndir.
-Sólveig. Uhh það var þegar ég VAR FIMM ÁRA!
*Sólveig spyr hvort hún meigi mála sig. Mamma hennar segir nei. Þá segir sú stutta: ÉG ER SKO ORÐIN SEX!
Sólveig er ákveðin í því að þar sem hún sé búin að halda afmælið þó það vanti viku í afmælisdaginn að hún sé orðin sex. Hún fór og vildi pakka niður fullt af dóti og gefa litlu frænku þar sem hún væri orðin svo stór. Eins vill hún vera með maskara og allann pakkann. Hún sé orðin svo STÓR.
6 ára
-Sólveig var farin að lesa áður en hún byrjaði í skóla :)
- Hún fór að skipuleggja hluti. Tekur sér blað og teiknar hvaða röð hún á að fara í flíkur og hakar svo við hverja flík sem hún fer í. Fór líka að skrifa sjálf dagbók. Skrifar orð án þess að spyrja hvernig þau eru skrifuð og gengur vel með það.
-Sólveig byrjaði að æfa fimleika og fór í inntökupróf. Hún rauk strax í besta flotkkinn miðað við sinn aldur með stelpum sem höfðu æft áður. Hún hætti í ballet og prófaði karate eina önn.
-15 dögum fyrir 1 desember fór hún að telja niður þangað til hún ætti að opna dagatalið sitt. Hún setti miða á vegginn og skrifaði fimtán og hjarta. Á hverjum degi strikaði hún yfir töluna og setti nýja og ruglaðist ekkert þrátt fyrir pabbahelgar. Fjórum dögum fyrir 1.des sagði hún mömmu sinni að nú væru aðeins fjórir dagar eftir. Hún hafði talið alveg sjálf án þess að ruglast. 
-Þegar Sólveig fór að skrifa sjálf orð heima við lestrabókina í byrjun mars (rétt að verða sjö) þá tókst henni frábærlega til. Skrifar næstum allt rétt. Ruglast á Ð og Þ líka Y og i. T.d. á degi 3 þá átti hún að skrifa heyrnartól gerði það næstum alveg rétt nema setti venjulegt i í staðin fyrir y. Snilingur 
7 ára
-Sólveig stendur sig mjög vel í skóla og er orðin alveg læs hún fékk fullt hús stiga í lestrarprófi og er klár í stærðfræði.
-Æfir enn fimleika og stendur sig vel.
-Sólveig er enn mjög skipulögð og skráir mikið niður. Heldur dagbók þar sem hún skráir verkefni dagsins.
-Sólveig lærði á skífuklukku á einni kvöldstund!
-Sólveig hefur skrítin áhugamál, hún fór að fara út af skólalóðinni og þegar hún var spurð um afhverju þá sagði hún að það væri til þess að fylgjast með jarðaförum. Sjá sorgina og kistuna! Svo hafi hún veirð svo heppin að síðustu tvö skipti þegar hún var að bíða eftir fimleikarútunni þá hefði sko verið jarðaför.
-Sólveig ákvað sjö ára gömul að hún ætlaði í Versló (eftir að horfa á myndbönbd á youtupe) hún vissi alveg sjálf hvar hann var staðsettur og talaði um að fá A í 2 bekk fyrir Versló undirbúning :)
8 ára
- Sólveig sagði einn daginn eftir heimalestur: Það mætti halda að þessi höfundur sé fimm ára! Í bókinni stendur Í landinu og í innternetinu!
Sólveig er orðin það klár í lestri og stafsentingu að hún er farin að leiðrétta lesblinda móðir sína þegar hún skrifar.
Hún lærði líka um hindúatrú í skólanum og tók þá ákvörðun að hún ætlaði að verða hindúi.
9 ára
-Sólveig hefur alltaf verið Frk. Emil í Kattholti. Þegar hún var lítil þurfti að hafa læsingar á hurðum og gluggum svo hún færi bara ekki, óttalaus og hikaði ekki við að gera það sem henni sýndist. Einn daginn hvarf hún og fannst í fangi á lögrelgumanni. Þegar hún var níu er hún ekki minna uppátækjasöm. Eitt sinn þegar mamman kom frá lækni niður í bæ hringir hún í Sólveigu, vitir menn Sólveig kom heim úr skólanum og tilkynnti mömmu sinni að hún væri búin að príla upp á svalir og myndi bara bíða eftir henni þar. Mamman keyrði í loftköstum upp í Breiðholt svo hún næði heim áður en Sólveig fengi þá hugmynd að halda áfram upp á þak.
Þegar kom að því að velja sér hlóðfæri valdi hún stærsta sem henni datt í húg, túpu. Hún var mjög flót að læra á hana og stóð sig með eindæmum vel í tónlistarnáminu.
Eitt sinn var Sólveig send út að leika og vitir menn. Stuttu síðar fannst hún lengst upp í tré.
Sólveig var eitt sinn í dýragarði í Danmöku. Æddi á undan mömmu sinni og þegar mamman náði henni þá stóð hún ofan á grindverkinu hjá fíl. Sólveig endaði svo ofan í hjá fíl en að hennar sögn var það allt mömmunni að kenna því hún öskraði svo hátt eins og það væri verið að drepa hana. Þess vegna brá Sólveigu og datt ofan í búið hjá fílnum!
10 ára
-Sólveigu fannst góð hugmynd að festa hjólið sitt við felguna á bílnum. Þar væri hólið alveg öruggt!
-Sólveig hefur alltaf þurft lítinn svefn. Í kringum 10 ára afmælið vildi svefnráðgafinn minka svefninn hennar í að hún svæfi frá 22:40-7. Sólveig var hin ánægðasta með það en hefur verið mjög erfið í háttinn. Ýmsar skemmtilegar umræður skapast hjá svefnráðgjafanum. T.d. stakk Sólveig upp á því að hún myndi hlusta á hryllingsögur fyrir svefninn. Eins hafði rágjafinn orð á því að nauðsynlegt væri að hlíða yfirvaldi. Sólveig var fljót að mynda sér skðun á því. Hún þyrfti sko ekki að læra það þar sem hún ætlaði sjálf að vera forstjórinn!