Systkina hópurinn
 

Nöfnin á krílunum!

Nöfnin tákna:

 ´

Pétur Anton Steinarsson:

Pétur: úr grísku petros: klettur sem er þýðing arameiska nafnsins Kefas (Matt. 16, 18). 26/6. Pétur postuli.

Anton: stytting latneska nafnsins Antonús, sem merki ómetanlegur. 17/1. heilagur Antóníus, stofnandi fyrsta kristna klaustursins (d. 356)

Pétur er fæddur í Reykjavík 3 nóvember 1994, Pétur er skírður upp á fæðingardeild.

Pétur er skírður út í loftið (dúkka móðir hans hét Pétur).

 

Arnþór Friðrik Bech:

Arnþór: Örn eða arinn og Þór þrumuguð.

Friðrik: úr þýsku: friðsamur höfðingi. 

Arnþór er fæddur í Reykjavík 1 águst 1995. Arnþór var skírður heima í Vesturbergi 3.

Arnþór er skírður út í loftið.

 

Thomas Ari Bech:

Thomas: úr hebresku og merkir tvíburi. 

Ari: Örn

Thomas er fæddur á Skaby sjúkrahúsi í Árósum, Danmörku, 30 janúar 1997 og skírður í Skodstrup kirkju í Árósum 29 mars 1997. Thomas fæddist sama dag og Sidsel Frederikke Petersen Bech langalangaamma en hún var fædd 1890.

Thomas heitir Ari í höfuðið á Ara Guðjónssyni pabba Halldórs afa síns en hann var fæddur 7 apríl 1914 og Ara Halldórssyni föðurbróðir sínum.

 

Daníel Máni Steinarsson

Daníel: úr hebrsku: guð er dómari minn (Esek. 14,14). 

Máni: máni, tungl. Þorkell máni í Reykjavík, sonur Ingólfs Arnarsonar.

Daníel er fæddur í Reykjavík 12 mars 1998. Daníel er skírður upp á fæðingardeild.

Daníel er skírður út í loftið.

 

 

Liselotte Emilie Bech:

Lísa: Sú sem tignar Guð, stitting á danska nafniu Elísabet.

Emilie: Vingjarnleg.

Lotta er fædd 18 september 1998 í Danmörku á Grenaa sjúkrahúsi. Skírð í Kolind kirkju 27 desember 1998.

Lotta heitir Emilie í höfuðið á Emilíu Jósefínu Þórðardóttir sem var fædd á Ísafirði 6 september 1907 en hún var mamma Ingu ömmu.

 

 

 

Ísabella Ösp Steinarsdóttir:

Ísabella: spnskt-portúgölsk mynd af Elísabeth. Bella þýðir falleg.

Ösp; Nafn á trátegund.

Ísabella er fædd í Reykjavík 31 mars 1999. Hún er skírð upp á Fæðingardeild.

Ísabella er skírð út í loftið.


 

 

Gabríel Nói Steinarsson:

Gabríel: hebrska, Guð er styrkur minn. Nafn erkiengilsins (Lúk. 1, 26). 

Nói: úr hebrsku og merkir langlífur (1. Mós. 6,9).

 

Gabríel er fæddurí Reykjavík 24 apríl 2003. Hann var skírður í Breiðholtskirkju.

Gabríel er skírður út í loftið.

 

Sólveig Eggerz Bech:

Sólveig: Máttur Sólar, eða ummyndun á Solveig: styrkur hússins.d

 

Eggerz: er ættanafn en drengjanafnið Eggert er úr þýsku og merkir egg harður. 

Sólveig er fædd í Reykjavík 29 mars 2008. Sólveig var skírð heima á Skriðu 24 maí 2008.

Sólveig Eggerz heitir í höfðuðið á langaömmu sinni Sólveigu Eggerz Pétursdóttir listmálara sem er fædd 1925 og ömmu þeirrar Sólveigu. Sólveig Pétusdóttir Eggerz sem er fædd 1876.  Sólveig er ein af 5 sem heita Sólveig Eggerz og þrjár af þeim eru Pétursdætur. Sólveigar nafnið er líka í móðurætt, en þá sem Solveig og er í Færeysku Petersen ætt Sólveigar.

 

Bech er frá Færeyjum.

Langaamma barnanna var skírð Edith Soffie Bech, foreldrar hennar voru Johan Bech og Sidsel Frederikke Petersen Bech. Bech nafnið kemur frá Færeyjum en þar ákvað Johan Johannesen að breyta því í Johan Á Brekku, danski embættismaðurinn sem sá um nafnabreytinguna skyldi ekki það sem óskað var eftir og gaf honum nafnið Johan Bech nefnið er ekki gamalt en Johan fæddist 1884 og bjó á Tvöroyri en hann lést í opnum bát frá Siglufirði 1944. Foreldrar hans voru Elisebeth Helene Joensen fædd Gertið þið bætt við foreldrum Johan Bech og Sidsel sem voru foreldrar Edith móður Sigríðar móður minnar.  

Foreldrar Johan voru Elisebeth Helene Joensen fædd f. 11.11.1838 og d. 15.11.1923 og faðir hans Jens Jóhannes Johannessen fæddur 24.09.1848 og d. 1913. Mamma Sidsel var Elsebeth Olsen, f. 24.06.1858 og d. ? Pabbi hennar hért Peter Magnussen f. 16.10.1853, d. 1891.f. 11.11.1838 og d. 15.11.1838. Formóðir krakkanna var ríkasta kona Færeyja, uppi á 17 öld. Hún bjó í Húsavík á Sandoy og fór á hesti til kirkju (yfir götuna). Móðir eða amma Sidsel Frederikke Petersen Bech konu Johaans fædd 1890.

Ýmislegt annað:

Einnig eru þau með listablóð. Langi afi þeirra var Óskar Gíslason ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður. Móðir hans var rithöfundur og skrifaði undir nafninu Duld en hét Jóhanna Sigríður Þorsteinsdóttir fædd 1863 .

Smá meira um blóðið sem rennur í þeirra æðum. Brynjólfur langa langa afi þeirra var Brynjólfur sterki (Eggertsson) bóndi á Sjöundá í Rauðarstarndshreppi fæddur 1816 en hann bar stein úr fjöru sem er 281 kílóa steinn, Brynjólfstak  en sagan segir að árið 1845 hafi hann rekist á stein þennan niður í fjöru, bundið um hann burðaról og borið upp á Brunnagrund við Látrabjarg, þar sem steinninn er nú.. http://kraftaheimar.net/?p=1562  Steinninn liggur nú í fjöru á leið út á Látrabjarg ( í Látravík) og ekki margir sem geta lyft þeim steini upp. Langi afi þeirra Helgi var dugnaðarfálkur, alin upp í þurrabúð í Kolsvík (bjó í torfkofa). Hann var undir ánauð og keipti sér leyfisbref. Eignaðist marga hluti svo sem fyrstu vélsögina vestur og gaf konu sinni fyrstu þvotavélina vestur (konurnar á Patró skildu ekki hvað hún var löt að nenna ekki að þvo þvottinn) og varð húsasmíðameistari. Þegar hann lést átti hann t.d 4 íbúðir. Kjaftasagan seigir að forfaðir þeirra hafi verið Frakki og í Færeyska blóðinu sé smá Tyrknest blóð því einhver færeyingurinn hafi rænt konu af Tyrkneskum bát.