

Mynd 85 af 96
Í dag er yngsta barnið hún Sólveig Eggerz orðið 12 ára Það hefur verið ánægjulegt að fylgja litla ákveðna, óttalausa, uppátækjasama snillingunum okkar þessi ár Hér að neðan er sjálfsmynd sem hún tók í sjálfskipaðri einangrun okkar sem hefur staðið síðan 5. mars. Þetta verður pínu öðruvísi afmæli þar sem engir gestir fá að koma og stórfjölskyldan fer ekki út að borða. Bræður hennar gáfu henni viðbættur í Sims 4 þannig að hún hefur eitthvað að grípa í. Ótrúlegt hvernig híper félagslega daman með stóran vinahópinn og sínar sjö æfingar á viku aðlagaðist inniverunni hratt. Nú er hún bara rólegur dundari sem skilar miklum afköstum í heimanáminu og setur sjálfri sér markmið. T.d. ákvað hún að gera eina bls í stærðfræði á dag og sér alveg sjálf um það. Nú vil daman fara í einkaskóla því að hennar sögn þarf hún meiri búst í námið. Daman sem ákvað 6 ára að hún ætlaði í Versló og er ekki enn búin að skipta um skoðun sex árum síðar
Skrifa athugasemd