Systkina hópurinn
 

Janúar

Mynd 134 af 164

Smá fyrir þá sem fá fyrir brjóstið að sjá barn með byssu. Það er skoðun okkar hjóna í þessum tölvuleikjaheimi þar sem börn verða ónæm fyrir skotvopnum að það sé mikilvægt að kenna þeim um meðferð vopna og hversu hættuleg þau séu. Gott dæmi er að þegar Steinar var lítill mátti hann ekki leika við dótabyssur, þannig að gaurinn fór þegar enginn sá til og lék við alvöru bissur sem faðir hans hafði átt. Á okkar heimili eru byssur og þær læstar og skot læst í öðrum skáp. Sólveigu hefur verið kennt hversu hættuleg skotvopn eru. Þau séu notuð til þess að skjóta dýr til átu og þó aðalega til að skjóta í mark. Þegar hún fékk Nerf dótabyssu þá hengdi hún t.d. upp skotmark í herberginu og skaut í mark. Henni efur líka verið kennt um meðferð skotvopna og öryggisráðstafanir. Einnig þær ströngu relgur sem fylgja þeim og einnig þær mikilvægu reglur sem eru á skotsvæðum. Sólveig hafði frá því hún var lítil sýnt byssum mikinn áhuga en frá því hún fékk að prófa sjálf hefur hún ekki litið við þeim. Þetta var ekki lengur bannað og spennandi!

 


Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti