

Kæra fjölskylda
Frábært að heyra hvað allt gengur hratt og vel fyrir sig, bara "nokkrir" dagar í að þið sameinist, ekki furða þó að þið séuð orðin spennt.
gangi ykkur vel í undirbúningnum
kveðja
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Ég er bara alltaf hálf snöktandi þegar ég fer inn á síðunna hjá ykkur, ég ætla að vona að hann verði með einhver bönd svo mamma hans Vigfúsar Villiams geti nuddað þau í taugæsingnum :) er að fara til Svíðþjóðar á morgun, en sem betur fer eru Svíar tölvuvæddir þannig að ég fylgist vel með kveðja Begga
Má til með að "hita upp" gestabókina fyrir komandi kvitt þegar við verðum farin af landi brott og bókstaflega höngum inni á síðunni og skype-inu!
Lovjú :0)
Innilega til hamingju með allt:) bara æðislegt. Tárin leka bara þegar ég er að lesa í vefdagbókinni. Finnst þetta svo æðislegt sem þið eruð að gera.Gangi ykkur rosa vel með framhaldið:)
Kæra fjölskylda
Innilega til hamingju með afmælisdagana báða. Aldeilis frábær júlímánuður þetta árið hjá ykkur :)
bestu kveðjur í öllum undirbúningi og pappírsvinnu
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Elsku fjölskylda innilega til hamingju með fréttirnar af litla drengnum og 2 ára afmælið hans. Það er alveg ómetanlegt fyrir okkur sem erum að bíða eftir fréttum af okkar börnum í Kólumbíu að fá að fylgjast með ykkur sem undirbúið og haldið í ævintýraferðina miklu. Hann er alveg yndislegur hann Vigfús William og vonandi koma ferðadagsetningar fljótlega svo þið getið hitt hann sem allra fyrst. Kærar kveðjur frá Ástu og Ingimari sem eru í biðinni miklu.
Kæra fjölskylda
Innilega til hamingju með yndislega fallega drenginn ykkar hann Vigfús William...þvílíkur sjarmör...Það eru sko spennandi tímar framundan hjá ykkur. Vonandi komist þið fljótt út til að knúsa gullmolann ykkar.Gangi ykkur vel.
Bestu kveðjur frá Akureyri
Inga (mamma Reynis Yiyou sem kom heim í september 2008 frá Kína :)
Til hamingju með báða afmælisdagana.
Þið getið fengið símann sem við fórum með út ef þið viljið, þið verið bara að hafa samband við Jönu hún er með hann (það sparar mikla skriffinnsku af þurfa ekki að kaupa síma úti). Gangi ykkur vel.
kveðja
Gunna, Kristján og Benedikt Davíð
Dálítið langur fattarinn á þessum bænum... þó við séum á næsta bæ ;-) Er búin að sitja hálfgrátandi yfir þessari dýrð og dásemd síðasta hálftímann. Vá hvað hann er fallegur :D Mikið innilega samgleðst ég ykkur. Hjartanlega, hjartanlegar hamingjuóskir til ykkar allra. Við hlökkum öll rosalega til að fá að hitta nýjasta nágrannann þegar hann kemur heim :-)
Knús og kreist og bestu kveðjur handan götunnar
Innilega til hamingju með fertugsafmælið og tveggja ára afmælið. Fylgjumst spennt með fran Sverige;)
Til hamingju með soninn hann er ótrúlega flottur og til hamingju með afmælin ykkar líka. Gangi ykkur allt í haginn í því sem er framundan hjá ykkur.
Og hamingjuóskir til mömmunnar á bænum með fertugsafmælið!:)
Gígja og co.
Innilegar hamingjuóskir með 2ja ára afmæli litla Kólumbíuprinsins ykkar:)
Knús og kveðjur,
Gígja, Tommi og María Mist Kólumbíuprinsessa:)
elsku Arnar frændi, Þórgunnur, Andrea og Arna
innilegar hamingju óskir með langþráða ósk sem rættist á mánudaginn
glæsilegur fallegur drengur hann Vigfús William og innilegar óskir á afmælisdaginn.
Vonum og næstu vikur eigi eftir að verða fljótar að líða.....
Hlökkum mikið til að fá hann heim í fjörðinn fagra,
Konni og Vigfús eiga ábyggilega eftir að leika mikið saman
ástarkveðjur úr Hlíðarvegi 34
knús og kossar
Elsku Þórgunnur og Arnar. Innilega til hamingju með 2 ára afmæli sonar ykkar;) Við sendum hlýjar kveðjur alla leið til Cali í Kólumbíu til hans.
Til hamingju með afmælisdaginn þinn í gær Þórgunnur.
Gangi ykkur vel með pappírsvinnuna sem þarf til þess að geta fengið dagsetningu á stóra daginn.
Þið vitið af okkur ef við getum eitthvað hjálpað ykkur, ekki hika við að hafa samband.
spurning líka hvort þú heyrir í mér áður en þú ferð að versla hin ýmsu lyf fyrir ferðina. Við eigum helling sem við notuðum ekki neitt...
Elsku þú...fallegi prins....Vigfús William. Innilega til lukku með afmælið og þið öll með þetta allt saman. Myndin hangir upp á ísskáp hjá mér þar sem ég dásama drenginn á hverjum degi og get því engan veginn ímyndað mér hvernig ykkur hlýtur að líða. Þetta er bara yndislegt allt saman og við sendum ykkur knús í tilefni dagsins(skruppum heim að þvo úr bústaðnum og ég náttúrulega ÞURFTI að kíkja hingað!!! ;-))
Ég held ég ætli meira að segja bara að kveikja á kerti fyrir afmælisbarninu í kósíheitunum í Tónabæ á eftir ;-) bestu kveðjur á ykkur öll.....
Elsku Vigfús William gullmolinn okkar allra. Hamingjuóskir til þín á tveggja ára afmælisdegi þínum. Elsku Þórgunnur, Arnar og systur.. Til hamingju með afmæli sonarins og bróa litla.
Satt er það að góðir hlutir gerast hægt og vel þess virði að bíða eftir svona guðsgjöf.
Kv- Sigga föðursystir:)
Til hamingju með afmælið þitt elsku litli Vigfús William :)
Það verður hugsað til litla snáðans á mörgu heimilinu í dag, ekki spurning.
Til hamingju með strákinn ykkar, næst verður haldið upp á þetta með pomp og prakt :) Við misstum líka af 2ja ára afmæli Jóhannesar Fei, svolítði erfitt en svona er þetta nú bara.
Kærar þakkir fyrir gærdaginn, ótrúlega gaman að koma og finna gleðina í húsinu ykkar og fá að taka þátt. Ekki verra að fá svona góðar og hollar veitingar :)
Sendum kossar og knús í bæinn ykkar,
Birna, Birgir, Hrönn, Harpa Mukta, Hrund Nilima og Jóhannes Fei
Elsku Þórgunnur, innilega til hamingju með daginn þinn í dag ;) Og elsku þið bæði innilega til hamingju með prinsinn ykkar - hann er ómótstæðilegur elsku kallinn ;) Vonandi hafið þið átt góðan dag í dag.
Bestu kveðjur til ykkar
Margrét og co.
Innilega til hamingju með daginn Þórgunnur!!!! Það er bara hver risa dagurinn hjá ykkur á fætur öðrum.... hlökkum til að fylgjast með ykkur og frænda með þetta gríðarlega fallega nafn!
til hamingju með daginn Þórgunnur:) ég ætla að fá að laumast með smá gjöf til þín á morgun:) er það ekki í lagi?? :) haha
Elsku Þórgunnur - til hamingju með daginn og kæra fjölskylda til hamingju með drenginn, hann Vigfús William... hann er náttúrulega bara fallegur :D
Sælar elsku vinkona og til hamingju með daginn. Var að skoða nýjasta fjölskyldumeðliminn. Hann er æði og nafnið flott. Til hamingju öll.
Kveðja,
Svanhvít.
Elsku Þórgunnur mín ,
Til hamingju með daginn þinn í dag =)
Tóm gleði að ná þessum tug , flott tala !
Njóttu þín og lífsins í dag og alla aðra daga elskan mín =)
Stæðsta gjöfin er þó að vera búin að fá Vigfús William , ( fallegt nafn )
vona þetta verði fljótt að líða og hann kominn von bráðar í Ólafsfjörð . Yndisleg tilfinning.
Koss & knús á þig elskan mín.
Þetta er bara yndislegur tími:) Njótið þess!:)
Knús og kveðjur,
Gígja, Tommi og María Mist.
Elsku vinkona og fjölskylda!
Innilega til hamingju með litla Vigfús William! Hann er guðdómlegur og ekkert minna en það! Til hamingju með nafnið hans fallega líka, var í svo mikilli geðshræringu í morgun að mér láðist að spyrja eftir nafni :) En þetta nafn smellpassar á þennan flotta strák! Hljóp strax í tölvu þegar við renndum í hlað, búin að bíða í allan dag eftir að sjá hann!
Við erum sannarlega búin að bíða lengi eftir þessum fréttum, en svo þegar myndin af honum er komin er enginn efi um að þetta er akkúrat ykkar strákur, svona gerast hlutirnar bara. Hann er glaðlegur og fallegur og það verður stór stund þegar við fáum að hitta hann líka!
Jóhannes Fei fær þarna strákavin líka :)
Hlakka til að fylgjast með ykkur næstu vikur og mánuði..
Sjáumst á laugardaginn, knús og kossar á alla í tilefni þessara gleðifrétta :)
Birna, Birgir, Hrönn, Harpa Mukta, Hrund Nilima og Jóhannes Fei
Vá, guð hvað hann er yndislegur. Innilegar hamingjuóskir með nýja fjölskyldumeðliminn - hann er nátttúrulega algert krútt og ekkert smá flottur. Nú er bara að klára pappírsvinnuna og þrýsta á að komast sem fyrst út að ná í prinsinn.
Enn og aftur - til lukku með drenginn.
Anna, Gummi og tvíburarnir
Elsku Þórgunnur og fjölskylda! ég óska ykkur innilega til hamingju með fallega drenginn ykkar og nafnið hans,vonandi komist þið sem fyrst til hans til að njóta.Kveðja Elva H.
Kæra fjölskylda
Innilega til hamingju með fallega gullmolann ykkar. Við erum hluti af "stór - ættleiðingarfjölskyldunni" og fengum þessar frábærar fréttir í gegnum aðra fjölskyldumeðlimi þar. Mikð erum við glöð fyrir ykkar hönd að þessi gullfallegi drengur er ykkar og vonandi komist þið sem fyrst út að sækja hann.
Gangi ykkur sem best í undirbúningnum, við eigum eflaust eftir að kíkja hér inn og fá að fylgjast með ykkur, enda fylgir því alltaf svo mikil gleði þegar að nýtt barn bætist í hópinn.
bestu kveðjur
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb (kom heim frá Indlandi í júní 2006)
Elsku Þórgunnur Arnar Andrea og Arna ,
Til hamingju elskurnar mínar , þetta er yndislegt =)
Sit hér stjörf og horfi á þennan gullfallega dreng , bara dásamlegur.
Ekki hægt að hætta að horfa á hann , hann er svoooo heillandi !
Gangi ykkur allt í haginn elsku vinkona og svo er annar stór dagur hjá þér á morgun dúllan mín !!! =) ( velkomin í hóp 40 og fallegra haha haha =) )
Bara allt að gerast , magnað.
Stórt knús og margir kossar á ykkur .