

Ég veit, ég veit........við höfum verið afar löt viðað uppfæra síðuna,sorry :( það eru bara allir fjölskyldumeðlimir á landinu og þá einhvern veginn dettur þetta niður.
Lífið gengur sinn vanagang, sumarið búið að vera fremur kalt og blautt og fáar útilegur sem Vigfúsi William finnst mjög miður. Við erum hins vegar búin að fá marga góða gesti til lengri og skemmri tíma. VWA veit held ég fátt sekmmtilegra en að sofa í "tjaldinu". Þó erum við búin að ná því að fara öll saman
eina helgi í skóginn. Dásamlegt að hafa stelpurnar með sér. Vigfus William fagnði 4 ára afmælinu sínu með hita og ælupesti! Til allrar lukku höfðum við haldið upp á daginn helgina áður, Vigfús var nefnilega farinn að bíða eftir þessum merkisdegi þegar hann fengi pakka og það áttu sko að vera bílar í öllum pökkunum og að sjálfsögðu Bósakaka. Hann var alsæll eftir daginn og gat vart út úr húsi farið fyrstu dagana á eftir hann var svo upptekinn af nýja dótinu
Nú er leikskólinn að hefjast á ný og Vigfús kemst vonandi sem allra fyrst til talmeinafræðings, það vantar ennþá nokkur hljóð og að kveða fastar að. Við höfum verið dugleg í tunguæfingum í sumar en vantar náttúrulega fagmann til að leiðbeina okkur frekar 
Nú svo er örugglega næsta skref að gera ýtarlega skýrslu fyrir Kolumbíu nú þegar líður að tveggja ára afmæli okkar með þennan gullmola!
Loksins nýjar myndir.
Páskafríið að skella á, loksins og þá ætlar stór fjölskyldan að sameinast
Það er, Andrea og Arna koma heim sem gleður okkur hin ákaflega mikið og þó sérstaklega Vigfús William. Annars er hann búinn að vera veikur í viku og voru afi og amma svo góð að sækja hann bara svo hann fékk marga góða daga með þeim. Honum líkar það nú ekki illa!

Hlökkum mikið til að fara í fjörðinn en við ætlum að eyða páskunum á Þverá og hjónakornin fara náttúrulega í gleðigönguna á föstudaginn langa kringum vatnið. Fórum í fyrra 17 km í kafsnjó og minnumst þess enn með bros á vör en nú er allt autt.....jiibbbíí svo þetta verður létt verk
Þetta verða sannkallaðir fjölskyldupáskar þar sem bróðir og co eru líka að koma norður og dagskráin orðin full af gleðilegum samverustundum-enda ekkert mikilvægara.
Gleðilega páska
Marsmánuður tók á móti með blíðu í veðri og ferð á Barnadeild FSA. Þar þurftum við að vera í einn sólarhring þar sem VWA þurfti að fá næringu í æð til að koma öllu á rétt ról. Hann hafði verið slappur og sjálfur sér ólíkur frá því á mánudag. Seinnipart á þriðjudag var eins og slökkt væri á barninu-fremur óhugnalegt verð ég að segja. Á fimmtudag förum við svo með hann hér á Húsavík til læknis og öllum til lukku þá sendi hann okkur beint á FSA. Pabbinn hringdi nefnilega í frúnna í vinnuna og sagði einfaldlega; Þórgunnur, þú verður að koma heim núna!
Eftir rannsóknir kom í ljós svæsin "strepakokka" sýking en nota bene Vigfús fékk ekki kvef, hita né nokkuð slíkt. Hann nánast hætti að borða og stríð var að koma nokkrum drykk ofan í hann.
Og ég get sagt ykkur það að fimm fullorðnir nægðu ekki til að hægt væri að ná góðri blóðprufu úr barninu! Ekkert gekk fyrr hann hafði fengið smá slakandi, þvílík átök í einum litlum, léttum kroppi.
Nú er hann hinn hressasti og aftur farinn að borða eins og fullorðinn
heima hjá sér.
Athugasemdir hafa borist að nú sé 2011 ekki aðventa! Systir og co og afi/amma eru á landinu og því höfum við verið löt hér á blogginu. Við reynum því aðeins að bæta úr því
Vigfús William tekur miklum framförum í tali og þroska. Nú æfum við sérstaklega s og k. Mamman hafði nú af þessu áhyggjur en leikskólasérkennarinn sagði henni nú bara að anda rólega í bili. Annars mætti halda að hér væri að koma vor! Búið að vera snjólaust lengi, allt autt og í gærkvöldi úrhellisrigning. Einhverra hluta vegna erum við alveg til í vorið 
Arnar vinnur alltaf á Dalvík og býr meira og minna á Ólafsfirði
Við erum ekki alveg nógu ánægð með það fyrirkomulag og krossum fingur.
Allt að gerast á aðventunni, má með sanni segja. Draumaprinsinn hann Vigfús William hefur eignast sitt alvöru rúm og sefur orðið í sínu herbergi
Þvílíkur snillingur. Hann er ákaflega montinn með "húmmið" sitt og leggst þar með Elmo og sofnar án nokkurrar fyrirhafnar og sefur til 7.00 sem er ótrúlega frábært, takk fyrir það, elsku Vigfús. Fyrsta pissið kom líka nú á dögunum í klósettið og þvílík kátína. Foreldrarnir ákaflega stoltir, eins og annað eins hafi aldrei gerst fyrr. Annars er gleðin mest yfir því að hann skuli vera farinn að spá eitthvað í þetta allt saman. Síðast þegar hann pissaði ber þá sló á hann á "félagann" og sagði í sífellu; Hættu, hættu!
Fyrsta foreldraviðtalið á leikskólanum var nú á dögunum og eins og við var að búast allt glæsilegt og gengur eins og í sögu. Þarf reyndar að efla Vigfús í að láta vita af sér og sérstaklega ef gert er á hans hlut. Hann nefnilega lætur það yfir sig ganga og snýr sér bara að einhverju öðru. Leikskólakennararnir og starfsfólkið á Grænuvöllum eru líka algjörir snillingar í sínu starfi.
Stekkjastaur kom svo við í fyrsta skipti hjá VWA í nótt og skildi eftir bíl og límmiða. VWA skilur náttúrulega ekki neitt í neinu
en jólasveinarnir koma samt, foreldrunum til mikillar gleði.
Nemó og Leikfangasaga koma sterk inn nú fyrir jólin sem og Jóla Shrek. Og á hverjum degi gleður VWA okkur með miklum söng og einstökum danstilburðum 
Hér er annasamur október að baki og nú styttist verulega til jóla
. Vigfús William er alltaf sama gullið og allt gengur í sóma þar. Orðaforðinn fer hratt stækkandi og hann reynir orðið við öll orð. Hann fékk fyrstu alvöru felnsuna sína og var heima í rúma viku, takk fyrir. Hitinn var mikill og kvefið. Einhverra hluta vegna var amma hans , Svansa viss um að hann væri með höfuðverk líka, snillingur 
Við skruppum í höfuðborgina og fórum í Húsdýragarðinn og verð ég að segja að það er dýrasti göngutúr sem ég farið í ! Einkasyninum fannst nú lítið merkilegt að skoða þar og dýrin eins og hvert annað húsgagn-held að hann hefði skemmt sér mun betur hefði hann fengið að rölta um bílastæðið fyrir utan garðinn og velta fyrir sér bílategundum og litum
. Það kemst fátt annað að þessa dagana. Hann kann Cars utanbókar og er alltaf að opinbera hvað gerist næst í myndinni. Okkur foreldrum til léttis koma þó Dýrin í Hálsaskógi sterk inn núna, hjúkket!
Litla fjölskyldan fór í Ólafsfjörðinn og kíkti í gegnum Héðanfjarðargöng-þetta er náttúrulega snilld fyrir þá sem þar búa. Gistum hjá Þórði og Hófý og áttum góðar fjölskyldustundir með ömmu Freyju.
Nú Andrea er komin frá Ameríkunni og erum við afar glöð að vera búin að hitta hana aðeins. Hún ætlar hins vegar að vera í borginni eitthvað, þar sem hún hefur vinnu með skólanum. Hún er svo skynsöm stúlka. Hún kemur líka reynslunni ríkari eftir tveggja og hálfs mánaðar dvöl í faðmi litlu systur minnar og fjölskyldu. Við nutum þess um helgina síðustu að vera öll heima sama, Andrea og Arna, Vigfús William og foreldrarnir. Það var meira að segja keypt gos :) en það gerum við orðið bara til hátíðarbrigða.
Vigfús William er heilmikið farinn að velta fyrir sér hvar afi sé eiginlega
. Hann spyr á hverjum degi nú orðið ( en afi og amma Svansa eru á Spáni) í gær bætti hann svo við og sagði; Mamma, afi heim! Verður maður eitthvað krúttlegri ?
Við höfum verið ákaflega löt að setja inn færslur, ég veit það! Vildi þó koma inn að loksins er vigtin farin að telja af einhverju ráði hjá VWA. Hann er orðin tæp 15 kg........loksins meira en rúm 12. Þegar við fengum hann var hann um 10 kg. Annars er allt gott. Vinnan hjá frúnni komin á fullan skrið og nóg að gera, eiginmaðurinn á síðustu önninni í VMA, svo er bara að krossa fingur að hann fái vinnu hér á víkinni :) Leikskólaveran gengur vel og Vigfús er alltaf janfsæll og glaður. Orðaforðinn fer hratt stækkandi svo og stjórnsemin. Foreldrarnir þurfa reyndar að passa sig á þjónustunni sem þeir veita-hún er stundum kannski aðeins of mikil
. Frúin er alltaf á leiðinni að hefjast handa við "Lifebook" handa Vigfúsi sem vonandi fer nú að verða að veruleika.
Sumarið var fljótt að líða en haustið er náttúrulega búið að vera dásemd og við fengið góða gesti í helgarheimsóknir.
Svakalega sem við höfum verið löt við að koma inn í upplýsingum hér fyrir fjarstadda ættingja. Eiginlega bara til skammar! Hér gengur allt eins og í sögu og allir hressir. VWA talar og talar og bætir í orðaforðann á hverjum degi nú eftir að hann byrjaði á leikskólanum. Hann er mjög ánægður þar og allt gengur vel en ánægðastur er hann þó þegar hann sér okkur koma að sækja sig, þvílík gleði sem af honum skín
. Núna kemst ekkert annað að hjá honum en Cars og mundi hann helst vilja fá að horfa á myndina allan sólarhringinn fengi hann einhverju ráðið. Við erum líka byrjuð að ræða klósettmálin og þykir honum mjög spennandi að fá að fara á klósettið !
Andrea , didda er farin að spóka sig í Ameríku og við söknum hennar nú þrátt fyrir Skype
en hún er úti að læra ensku, svo er hún farin að æfa fótbolta og Roller Derby ( svona eins og í Whip it) svo hún hefur það bara gott hjá kæru systur og fjölskyldu.
Í dag er akkúart ár frá því að við eignuðumst gullmolann, hann VWA. Nú er hann kominn á leikskóla og gengur alveg glimrandi vel enda eru stúlkurnar á deildinni hans alveg einstakar.
Þá er fjölskyldan búin að koma sér fyrir á Húsavík
Síðustu dagar hafa verið góðir og margir góðir gestir runnið hjá. Frúin átti afmæli á fimmtudag og svo einkaprinsinn á föstudag. Afmælisveislan var svo haldin á mánudag sl. Hann tók þessu öllu með stóískri ró og gróf sig nú bara í pabba hálsakot þegar afmælissöngurinn var sunginn. En yndislegur dagur í alla staði og Vigfús William mörgum BÍLUM ríkari og það líkar honum nú vel.
Við höfum verið dugleg að ganga um bæinn og læra á umhverfið hér á Húsavík. Það verður að segjast alveg eins og er að Húsavík er mjög fallegur bær og oft svolítið "útlenskur" einhvern veginn. Í gær borðuðum við t.d. úti við Söllku og drukkum kaffi niður við höfn á Skuld, frábærir staðir báðir tveir. Frúin hugsaði einmitt með sér eftir gönguna í gær að hún yrði að fara að lesa sögu staðarins, því hún hefur á tilfinningunni miðað við byggingar og annað að hér hafi verið svolítið öðruvísi líf til forna en á Dalvík eða Ólafsfirði. Allir sakna þess auðvitað að hafa Andreu ekki hjá okkur í þessu tilstandi öllu en við vitum að hún er í góðu yfirlæti hjá "sys" Lísebetu og co
Arna Dögg hefur hins vegar verið hjá okkur þessa fyrstu daga og það er yndislegt. Andrea kemur til okkar þann 15, vonum við en hún fer til Bandaríkjanna þann 19. ágúst og ætlar að vera fram að jólum
Það verður lengsti aðskilnaður mæðgnanna ! Ekki laust við að frúin kvíði smá fyrir en það verður nóg að gera og vonandi bara agalega gaman og gagnlegt hjá Andreu.
Þeir frændur Vigfús William og Oddur Atli hafa verið óaðskiljanlegir síðan Oddur kom til landsins. Algerlega frábært og yndislegt að horfa á þá mynda vinatengslin og fylgjast með þeim leika sér saman og ganga um hönd í hönd, algjörir gullmolar. Vona að ég geti bráðlega sett inn myndir af þeim félögum í kjólfötunum sínum en Andrea hefur verið að mynda þá fyrir okkur systur. Það er algjörlega óborganlegt að horfa á eftir þeim þar sem þeir leiðast og röfla hvor við annan í göngutúr um túnið hjá ömmu og afa
Ómetanlegir !