Vigfús William Arnarsson
 

Leiðin til Kolumbíu

Hér kemur inn ferlið frá þeim degi að hætt að vera taka inn pilluna og biðin hófst. Væntanlega kemur þetta inn smá saman eftir minni og tíma.

Í kjölfar giftingar 2000 var ljóst að eðlilegasta framhaldið væri lítið barn. Fyrir eru í fjölskyldunni Andrea Sif, fædd 1991 dóttir Þórgunnar og Arna Dögg, fædd 1996 dóttir Arnars.

Þegar hugsað er til baka um allar hormónamerðferðir kemur frasi úr Friends upp í hugann sem gildir sjálfsagt fyrir okkur hér. Munið þegar Monica og Chandler voru að berjast í þessu og læknirinn sagði við þau en beindi orðum sínum að Monicu; "Your juterus is a hostile environment!"   Við höfum ekki fengið þetta svona beint í andlitið en sennilega er það nú bara vegna góðmennsku læknanna á Art Medica.

Eftir að ár var liðið frá því að getnaðarvarnir voru lagðar á hilluna var komin leiði í hjónin og óþreyja. Þar með hófst fyrsta hormónatöflumeðferðin af þrem. Þær meðferðir reyndust frúnni fremur þungar andlega og var hún afar viðkvæm, uppstökk og grátgjörn á köflum en allt gekk nú samt sinn vanagang og ekkert gerðist frekar en fyrri daginn. En það má ekki gleyma skemmtilega kaflanum og húmornum....þetta gerist náttúrulega bara eins og í bíómyndunum. Á  réttum tíma er rúmið græjað og kallað ; Komdu núna!" Að loknu verki er eitthvað sett undir mjaðmirnar til að reyna að hjálpa til, nú eða bara staðið nánast á haus, alla vega skulu fæturnir UPP{#emotions_dlg.laughing} Ekkert gekk og þá voru gerð öll nauðsynleg tékk á hjónakornunum, speglanir og fleira.

Jæja þá voru töflurnar þrautreyndar og ný skyldi eitthvað nýtt fundið. Bíddu við, var ekki starfandi rússneskur læknir  í heimabænum sem nánast gat reddað öllu með óhefðbundnum lækningum. Heppnin okkar megin núna! Það var pantaður tími, mætt á svæðið og vandamálið útskýrt með handapati og alls kyns táknmáli. Jú, læknirinn skildi þennan vanda vel og talaði eitthvað um rafhleðsluna mína, hún væri ekki nógu góð svo mér var skellt í eitthvert rafsegultæki sem átti að jafna allt saman. Þarna mætti frúnni þó nokkuð oft, sat með sérkennilegan höfuðbúnað og stöng í hönd sem sendi eins sterk rafboð og hún þoldi upp í höfuð {#emotions_dlg.surprised} Það sem manni datt ekki í hug. Jæja svo kom að því þegar frúin hafði þolað rafstuð í nokkurn tíma að læknirinn sagði: Þú núna beint heim og í rúm, ekki bíða kvöld, núna strax nú er góðan tími! Það er hægt að hlæja eftir á en þarna var frúnni ekki hlátur í huga. Nei, hringdi beint í bóndann og sagði honum að pilla sig upp í rúm, nakinn, hún væri á leiðinni og þau ættu að gera það NÚNA, læknirinn sagði það. (Það skal tekið fram að læknirinn var alvöru læknir frá Rússlandi mátti bara ekki vinna á sjúkrahúsum hér heima og margir hafa fengið meina sinna bót hjá honum). En allt kom fyrir ekki- engin ólétta.

Þá var komið að næsta skrefi tæknifrjóvgun. Vorum við þá bæði búin að fara í alls kyns tékk og allt virtist í góðu lagi hjá báðum og allt eðlilegt. Við komum okkur í samband við Art Medica og tók doktor A fyrst á móti okkur í skoðun. Frúin verður nú að segja alveg eins og er að það var algjörlega ný upplifun frá þeim kvensjúkdómalæknum sem hún hafði hitt fram að því. Doktor A er algjörlega frábær og þau öll á Artinu.

Jæja, til að gera langa sögu stutta þá var farið í gegnum 3 tæknifrjóvganir án árangurs {#emotions_dlg.yell} En auðvitað var margt broslegt í ferlinu.