

Þegar við komum heim reynum við að hafa það rólegt og koma rútínu á litla gullmolann. Við fáum dýrmætar 4-6 vikur með Vigfúsi William úti. Sá tími verður án efa ómetanlegur fyrir hann og okkur.
Við viljum biðja ykkur sem líka bíðið spennt eftir hitta litla gæjann þegar við komum heim aftur að hringja fyrst og athuga hvernig það standi á heima fyrir áður en þið komið í heimsókn. Sem sagt: EKKI KOMA ÁN ÞESS AÐ TALA VIÐ OKKUR FYRST.
Regla númer eitt, tvö, þrjú og so videre sem gildir fyrir alla er að enginn sinnir grunnþörfum Vigfúsar nema foreldrarnir. Þar eigum við að enginn gefur honum að borða eða huggar og skiptir o.s.frv annar en við.