Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
 
 
 

Fyrstu árin

Fæðingin

Gunnar Hólm
Gunnar Hólm fæddist þann 27. október 2007 klukkan 04:58.
Fæðingin fór fram á Horsens Sygehus og Rikke Wang & Vibe Andersen tóku á móti honum.
Þegar hann fæddist var hann 4518 grömm eða 18 merkur og 54 cm að lengd.
Hárið hans var kolsvart á litinn og augun dökk blá
Viðstödd fæðinguna voru Pabbi minn og Jóna amma.
Eftir að hann fæddist fórum við á fæðingarhótelið og hvíldum okkur eftir öll átökin.
Svo um kvöldmatarleitið yfirgáfum við sjúkrahúsið og fórum heim í litla kotið okkar.
Sigurður Jenni:
Litli bróðir fæddist þann 24. október 2010 klukkan 00:54.
Fæðinging fór fram á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Inga Vala ljósmóðir tók á móti honum
Þegar hann fæddist var hann 4010 grömm eða 16 merkur og 54 cm að lengd og var töluvert nettari en Gunnar stóri bróðir
Hárið hans var gullitað og augun dökk blá
Pabbi var bara viðstaddur fæðinguna og var ómetanlegur stuðningur fyrir mömmu
Eftir að hann fæddist fékk mamma fína stofu útaf fyrir sig til að kvíla sig með nýja fjölskyldumeðliminum. En pabbi fór heim til Gunnars að kvíla sig.
Mamma gisti á fæðingadeildinni í 1 1/2 sólarhring með litla bróður og fékk nægan tíma til að kvíla sig.
Mánudaginn 25. október fórum við svo heim til pabba og Gunnars sem voru kátir að fá okkur heim ;)
Litla systir:
Litla systir fæddist þann 8. júní 2014 (hvítasunnudag) klukkan 23:11
Hún fæddist í vatni heima í Grænamýri 4 og kom í sigurkufli í heiminn. Mamma tók sjálf á móti henni en Malla og Birna ljósmæður voru viðstaddar ásamt pabba, Sigga afa og ömmu Jónu.
Þegar hún fæddist var hún 4050 gr eða 16 merkur og 52 cm. Hún var með svart hár og dökkblá augu. Fingurnir og tærnar voru mjög langar og mjóar andsætt figrum bræðra hennar.
Bræðurnir sváfu á meðan hún fæddist en vöknuu eftir að hún fæddist og komu fram til að skoða hana. Gunnar var frekar feimin við litlu systur en Jenni sýndi henni mikinn áhuga.

Skírnin

Gunnar Hólm:
Skírnin fór fram daginn fyrir páskadag eða þann 22. mars 2008 í Hólakirkju í Eyjarfirði.
Séra Hannes Örn Blandon skírði mig nafninu Gunnar Hólm.
Presturinn gerði skírnina minnuga með því að gleyma sér
"aðeins" svo pabbi varð að hringja og minna hann á athöfnina
en ég fyrirgaf honum það strax því mér fannst svo gaman að spjalla við hann ;)
Skírnarvottar voru Jóna amma og Rósa amma
Á skírnardaginn var snjór en hlítt og gott veður.
Veislan var haldin heima hjá ömmu og afa á Akureyri og lukkaðist mjög vel
...
Sigurður Jenni:
Skírnin fór fram þann 4. desember 2010 heima hjá ömmu og afa í Sandgerði
Séra Sigurður Grétar skírði mig nafninu Sigurður Jenni
Siggi afi, Elva og Telma gerðu athöfnina eftirminnilega með því að spila undir sönginn og var það rosalega fallegt
Skírnarvottar voru Jóna amma og Gunnar afi
Veislan var svo haldin heima hjá ömmu og afa strax eftir athöfnina og heppnaðist bæði athöfnin og veislan mjög vel
Á skírnardaginn var hlítt og gott veður og alveg snjólaust eins og er svo oft á suðurnesjum

Afmæli

Ég hélt 2 afmælisveislur í október 2008, eina fyrr ættingja og eina fyrir vini mína
Veislan var haldin heima hjá ömmu og afa á Akureyri.
Kakan mín var súkkulaðikaka með fullt af nammi og með 1kerti.
Aðal afmælisgjöfin var kastali frá Ævari og Antoni

Jól

Gunnar Hólm:
Fyrstu jólin hans Gunnars vorum við litla fjölskyldan saman á kollegínu í Horsens.
Veðrið var mjög hlítt og lyngt...það var enginn jólasnjór.
Hann var í eins jakkafötum og pabbi sinn, sem Tiddi vinur okkar gaf honum í fæðingargjöf.
Í jólagjöf fékk hann fullt fullt af fötum ásamt hringlum og nagdóti. Einnig fékk hann leikteppi og ömmustól.
Hann fékk jólamjólk að drekka um 7 leitið áður en mamma og pabbi byrjuðu á jólamatnum, og svo sat hann í ömmustólnum uppá borði og horfði á þau borða matinn sinn.
Eftir matinn sofnaði hann á meðan mamma og pabbi opnuðu alla pakkana.
Um áramótin komu Maggi og Stína ásamt bumbubúa í mat, og auðvitað fékk Gunnar mestu athyglina.
Hann skiftist á að sofa og vaka allt kvöldið og fram undir morgun því auðvitað vildi hann taka þátt í gleðskapnum. En ég svaf í gegnum alla flugeldana án þess að rumska.
......
Sigurður Jenni:
Fyrstu jólin hans Jenna voru haldin í Sandgerði hjá ömmu og afa.
Það var ekta jólaveður, snjórinn kom á þorláksmessu og fór á Jóladag.
Jenni var í sama dressi og Gunnar þegar hann hélt sín fyrstu jól og voru bæði Gunnar og pabbi í svipuðum fötum svo þeir feðgar tóku sig vel út :)
Hann fékk aðallega föt í jólagjöf en líka hringlur og annað dót.
Hann var mjög rólegur allt kvöldið og svaf mestan tíman, svo Gunnar sá um að opna alla pakkana mína :)
Um áramótin var pabbi farinn norður og vorum við bræður hjá mömmu á Sandgerði. Eydís, Eyjó, Jón Bjarni og Bjarni borðuðu mtð okkur hjá ömmu og afa.
Eftir brennuna fórum við til langömmu og afa og hittum þar fullt fullt af ættingjum.

Helstu viðburðir fyrstu árin

Gunnar Hólm:
Fyrsta skiftið út í vagn: 1 vikna
Fyrsta brosið: 2 vikna
Byrjaði að halda höfði: 3 vikna
Byrjaði að hjala: 8 vikna
Fyrsta skiftið í sund: 11 vikna
Veltir sér á magann: 23 vikna/á afmælisdegi pabba síns
Getur haldið á dóti sjálfur: 13 vikna/3ja mánaða
Getur sett snudduna sjálfur upp í sig: 18 vikna
Skilur endurtekningar: 19 vikna/3ja og hálfs mánaða
Situr með stuðningi 23 vikna
Sat án hjálpar 6. mánaða/ 27 vikna
Ýtir sér afturábak á maganum: 27 vikna
Stóð fyrst með stuðningi 8 1/2 mánaða
Fyrsta orðið var Mamma
Byrjaði að skríða 9 mánaða (28. júlí 2008)
Lærði að vinka bless 9 mánaða
Lærði að klappa saman lófunum 9 1/2 mánaða
Stóð svo fyrst hjálparlaust þegar ég var 14 mánaða
Fyrstu sporin voru tekin 15. febrúar 2009
En ég æfði mig ekki að labba fyrr en 8 mars 2009 en þó ég get alveg labbað þá hef ég engan áhuga á því og labba því bara á hnjánum um allt
Ég byrjaði svo að labba fyrir alvöru á afmælisdaginn hans pabba (7.apríl´09) og vill bara labba núna
Í janúar 2011 lærði hann að lita myndir án þess að krassa bara eitthvað ;)
Maí 2011 lærði Gunnar á klukku, þeas að kl. 7 á morgnanna er kominn dagur, kl. 6 byrjar barnatíminn og kl 8 á kvöldin er komin nótt. Svo hann hætti að vakna kl. 4 á nóttinni þegar fór að byrta!
Uppáhalds vísan hans Gunnars er Afi minn og amma mín, en hann er búinn að breyta henni sjálfur og er þannig: Afi minn og amma mín, pabbi minn og mamma mín, fóru út að hjóla, afi datt í drullupoll og
amma fór að spóla, pabbi datt í ruslatunnu og mamma datt á rusl! Þetta finnst honum alveg agalega fyndið hehe (Janúar 2012)
...
Sigurður Jenni:
Fyrsta skiptið út í vagn 1 vikna
Fyrsta brosið: 3ja vikna (23 daga!)
Byrjaði að halda höfði 3 vikna
Byrjaði að hjala 6 vikna
Getur haldið á dóti sjálfur 13 vikna/3ja mánaða
Veltir sér á magann 14 vikna
Ýtir sér afturábak á maganum og veltir sér út um ALLT: 6 mánaða/27 vikna
Situr með stuðningi: 6 mánaða/28 vikna
Situr án hjálpar: 7 mánaða/30 vikna
Byrjaði að skríða (togar sig áfram á maganum): 7 1/2 mánaða/ 9. júní 2011
Byrjaði að æfa sig í að skríða á fjórum fótum: 8 mánaða/2. júlí 2011
Labbar með: 8 mánaða
Lærði sjálfur að klappa 9 mánaða
Byrjaði að vinka bless 8 mánaða
Fór að labba fleiri en 2-3 skref í desember 2011
Á gamlársdag 2011 fór byrjaði ég að labba um allt. Við vorum heima hjá ömmu og afa í Sandgerði og skemmti mér vel við að labba um allt þar ;)
Hjólaði fyrst án hjálparadekkja í ágúst 2014
...
Selma Rós:
Fyrsta skiptið út í vagn: viku gömul
Fyrsta brosið: 2ja vikna
Fór að halda höfði:
Fór að hjala: 4 vikna
Fyrsta skiptið í sund: 6 vikna
Getur haldið á dóti sjálf: 12 vikna
Veltir sér á magann 14 vikna
Situr með stuðningi: 27 vikna/6 mánaða
Togar sig áfram á maganum: 28 vikna
Skríður á 4 fótum 8 mánaða
Labbar með... 10 mánaða
Klappar saman höndunum: 8 1/2 mánaða
Stendur og sleppir höndum: tæplega 11 mánaða
Vinkar bless: 10 1/2 mánaða
Fyrsta orðið var Mamma: 10 mánaða

Hæð og þyngd

Gunnar Hólm:
Við fæðingu var ég 54 cm og vó 4518 grömm.
Viku gamall var ég 55 cm og vó 4550 grömm
10 daga gamall var ég 55 cm langur og vó 4750 grömm
4 vikna var ég 58 cm og vó 5800 grömm.
Eins mánaðar (5 vikna) var ég 61 cm og vó 6210 grömm
2ja mánaða (10 vikna) var ég 65 cm og vó 7,8 kg
3ja mánaða var ég 67 cm og vó 8,1 kg
4ra mánaða var ég 68 cm og vó 9,4 kg
5 mánaða var ég 72 cm og vó 10,4 kg
6 mánaða var ég 74 cm og vó 11,2 kg
6 1/2 mánaða var ég 76 cm og vó 11,4 kg
9 mánaða var ég 80 cm og vó 12,780 kg
11 mánaða var ég 81 cm og vó 13,6 kg
12 mánaða var ég 82 cm og vó 13,8 kg
15 mánaða var ég 86 cm og vó 14,4 kg
18 mánaða var ég 91 cm og vó 16,1 kg
2ja ára og 4 mánaða var ég 98 cm og vó 19,2 kg
2,5 ára var ég 101,8 cm og vó 20,4 kg
3ja ára var ég 105 cm og vó 2 kg
3ja ára og 8 mánaða var ég 111 cm og vó 23,5 kg
4ra ára og 4ra mánaða var ég 117,5 cm
5 ára var ég 124,5 cm langur og 31kg
5,5 árs var ég 127,5 cm
7 ára var ég 139,5 cm og vó 35,5 kg
GHH: 7 ára og 9 mánaða var ég 143,3 cm
8 ára var ég 146 cm
....
Sigurður Jenni:
Við fæðingu var ég 54 cm og 4010 grömm
11 daga gamall vó ég 4190 grömm
3ja vikna vó ég 4760gr og var 56 cm
5 daga gamall vó ég 4025 gr
4 vikna vó ég 5330 gr
7 vikna var ég 61 cm og vó 6335 gr
10 vikna var ég 64 cm
3ja mánaða var 65 cm og vó 7.770 gr
4ra mánaða var ég 67 cm og vó 8.750 gr
41/2 mánaða var ég 8.235 gr
5 mánaða var ég 69,4 cm og vó 8.865 gr
6 1/2 mánaða var ég 71,4 cm og vó 10.520 gr
8 mánaða var ég 74 cm og vó 11.250 gr
1.árs var ég 80,1 cm og vó 11.960 gr
18 mánaða var ég 86,5 cm og vó 13,775 gr
2ja ára var ég 92,5 cm og 15,9 kg
2,5 árs var ég 94 cm
4 ára var ég 107 cm og vó 20,0 kg
SJH: 4 ára og 9 mánaða var ég 113 cm
...
Selma Rós:
Við fæðingu var ég 4050 grömm og 52 cm
5 daga gömul vó ég 4115 grömm
12 daga gömul vó ég 4690 grömm
3ja vikna vó ég 5.300 grömm
6 vikna gömul vó ég 6340 grömm og var 60 cm
3ja ára var ég 102 cm og vó 18,5 kg
8 vikna var ég 61,5 cm og vó 7.180 grömm
3ja mánaða/13 vikna var ég 65 cm og 8.605 grömm
4ra mánaða var ég 9,9 kg
4 mánaða var ég 10 kg
5 mánaða var ég 70,5 cm og vó 10,245 kg
6 mánaða var ég 72,5 cm og vó 11,170 kg
8 mánaða var ég 74,4 cm og vó 12,285 kg
10 mánaða var ég 78,5 cm og vó 12,145 kg
1 árs var ég 82 cm og vó 12.745 grömm
1 1/2 árs var ég 84 cm og vó 14,2 kg

Mataræði

Gunnar Hólm:
Ég var á brjósti til 7 og hálfs mánaða aldurs, en ég fékk bara mjólk á nóttinni síðasta mánuðinn.
Núna fæ ég þurrmjólk að drekka og vatn (ég tók loksins vatnið í sátt þegar hitinn var sem mestur í DK, þá var miklu betra að drekka kalt vatn en volga mjólk)
Ég fékk fyrst að smakka graut þegar ég var 3ja og hálfs mánaða
En byrjaði ekki að borða graut reglulega fyrr en ég var orðinn 4. mánaða gamall
Uppáhalds maturinn minn fyrst um sinn var Nestlé grautar með ávaxtamauki út í.
Ég fæ stundum að smakka matinn hennar mömmu, eins og t.d. skyr, kjöt, fisk, rjóma, ís og brauð með smjöri.
Þegar ég byrjaði hjá dagmömmunni 9 mánaða gamall fór ég að borða allt, ég borða mikið af bóndabrauði með áleggi og ávexti hjá henni.
En ég get verið dáldið gráðugur þegar ég borða einn svo það verður að fylgjast vel með hvað ég set mikið upp í mig svo það standi ekki í mér!
Núna (Janúar 2009) er uppáhalds maturinn minn slátur og mjólk...ég gæti drukkið heilu lítrana ef ég fengi leifi til þess!!!
Sigurður Jenni:
Jenni drekkur brjóst reglulega (maí 2011)
Jenni fékk fyrst að prófa mat (soðna stappaða sæta kartöflu) um 5 mánaða aldur en vildi ekkert borða (vissi ekkert hvað hann átti að gera við maukið upp í sér)
Jenni byrjaði að borða mauk rétt fyrir 6 mánaða aldurinn, þá borðaði hann mikið af maukuðum ávöxtum sem mamma bjó til og aðeins af krukkumat
Jenni byrjaði að drekka vatn með matnum um 6 1/2 mánaða. Það tók hann fljótan tíma að venjast vatninu ;)

Fyrstu orðin

Fyrsta orðið mitt var Mamma og kom það þann ca. 10. júní 2008.
En ég veit ekki enn hvað það þýðir og segi það yfirleit óvart
Um 9 mánaða var ég farinn að segja mamma og pabba
Um 15 mánaða notaði ég orðið dettí mjög mikið, fyrst hélt mamma að ég notaði orðið bara um snudduna mína en svo komst hún að því að alltaf þegar mig vantar eitthvað og þegar ég vill sína einhverjum ei
Um 17 mánaða lærði ég að segja "tisi" sem þýðir kisi, og svo ef ég sé mynd af hana þá segi ég "ga ga" og svíni þá segi ég "hö hö" með djúpri röddu.
Svo segi ég "mi mi mi" ef ég sé eitthvað sem mig langar í, oftast ef ég sé mat sem mig langar að borða.
En í dag (18 mánaða) er "mi mi mi" orðið að meija meija
Núna (18 mánaða) nota ég orðið "tisi" yfir öll dýr sem ég sé, en er samt farinn að átta mig á því að hundar eru ekki "tisi" og segji núna stundum voff voff
18 mánaða: skór eru "gokka"
18 mánaða: sjáðu er "sjie"
19. mánaða: sitja er "dida"
Október 2009: Orðaforðinn minn er orðin mjög mikill og læri ég nýtt orð á næstum hverjum degi.Takk fyrir mig=ma mi mi; appelsína=appisí;
Febrúar 2010: Núna tala ég mjög mikið en ég sleppi yfirleitt alltaf fyrsta stafnum í öllum orðum. T.d. heiti ég "Unna", Bangsi heitir "Ansi", Jón Bjarni litli frændi heitir "ón agni"
Febrúrar 2010:"eikkóla" er leikskóli, "akkana" eru krakkarnir, "áll" er Pósturinn Páll, "Ehh ert" er Eggert, "óa óapið" er að hrofa á sjnónvarpið, "músin" er Eggert mús og svo mætti lengi telja
Febrúar 2010: Ég er duglegur að telja...þó ég telji oftast ekki alveg rétt (dvei, dí, óir, sei, sjú, otta..
Febrúar 2010: Ég er líka farinn að þekkja nokkra liti, t.d. rauðan og blánn og er sérstaklega hrifinn af rauðum og bláum bílum og lestum!
Okt. 2011: Uppáhalds vísan hans Gunnars er Afi minn og amma mín, en hann er búinn að breyta henni sjálfur og er þannig: Afi minn og amma mín, pabbi minn og mamma mín, fóru út að hjóla, afi datt í
drullupoll og amma fór að spóla, pabbi datt í ruslatunnu og mamma datt á rusl! Þetta finnst honum alveg agalega fyndið hehe