Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
 
 
 

Gullkorn

Júní 2013

Nú fer að líða að því að Jenni fari í 2,5 árs skoðun á heilsugæslunni. Mamman hefur verið dugleg að sýna honum hvað hann er gamall og að hann sé strákur og mamman stelpa. Hann hefur lítið tekið í þessar útskýringar mömmu sinnar og stendur fast á því að hann er hvorki strákur né stelpa. Hann er JENNI! En eitt kvöldið þegar hann var að fara að sofa fer hann allt í einu að telja fyrir mömmu sína og notar puttana til aðstoðar:

Jenni: enn, eiþ (og stoppar svo)

Mamma: Já, þú ert tveggja ára

Jenni: Eg ammli ogto beþ, eg koþonu á háiþ.

Hann á semsagt afmæli í október og fær þá kórónu á hárið! Mamman var ekkert smá ánægð með þessar upplýsingar og hann veit mun meira um sig en mamman hélt!

 

Desember 2012

Mamma var að tala við pabba um sálfræðinga á Akureyri á meðan Gunnar situr hjá þeim og hlustar gaumgæfilega.

Gunnar: Sjálfræðingur, hmm mamma er það maður sem þarf að gera allt sjálfur?

 

Nóvember 2012

Gunnar: Mamma, ég er rosalega horfkvæður núna.

Mamma: Nú já, hvað þýðir það?

Gunnar: Nú, það þýðir að ég vill rosalega mikið horfa á sjónvarpið núna.

 

Mars 2012

Gunnar fór allt í einu að aumka sér við eldhúsborðið og sagði bið mömmu sína. "Ohh mamma, ég er með spólu". Mamman var nú ekki alveg að skilja hvað hann var að segja og bað hann um að sýna sér. Þá var hann með bólu á puttanum hehe ;)

Mars 2012

Nú er Gunnar farinn að segja brandara og býr þá sjálfur til í einum grænum. Hann byrjaði fyrst á þessu 3. mars og finnst þetta gríðarlega fyndið. Allt í einu upp úr þurru spurði hann mömmu sína. "Mamma, á ég að segja þér brandara?" Mamman varð svo hissa á þessari spurningu að hún vildi endilega heyra brandara:

# Einu sinni var gulur banani út á götu og þá kom bíll og keyrði yfir hann. Þá kom fita og sagði: er þetta bílabraut með einum gulum lit?"

# Einu sinni var gulur banani út á götu og þá kom bíll og keyrði yfir hann. Þá kom annar grænn banani og sagði: er þetta klukka?"

# Einu sinni var eitt glas út á götu og þá kom annað glas og sagði: hey er þetta annað glas?!"

Það er sko mikið hleigið af þessu hehe

 

Júlí 2011

Á meðan við vorum í heimsókn hjá ömmu og afa í Sandgerði fór Gunnar eitt kvöldið í bíltúr með afa sínum alla leið til Njarðvíkur. Á leiðinni rekur Gunnar augun í eitt af listaverkunum sem eru á leiðinni (karl og kerling búin til úr stóru grjóti). Þá segir Gunnar við afa sinn: Hey afi! Þetta er svona steina-karl. Þá útskýrir afi fyrir honum að þetta séu bæði karl og kerling. Þá segir Gunnar: Afi, þetta er ekki prinsessa! (Þetta var greinilega ekki falleg kerling!).

 

Júní 2011

Amma og afi úr Sandgerði voru í heimsókn hjá okkur og var okkur boðið í mat til ömmu og afa í Norðurbyggðinni. Í góða veðrinu ákváðum við að labba til þeirra nema Gunnar vildi hjóla á "stóra" hjólinu sínu og sína ömmu og afa hvað hann væri orðinn duglegur að hjóla. Á miðri leið spyr Siggi afi til hvers bjallan sé notuð á hjólinu og þá svarar Gunnar um leið að þetta sé svona sem hann notar þegar hann þarf að bíða eftir Gunnari afa sínum!!! Það var greinilegt að hann hefur nokkrum sinnum lent í því að þurfa reka á eftir afa sínum þegar þeir eru úti að hjóla!

 

Desember 2010

Gunnar afi var að fara með Gunnar í fimleika og á meðan Gunnar afi beigði sig niður til að klæða Gunnar í útiskóna horfir Gunnar á hausinn á afa sínum og seigir: "Hey afi! Þú ert með gat" og bendir á skallann hans afa híhíhí...

 

Nóvember 2010

Amma Rósa: "Jæja, ég ætla fara....." 
Gunnar grípur fram í: "...búa til pylsu"
Amma Rósa: "Nei, ég ætla búa til kjöt"
Gunnar: "Nei, fyrst búa til pylsu"
Ömmunni fannst þetta svo fyndið að hann fékk sínu framgengt. Hann kann sko réttu tökin á ömmu sína...og aðra!

 

Júní 2010

Þessa dagana hefur Gunnar verið mjög upptekin af litla barninu sem er í maganum á mömmu. Á hverju kvöldi þegar hann fer að sofa þá vill hann alltaf hlusta á litla barnið. Leggur höfuðið á bumbuna og hlustar hehe. Svo segir hann alltaf að hann eigi litla barnið, þannig að það er mikil spenna í gangi. Í kjölfarið er hann mjög upptekin af öllu litlu og stóru. Einn daginn þegar hann var í húsinu okkar á meðan pabbinn og afinn voru á fullu að rífa niður timbur horfir Gunnar á spítuhrúguna og segir við ömmu Jónu. Þessi er mamman (og bendir á stóran viðarbút) og þessi er litla barnið (og bendir á lítinn viðarbút). Einnig nefnir hann stóra kubba mömmur og litla kubba litla barnið!

Gunnar er líka orðinn duglegur að segja heilu setningarnar. Hann veit að mamma sín er að vinna í bláu stóru húsi (að hans mati), og einn daginn þegar mamman kom heim úr vinnunni varð Gunnar mjög spenntur og segir við mömmu sína: "Mamma úin inna stóra húsinu áan" (Mamma búin að vinna í stóra húsinu blánn!).

Eitt af því sem Gunnar lætur sig dreyma um dag og nótt er ís. Eitt kvöldið (eins og svo oft áður) biður hann pabba sinn um ís en það var bara ekki í boði þá. En það dugar samt ekki til þess að hann hætti að hugsa um góðgætið. Um nóttina dreymir hann um ísinn og talar um hann upp úr svefni (eins og svo oft áður). En þessa nótt vaknar hann og vekur pabba sinn og biður hann um að gefa sér ís. En það var auðvitað ekki í boði svo pabbinn segir að hann verði að sofa aðeins lengur til að fá ís. En svo um morguninn þegar mamman keyrir stráksa á leikskólann kallar hann á mömmu sína og segir: "Mamma, ég orða ís. Mamma íka orða ís". Svo borðuðum við þykistunni ís alla leiðinna á leikskólann og vorum alsæl og södd þegar við komum á leiðarenda ;) 

Gunnar hefur verið að læra nokkra stafi eins og G, H, E, R og I. Í kjölfarið lærði hann að mamma heitir Inga og pabbi heitir Hjálmar. Einn daginn spyr mamma Gunnar hvað hún heiti og þá hugsar Gunnar sig aðeins um og segir: Magnús. Mamman sprakk þá úr hlátri því þetta kom henni algjörlega á óvart því hún hafði aldrei heyrt hann segja þetta nafn áður og vissi ekki til þess að hann þekkti einhvern sem heitir Magnús. En eftir þetta þá er þetta einn af okkar einkabröndurum, þeas þegar Gunnar vill stríða okkur foreldrunum þá kallar hann okkur Magnús hehe.

Maí 2010

Við foreldrarnir erum núna að reyna finna út hvað "ídnagog" þýðir í orðaforða Gunnars. Hann notar þetta orð yfir svo mismunandi hluti og/eða atriði að við áttum okkur ekki ennþá hvað hann sé að meina með því. Það nýjasta er að við vitum að hann notar stundum orðið yfir blautþurrkur...en alls ekki alltaf. Þannig að við erum enn að brjóta hugann yfir þýðingu þessa hrikalega skemmtilega orðs hehe

Apríl 2010

Gunnar afi er oft að reyna að fá Gunnar til að bera fram G-ið í nafninu sínu því hann segir alltaf "unnar". Þá biður afinn hann alltaf að segja "G,G,Gunnar". En það tekst misvel hjá Gunnari að bera g-ið fram. En kvöld eitt við kvöldmatarborðið spyr amma Rósa hann hvort hann viti að afi heiti líka Gunnar eins og hann. Þá segir Gunnar Hólm, "Nei, G,G,G,Gunnar ai".

Apríl 2010

Við fjölskyldan skruppum til Sandgerðis eina helgina í apríl. Og í tilefni af því ákvað amma Jóna að hafa góðan mat á laugardagskvöldinu. Mamman ákvað að búa til gott salat ásamt waldorssallati (alveg eins og hún gerði um jólin þegar við vorum í Sandgerði síðast). En þessi salatgerð fékk Gunnar bara til að hugsa um eitt og það voru pakkarnir á aðfangadag. Svo hann bað mömmu sína um að fá að opna pakkana strax og við vorum búin að gera salatið!!

Apríl 2010

Eitt kvöldið í Sandgerði var Gunnar að horfa á sjónvarpið með ömmu sinni og afa. Þau voru að horfa á dýralífsþátt með flóðhestum þar sem tveir karlkyns flóðhestar voru að berjast um yfirráð á hjörð einni. Flóðhestarnir börðust með munninum þar sem þeir opnuðu munnin upp á gátt til að sýna hver væri með stærri kjaft. Amman og afinn voru mjög upptekin af þessum þætti og áttuðu sig ekki alveg þegar Gunnar opnar munninn sinn upp á gátt og byrjar að ógna afa alveg eins og flóðhestarnir hehe

Jólin 2009

Gunnar upplifði aðfangadag sem rosalega skemmtilegan dag. Jólatréð og ALLIR pakkarnir undir trénu voru alveg heillandi. En hann var samt fúll að hann skildi ekki eiga stærsta pakkan...sem var til Jóns Bjarna frænda frá Bjarna. En næst stærsti pakkinn var nú samt til hans frá Bjarna og sá pakki var gríðalega spennandi. Eftir forréttinn fékk Gunnar að opna þann pakka því spenningurinn var alveg að fara með hann. Þegar hann opnaði pakkann og sá að í honum var mjög stór Wrangler Rubicon rafmagnsbíll varð hann alveg yfir sig spenntur í orðsins fyllstu merkingu. Þetta var svo mikil hamingja að það sem eftir var kvöldsins var hann í því að pakka bílnum aftur í pappírinn og opna hann aftur með þvílíkum fögnuði hehe