Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
 
 
 

Við erum systkinin Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og stúlka Hjálmarsdóttir

Velkomin Laughing


 

  

Við erum þrír gullmolar og erum augnayndi mömmu og pabba.

Gunnar Hólm kom í heiminn þann 27. október 2007 á Horsens Sygehus í Danmörku. Hann vó 4.518 grömm eða 18 merkur og var 54 cm langur. Hann var svo stór og sterklegur að hann var kallaður Íslenski Víkingurinn á sjúkrahúsinu http://nino.is/static/js/tiny_mce/plugins/emotions/images/smiley-smile.gif en mamma og pabbi vilja meina að hann sé ekta sveitakarl með stóra og sterka hramma híhí

Sigurður Jenni kom í heiminn þann 24. október 2010 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann vó 4010 grömm eða 16 merkur og 54 cm langur. Hann var töluvert nettari en Gunnar stóri bróðir sem var skemmtileg tilbreytni frá þyngslunum í Gunnari híhí

Litla systir kom í heiminn þann 8. júní 2014 heima í Grænumýri 4. Hún vó 4050 grömm eða 16 merkur og var 52 cm  löng. Hún var dökkhærð eins og Gunnar en töluvert fíngerðari en bræður sínir. Sérstaklega ber að nefna hversu langar fingurnir og tærnar eru. Hún gæti vel spilað á píanó með tánum ef hún hefði áhuga híhí.

Ef þið viljið fá leyniorðið á síðunni þá endilega hafið samband við okkur á e-maili

inga82@hotmail.com eða hjalliboy@hotmail.com



Vísa til Gunnars Hólms 

Garpur fríður, kapp í kinn

kostir prýða nafna minn.

Æskan líður enn um sinn

elsku blíði drengurinn.

Með kveðju, Gunnar afi.

Gunnar Hólm

Lítil gjöf frá guði

von mín og trú

kærleikur og ástúð

gjöfin varst þú


Svo tindrandi og saklaus

augun þín smá

svo gaman að vita

að lítinn frænda ég á


Öll mín ást blómstrar

ljómar og skín

skín svo bjart

frá mér til þín


Ó öll þín framtíð

svo björt fyrir þér

góð og blíð

hún framundan er


Svo elsku Gunnar Hólm

nú býð ég þig

velkominn í heiminn

og gangi þér vel

Höf. Telma Lind frænka


Gunnar Hólm Hjálmarsson

Gunnar litli sætur er

fer snemma á fætur.

mömmu hans og pabba ber

að hafa á honum gætur.

Höf. Elva Kristín frænka


Gunnar

Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytin "ar" sem merkir hermaður.

Hólm

Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "hólmur" sem merkir hólmi, - smáey, - einvígsstaður.

 

SPORÐDREKINN

24. Október - 21. Nóvember

Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.



Heimsóknir í dag: 7
Heimsóknir frá upphafi: 15679