

Í tilefni 1. árs afmælis Gunnars, settu Gunna og Árni þessa vísu í afmæliskortið mitt.
Nú fyrsta árið flogið er
hjá frænda litla sæta.
Hann ætlar nú að una hér
og öðru ári mæti.
18.október 2008 áttum við mamma flug suður og svo flug til Danmerkur eftir viku heimsókn hjá pabba og ömmu og afa á Akureyri. Gunnar afi fannst mjög erfitt að kveðja eins og hinum og orti þessa vísu:
Víst mig gleðja ærslin ung
á þau veðja fyrst um sinn
að mér steðjar þrautin þung
þig að kveðja nafni minn.
21.september 2008 var Siggi afi og Jóna amma að fylgjast með Gunnari í gegnum webcameruna. Þá kom Siggi afi með þessa vísu:
Gunnar er í banastuði
og vill nú bara leika sér
glaðbeittur með flottu snuði
flottastur af öllum ber.
Frá frænku í Kárdalstungu 7. apríl 2008
Gott er að vera amma og afi
og eignast nýja lífsins von,
Þú ert sannur gleðigjafi
Gunnar litli Hjálmarsson.
Sigrún Hjálmarsdóttir
Til Gunnars Hólms
Við þig kynni viljum hafa
um vanga þinn lék blær
er komst að finna ömmu og afa
anginn minn í gær.
Gunnar afi
Vísa til Gunnars Hólms
Garpur fríður, kapp í kinn
kostir prýða nafna minn.
Æskan líður enn um sinn
elsku blíði drengurinn.
Með kveðju, Gunnar afi
Þegar Gunnar fæddist voru frænkur hans Elva Kristín og Telma Lind svo yndislegar að semja ljóð handa honum. Svo þegar Siggi afi og Eydís frænka komu í heimsókn til okkar í byrjun nóvember 2007 komu þau með ljóðin með sér á prenti :)
Gunnar Hólm Hjálmarsson
Gunnar litli sætur er
fer snemma á fætur.
mömmu hans og pabba ber
að hafa á honum gætur.
Höf. Elva Kristín frænka
Gunnar Hólm
Lítil gjöf frá guði
von mín og trú
kærleikur og ástúð
gjöfin varst þú
Svo tindrandi og saklaus
augun þín smá
svo gaman að vita
að lítinn frænda ég á
Öll mín ást blómstrar
ljómar og skín
skín svo bjart
frá mér til þín
Ó öll þín framtíð
svo björt fyrir þér
góð og blíð
hún framundan er
Svo elsku Gunnar Hólm
nú býð ég þig
velkominn í heiminn
og gangi þér vel
Höf. Telma Lind frænka