

Kæru vini og vandamenn..........það er þessi tími ársins.......ég fór í dálítið fullorðinstékk í dag
Mín fór í brjóstaskoðu! Ég var voða jákvæð eitthvað og hress, trítla ægilega glöð inn eina manneskjan á allri biðstofunni í GEGNSÆJUM slopp. Alveg Halló og hæ og allt svo ægilega gaman og bleik klessuvél og
allt. Hún alveg: Ertu að koma í fyrsta skipti? (sé núna að ég hefði getað móðgast aðeins, meina lít ég út fyrir að vera eldri en 40)JÁ segi ég með hátíðniröddu tilbúni að láta kreista á mér mjólkurkirtlana. Hún biður mig
vinsamlegast að afklæðast sem ég gerði í hendingskasti og stend þarna á ömmunærbuxunum, hafði nefnilega ákveðið að vera í sexý brjóstahaldara en ömmulegum nærbuxum sem er eiginlega dálítið öfugsnúið því enginn sá
brjóstahaldarann en örugglega öll hæðin nærbuxurnar mínar!! Ok við stöndum þarna konan og ég og ég þen út brjóstkassann og þá horfir hún á mig.......síðan á vélina og ákveður að skipta um glasabakka sem
kremur brjóstið. Hún tekur út glasabakkann og tekur annan glasabakka, þann stærsta sem til var!!!Allt í lagi ég ákvað að hemja mig aðeins og hlæja ekki mikið. Svo þurfti hún sko 2 hendur til að halda uppi
glasabakkanum og svo var hann svo stór og þungur að hún gat ekki einu sinni fest hann almennilega í fyrstu atrennu. Hafði sett hann skakkt í og þegar hún svo var búin að kremja vi. brjóstið á mér þá heyrist í henni:
Eitthvað er þetta skrýtið......ennþá var brjóstið í kremju og hún bara tosar í vörina á sér og ég alveg: Heheh ekki segja mér að vélin sé föst!! Neinei þurfti bara að berja bakkann betur inn í tækið!! svo kremur hún
hægri vinstri og ég ógisslega sterk....hún hrósaði mér ægilega mikið, ég væri nú svo ung og með þétt brjóst...búin að lifa á þessu í allan dag..Og þetta er nú ekki búið. Ég sest niður með niðurbrotin brjóstin í gegnsæja
sloppnum í ljótustu nærbuxum sem ég á og svo er ég kölluð inn í kjallaraskoðun. Jájá þar fær Hulda Magg munnræpu!! Mín ætlaði nefnilega að nýta tímann út í ystu æsar og byrja á því að strunsa inn, með sloppinn
flaksandi um allt og læt sko lækninn vita af því að það sé nú eitthvað í gangi þarna niðri!!!! ..Já segir hann: Eeeeee, er eitthvað í gangi þarna niðri. Já! segi ég alveg á innsoginu og ætla svo að halda áfram að tala þá reynir hjúkkan að komast að og er eitthvað að reyna að kynna sig og ég hef nú takmarkaðan áhuga á því hvað ÞÆR heita og held áfram að beina athygli minni að lækninum þangað til hjúkkan sagði aðeins hærra: ERTU ENN Í NÆRBUXUNUM?! ........ Ég alveg sveiflaði mér úr þeim og svona til að gera afskaplega langa sögu stutta þá klappaði hann mér eins og meri og sagði að ég liti bara ágætlega út og allt í fína þarna niðri :)