Magnús Jón
 

Gestabók

Jóney

Halló kæra fjölskylda

Gaman að fylgjast með því sem þið eruð að fást við og hvað móðurinni liggur á hjarta. Þessa dagana hefur maður ekkert annað að gera enn að vafra á vefnum ;)

Kveðja,
Jóney

Skrifaš žann 23. April 2007 10:06.

Ása amma.

Gleðilegt sumar elskurnar mínar.
Vona að sumarið verði ykkur farsælt.
Ég elsku ykkur.
Ása amma.

Skrifaš žann 20. April 2007 11:40.

Súna frænka

hæ elskurnar æðislegt að skoða myndirnar af ykkur, öll svo falleg (veit reyndar ekki um hann Jón bróðir minn. það er engin mynd af honum!!). Ég veit að ég er alltaf á leiðinni í heimsókn með fermingagjöfina, reyni að komast fljótlega, vonandi áður en Helena verður fermd he he. kiss og knús frá mér og family

Skrifaš žann 16. April 2007 21:48.

Sigþr.

Halló elskurnar.
Vona að þið hafið það gott.
Allir hérna biðja að heilsa.

Skrifaš žann 13. April 2007 19:55.

Sigurbjörg frænka

Sæl Hulda fallega frænka. Til hamingju með dótturina, sé að hún er ný orðin 12 ára bara alveg að komast á gelgjuna.
Ég kíkti á myndirnar og sé að frumburðurinn þinn er orðin ansi stór.
Ég margskoðaði myndirnar úr afmælinu hjá mömmu þinni en fann enga af mér reyndar fann ég voða fáar myndir:)
Bið að heilsa stóru systir og öðrum fjölskyldumeðlimum.

Skrifaš žann 8. April 2007 18:19.

Sigþr.


Elsku elsku dúllan mín.
Til hamingju með afmælisdagin í gær.
Vona að það hafi verið gaman í veislunni í gær.
Sjáumst á sunnudagin fröken 12 ára.
Frænka á Skagaströnd.

Skrifaš žann 24. March 2007 10:23.

Sigþr.

Halló elskurnar.
Vildi bara kasta kveðju á ykkur.
Bið að heilsa bretanum. Hann er bestur!!

Skrifaš žann 11. March 2007 20:09.

Óli Magg

Nú veit ég að þetta á að vera vettvangur fyrir fréttir af börnum og myndir af þeim en ekki koma margar myndir. Það er meira uma ð fréttir eru sagðar. Hvernig væri þá að Jón fari að vera svolítið duglegur að setja sínar myndir hér inn? Þetta er tillaga. Frábær tillaga. Með kveðju, Ólafur Magnússon.

Skrifaš žann 6. March 2007 13:28.

Berglind frænka

vildi bara kasta á ykkur kveðju héðan úr Danaveldi, hafið það gott bestu kveðjur Berglind

Skrifaš žann 25. February 2007 20:11.

Ása J.

Til hamingu með ömmu þína og pabba þinn, Hulda mín.
Kveðja.
Tengdó.

Skrifaš žann 22. February 2007 16:03.

Pálína Freyja

Við ætlum að hittast í mars með KE er það ekki???

Skrifaš žann 21. February 2007 09:59.

sigþr.

Sæl kæra systir.
Vildi bara segja halló við ykkur.

Skrifaš žann 9. February 2007 11:32.

Ásta Ýr

Hæ hæ aftur nú áttu að komast inn á síðuna kveðja Ásta

Skrifaš žann 6. February 2007 13:13.

Ásta Ýr

Halló allir,langaði bara að kvitta fyrir innlitið.Flott síða hjá ykkur.

Bestu kveðjur Ásta Ýr

Skrifaš žann 30. January 2007 13:22.

Berglind frænka

Jæja ætli ég sé ekki búin að bíða nógu lengi eftir því hvort það gæti verið einhver önnur Begga bjútí en ég ( finnst það reyndar ólíklegt en má ekki vera of augljóst hvað ég tel mig vera mikið bjútí ) en allavega þá er bloggsíðan mín www.beggahans.blogspot.com hvort sem þú vildir meina að ég sé bjútíið eða ekki :) knús og kossar á ykkur öll kveðja Berglind

Skrifaš žann 26. January 2007 10:10.

Dísa

Hæ öll (°°,) takk takk fyrir síðast, Hulda og Jón hvernig væri að skella sér norður á þorrablót 10.feb????
kv. Dísa

Skrifaš žann 17. January 2007 22:11.

Sigþr.

Sælar elskurnar.
Vildi bara benda á, að það er komin hér um bil hálfur mánður af janúar. Svo er ekki komin tími til að setjast niður og fara að SKRIFA.... Bara svo maður viti hvað er að ske hjá Hamrafólkinu.

Skrifaš žann 9. January 2007 09:40.

Berglind frænka

Hæ öll og gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár, megi nýja árið verða ykkur gæfuríkt. Vonandi hafið þið haft það gott yfir hátíðarnar, ég hafði það rosa gott, náði 6 dögum heima á Íslandi og náði að borða á mig gat..svo sendi mamma smákökur út með Bjarna þannig að ég er ennþá í jólamatnum...Vildi bara kasta kveðju á ykkur knús og kossarBerglind

Skrifaš žann 5. January 2007 10:25.

Sigurbjörg frænka

Sæl frænka og co.
Ég þakka fyrir jólakortið og frábært að fá að fylgjast með ykkur hér á þessari síðu, sérstaklega gaman að skoða myndirnar.
Ég hafði ekki hugmynd að þá værir svona mikið skáld Hulda mín.
Leyniorðið hjá stelpunum mínur er það sem pabbi er kallaður í mömmu fjölskyldu s.s. ekki Dáti
Ég verð nú bara að segja það, mikið áttu falleg börn (eiga náttúrulega ekki langt að sækja fegurðina.)

Skrifaš žann 30. December 2006 19:46.

Sigþr.

Gleðileg jól öllsömul, elskurnar.
Það er leiðinlegt að Bjartur og Skuggi eru farnir.En þú hættir þá að hnerra kanski. kv.

Skrifaš žann 25. December 2006 15:04.

Sigþr.


Sæl systir góð.
Lastu ekki það sem ég skrifaði í gær???
Ég bara spyr,, SKRIFAÐU""""

Skrifaš žann 18. December 2006 21:11.

Sigþr.

Heil og sæl systir góð.
Ég vildi bara fá að vita hvort ekkki ætti að fara að blogga!!
Ég er löngu búin að lesa seinasta innlegg, og vil fá nýtt...

Skrifaš žann 17. December 2006 16:33.

Þóra Pálsdóttir

Hrikalega sætar kisur sem þið eigið. Helena stóð sig vel í gær á danssýningunni. Ásdís María mín var með henni í djassballett. Jólakveðjur til ykkar úr næsta hverfi. Spurning um að láta verða að því að heimsækja þig Hulda einhvern tíma.
Kveðja
Þóra Pálsd, (sollurnar)

Skrifaš žann 13. December 2006 09:18.

Sigþr.

Elsku dúlla,
Auðvitað máttu dansa, bara að muna að dansa í hófi!!!
Kveðja til allra.

Skrifaš žann 11. December 2006 12:03.

Vignir

hér með, af einskærri vorkunn og góðmennsku kvitta ég fyrir mig.

Njóttu

Skrifaš žann 27. November 2006 17:44.

Auður Erlarsdóttir

Skemmti mér vel yfir skeini sögunni. Ég átti einu sinni kött sem gerði þetta líka, enda kom á daginn að hann var að reyna að losa sig við póst-teygju sem hann hafði étið með bestu lyst :)
Kettir eru bestu SKINN.
Bk
Auður

Skrifaš žann 24. November 2006 13:57.

Brynhildur

Hahaha :D engin veisla handa Huldu ..

Hahaha kisan mín skeinir sér stundum á gólfinu .. þá stend ég reyndar bara og hlæ .. En þetta er það fyndnasta sem kettir gera =)

Skrifaš žann 23. November 2006 20:20.

Súsý.


Halló elskurnar.
Vildi bara kasta á ykkur kveðju.

Skrifaš žann 23. November 2006 09:25.

Ása amma.

Halló Magnús. Til hamingu með afmælið elsku gullið mitt.Nú eruð þið Brynja orðin fjögurra ára, viltu kyssa hana fyrir mig og óska henni til hamingju með daginn. Ég kem eftir vinnu og knúsa þig. Ég elska ykkur.
Ása amma.

Skrifaš žann 3. November 2006 09:37.

Berglind Frænka

Hæ öll :) vil endilega fá eitthvað til að lesa, verð alltaf svo hress og í góðu skapi eftir að hafa lesið síðuna ykkar :) Hafið það gott knúsBÍH

Skrifaš žann 27. October 2006 08:08.

1 2 3 4 5