Magnús Jón
 

Gestabók

Móðir þín

Þar sem ég get ekki svarað þakklætisbréfinu beint frá þeirri síðu reyni ég að muna þetta yndislega bréf sem engin getur skrifað nema þú yndislegi sólargeislinn í lífi mínu.. É gæti aldrei lifað einn dag nema heyra frá þér hvort heldur er í gleði eða sorg.
Þú er frábær og dugleg ég væri löngu farin til TIMBÚK'U á flótta ef ég væri þú en það versta við það að allir í fjölskyldunni myndu byrja að pakka og elta þig því hvar værum við án þín...og ekki orð um það meira. Elska þig svo heitt að ég er komin með fjörutíu stiga hita og miðað við minn líkamshita er ég steindauð:) Nú er ég búim að tala við Guð og það er í vinnslu með þig..Þú finnur sterka strauma fara um þig í nótt og er það bara byrjunin á bataferli þínum með hjálp almættisins. Lokaðu fallegu augunum þínum finndu eitthvert trúartákn til að horfa á eða sofa með undir koddanum.Svo umvef ég þig örmum og þú kúrir í hálsakotinu mínu í nótt í hugum okkar beggja.

Skrifaš žann 7. May 2013 00:19.

Hulda Magg

Vúhú er 25 þús gesturinn !! :) Reyndar held ég að hafi orðið smá (mega) villa í talningu á tímabili :)

Skrifaš žann 1. September 2012 19:36.

Sigþrúrður

Alltaf gaman að lesa blogginn frá þér kæra systir :)

Skrifaš žann 24. June 2012 16:19.

Berglind Íris

Hæ elsku yndislega Hulda mín. Langaði bara til að kasta á þig kveðju og segja þér hvað mér finnst þú frábær og yndisleg. Mér þykir ofsalega vænt um þig og er oft hugsað til þín. Hafðu það ofsa gott og haltu áfram að skrifa það er svo gaman að lesa það sem þú hefur að segja :)
Knús og kossar frá Osló
luvBerglind

Skrifaš žann 23. May 2012 08:07.

Hulda Magg

:) Bara að tékka

Skrifaš žann 23. February 2012 20:12.

Steinunn

Kæra Hulda, vonandi gengur allt vel hjá ykkur og allt tilbúið fyrir ferminguna. Ætlaði að fá fréttir af mömmu þinni,getur hún beðið fram á þriðjudag.Hún má ekki pína sig meira, nóg komið af verkjum og sársauka. Kær kveðja til allra frá Sólbergi.

Skrifaš žann 11. April 2009 14:35.

Sigrún föðursystir

Sælar elskurnar, ætlaði að fá að skoða myndaalbúm pikkaði inn kaupstaðarnafnið og ekkert gerist?? Er það örugglega ekki staðurinn sem þið giftið ykkur á?? ja man spyr sig!! Bestu kveðjur til ykkar allra sjáums í fermingunni:-)

Skrifaš žann 29. March 2009 18:16.

frá systrunum

sæl dúllan okkar, fórum á Íslendinga hittingin í dag í góðu veðri.Síðan keypti ég bleik rósablöð,flotkerti,og smá páskaflotblóm.Og bleik vatnaliljublóm ásamt hvít vatnaliljublómum, ef þú vilt eitthvað fleira þá láttu vita.Elska þig og ykkur öll mamma

Skrifaš žann 20. March 2009 18:53.

Steinunn

Kæra Hulda, loksins er komið á hreint með systurnar,,,, ,ætla að bregða sér til Spánar, sem gladdi mig ótrúlega mikið. Ég þakka fyrir boðskortið, því miður komumst við ekki.... Hér er búið að vera frábært veður í 2 daga, og verður vonandi gott allan tímann sem, "skvísurnar" eru hjá okkur.kær kveðja til allra.

Skrifaš žann 8. March 2009 19:37.

Steinunn

Kæra Hulda ,,, vonandi er allt gott að frétta af ykkur öllum líka Elínu Helgu er hún hress...... Hér hefur verið rigning og rok í allan dag. Verður örugglega sól á morgun, við erum að mála pílúrana hjá okkur klárum vonandi á morgun.. áður en Hannni fer að spila félagsvist. Kærar kveðjur til ykkar allra.. Sólarkveðja frá Sólbergi

Skrifaš žann 3. March 2009 18:33.

Steinunn

Kæra Hulda sendi þér smá hita því hér er ekkert of heitt og mikill vindur.... Vonandi koma mamma þín og Bubba til okkar sem fyrst. Hlakka mikið til að fá þær í heimsókn...Kveðja til allra frá Sólbergi.

Skrifaš žann 12. February 2009 10:42.

Frá Sólbergi

Elsku Hulda vonandi eru allir að ná sér eftir flensu....Hér er allt rólegt búið að rigna í 2 daga. Hefur verið frekar kalt hér eins og annarsstaðar í Evrópu...Ég sendi Sigþrúði góðar kveðjur og Guðsblessunar. ...skilaðu kveðju til allra. Guð blessi ykkur öll. þín frænka.

Skrifaš žann 2. February 2009 22:10.

Sigþrúður Magnúsdóttir

Sæl kæra systir.
Ætla bara að kvitta hérna,
Gott að Bubba lítur betur út,
Kveðja til Magga sundkappa og einnig til Kormáks og Furu.

Skrifaš žann 20. January 2009 23:42.

Steinunn

Elsku Hulda, vonandi er heilsan betri hjá þér, þú verður að fara vel með þig. Héðan er allt gott að frétta, skilaðu kveðju til allra. Knús og kossar. Gð blessi ykkur

Skrifaš žann 13. December 2008 15:12.

Steinunn

Elsku Hulda og fjölsk. Við höfum það gott hér. Það er kaldara en við áttum von á. Skilaðu kveðju til mömmu þinnar. Guð blessi ykkur kveðja Steinunn.

Skrifaš žann 5. December 2008 09:49.

Magga

Sælar skvísa,rrrooosssaaalega er ég farin að sakna þín! Gaman að skoða myndir af fjölsk. og rosalega er Jón flottur ljósmyndari. Kiss og knús úr Grænutungunni xxxxoooo

Skrifaš žann 10. November 2008 13:31.

Pálína Freyja

Nei sko..hitti ég ekki bara á afmælisdag Magnúsar músakrútts!
Til lukku með strákinn, bara orðinn sex ára!!
Knús úr Kópavoginum
Pálína.

Skrifaš žann 3. November 2008 15:19.

Ása.

Elsku Maggi minn, til hamingju með 6 ára afmælið. Guð blessi ykkur, kveðja. Ása amma.

Skrifaš žann 3. November 2008 11:48.

Sigþr.

Elsku systir og fjölskylda.
Vildi bara þakka fyrir okkur síðastliðna helgi. Takk fyrir að halda útskriftarveisluna fyrir Vignir. Þetta var ógleymanlegt kvöld.
Sigþrúður og Hafþór.

Skrifaš žann 26. October 2008 22:17.

Hulda Magg

Hæ og hó! Enn og aftur hef ég týnt lykilorðinu mínu :) en trallalalala ég er á mínu síðasta kvöldi sem 38 ára stúlkutetur!!
Hafið það rosagott Æ LOV JÚ OLL!

Skrifaš žann 25. September 2008 20:37.

Steinunn

Elsku Hulda takk fyrir kveðjuna förum heim í nótt. Mjög gott veður sumum finnst alltof heitt. Vonandi er góður matur í skólanum hans Magnúsar Jóns, (og líka kennarar) knús og kossar frá frænku.

Skrifaš žann 8. September 2008 12:42.

Hulda Magg

Hæ öll sömul, tölvan mín er í viðgerð, man ekki leyniorðið til að komast inn á síðuna :) MJJ byrjaður í skóla, gengur rosavel, Jón minn átti afmæli í gær Rosasætur og svo er ég, við, búin að fá nýja þvottavél og svo bjargaði ég mömmu frá óargadýri (lítil kisa) segi allt seinna
gúddbæ og sigþrúði líður miklu betur, er dugleg að taka penicillin og rífur smá kjaft þannig að þetta er allt að koma! Góðar kveðjur í Sólberg -
Nokkrir molar frá MJJ: "Hver saumaði mig?" "Hvar fæddist guð"

Skrifaš žann 6. September 2008 20:04.

Steinunn frænka

Elsku Hulda. Vonandi er allt í rétta átt hjá Sigþrúði, og henni farið að líða eitthvað betur. Skilaðu baráttu kveðju til hennar knúsaðu hana og blessaðu frá okkur. Kossar og knús til ykkar allra. Guð vaki yfir ykkur og styrki. Kærar kveðjur Steinunn.

Skrifaš žann 31. August 2008 16:30.

Steinunn frænka

Höfum haft það rólegt. Hanni ekki nógu góður í mjöðminni. Bæði verið bitinn og kláðinn mikill. Annars alllt gott. Förum kl:12:30 að ná í Didda og Lillý, það ágæt tilbreyting.Knúsaðu litla skólastrákinn frá mér. Guð vaki yfir ykur öllum. Knús og kossar frá Sólbergi.

Skrifaš žann 28. August 2008 17:35.

Kveðja frá Sólbergi, Spáni

Nú er Hanni kominn og við sitjum hér úti á verönd í 30 stiga hita. Vonum að bílinn komi örugglega á föstudaginn. Hanna finnst alltof heitt en mér finnst gott að sitja hér í skugganum og lesa gömul dagblöð.Skilaðu sólarkveðju til allra. Magnús Jón er alltaf jafn frábær og skemmtilegur, knúsaðu hann frá frænku. Edda

Skrifaš žann 24. June 2008 13:24.

Steinunn

Elsku Hulda vorum að koma úr skrúðgöngu og íslendingaskemmtun það var ágætt. Ég og Elín Rós fórum í klippingu hvar lærðu þær að klippa. Ég hefði gert betur puh puh======puh. Bestu sólarkveðjur frá Sólbergi, Spáni.

Skrifaš žann 17. June 2008 16:17.

Steinunn Edda Njálsdóttir

Elsku Hulda og fjölsk. smá sólarkveðja frá okkur hér á Spáni steikjandi hiti og blíða. Ég er frekar löt að liggja sumir eru duglegri. Skilaðu kveðju til allra og saknaðar kveðja til mömmu þinnar. kærleiks kveðja frá Sólbergi.

Skrifaš žann 15. June 2008 15:04.

Hundakonan í kópavoginum.....

Það er svo fallega skrifað hjá þér pistillinn um greininguna á Magnúsi, og sorgina/gleðina. Fékk tár í augun við lesturinn.... En hann er sko ekkert verri þó hann sé einhverfur, það er til fullt af börnum/fólki sem eru ekki greind eitt eða neitt en eru stór skrítin og óþolandi, svo ekki sé nú minnst á hvað þau tala undarlega og óskiljanlega ;-) Svo er örugglega hægt að greina alla eitt eða annað....ég yrði t.d. greind stórskrítin og undarlegur alki (m.v.hvað mér finnst bjór góður og skilgreining hjá SÁÁ á alka er víst ef maður drekkur yfir 4 bjóra á viku... ) Bestu kv. elsku vinkona, þú ert frábær!!

Skrifaš žann 9. May 2008 14:26.

Sigurbjörg frænka

Já svo gleymdi ég einu hehe það er víst aldurinn.

Ég var að fá póst frá þroskaþjálfafélaginu sem ég ætla að líma hér inn ef þú skildir hafa áhuga:
...................
Út er komin Bókin um einhverfu, spurt og svarað eftir S. Jhoanna Robledo og Dawn Ham-Kucharski, fyrsta handbók sinnar tegundar á íslensku.

Í bókinni nýta höfundarnir reynslu sína og þekkingu til þess að svara brýnustu spurningum foreldra, vina, kennara og annarra sem að einhverfum kunna að koma, allt frá því hvernig bregðast skuli við þeirri vanmáttartilfinningu sem kemur yfir foreldra þegar þeir heyra um greininguna í fyrsta skipti, til spurninga um orsakir einhverfu, einkenni og meðferðarúrræði. Þá eru í bókinni kaflar um uppeldi, menntun og framtíðarhorfur, auk þess sem gerð er grein fyrir lagaumhverfi á Íslandi og þjónustuaðilum. Öll eru svörin sett fram á aðgengilegan hátt og taka mið af nýjustu rannsóknum.

Bókin er gefin út af Græna húsinu www.graenahusid.is í samvinnu við Umsjónarfélag einhverfra. Eiríkur Þorláksson og Sigríður Lóa Jónsdóttir þýddu og staðfærðu.
..........................


Skrifaš žann 7. May 2008 13:52.

Sigurbjörg frænka

Sæl Hulda ofurgella og fjölskylda.

Var að lesa vefdagbókina hjá þér og sá að litla krúttið þitt var að fá greiningu. Ég vildi bara segja þér frá því að ég var að vinna með börnum með einhverfu bæði í leikskólanum og Lækjarskóla og þú mátt alveg ónáða mig hvenær sem þú vilt ef það vakna einhverja spurningar sem ég gæti kannski svarað ef ekki þá er allavega alltaf gaman að heyra í þér :) og ekki væri verra að sjá þig í eigin persónu.

Skrifaš žann 7. May 2008 13:50.

1 2 3 4 5