

Sælt kæra fólk,
Hvað er að frétta :) Hér er ýmislegt að frétta. MJJ kominn í miklar mútur þannig að hann gengur hér um bæði djúpradda og skrækur, vex sem arfi.
Helena á oft frábær orð, t.d. um daginn spurði hún hissa: Er jarðskjálftur? hahaha þessi elska er svo dásamleg.
Kleó er söm við sig, átvagl og dekurrófa. Sér um að setja kattahár alls staðar. Á húsgögn, á föt, í Tupperwaredósir og bara út um allt :) en ég brosi bara og tíni þau úr.
Jæja, man bara ekki eftir neinu fyndnu akkúrat núna.
Lifið í friði.
Skrifa athugasemd