

Sæl og blessuð!
Nú getur maður sagt að í næsta mánuði byrjar skólinn. Hér á þessu heimili er bæði tilhlökkun og kvíði. MJJ fer úr hverfisskólanum í Foldaskóla, í unglingadeild!
Já litla örverpið mitt er að fara í 8.bekk. Ég búin að fá bækling um fermingafræðslu, búin að panta sal fyrir fermingaveisluna, hann búinn að láta okkur foreldra fá lista yfir hvað hann vill í gjöf 
Ég er svo stolt af börnunum mínum. Þau hafa gengið í gegnum fullt af erfiðum hlutum eins og margur og staðið sig vel og eru góðar manneskjur. Þau eru góðar manneskjur vegna sinna eigin persónuleika, vegna sinna gena sem þau hafa erft frá okkur foreldrum þeirra, foreldrum okkar og foreldrum þeirra og svo framvegis (eða afturvegis
)
Núna í sumar dó kona sem var mér afar kær, kona sem var einmitt mjög góð manneskja. Hún hét Steinunn og var systir mömmu. Sambandið á milli mömmu og Steinunnar var svo fallegt. Þær voru systur og vinkonur. Steinunn var tvíburi í móðurkviði en því miður lést hinn tvíburinn á meðgöngu. Tveimur árum síðar fæddist mamma og var hún stundum kölluð "hinn tvíburinn" því þær voru svo líkar að utan sem innan. Ég veit ekki hvernig maður huggar fólk sem missir hluta af sjálfri/sjálfum sér
Sorgin leyfði fjölskyldu Steinunnar ekki að ná andanum áður en hún bankaði upp á aftur er annar nákominn lést og í millitíðinni hafði aldraður frændi minn látist einnig. Í þessu öllu stendur móðir mín upprétt og jafnvel hugsar um okkur krakkana eins og alltaf. Ég dáist að móður minni fyrir kærleika hennar sem er óþrjótandi, fyrir dugnað og kjark sem er endalaus og fyrir að halda alltaf áfram þrátt fyrir að lífið hafi skellt oft á tíðum harkalegum hindrunum á hennar lífsleið.
Lífið gefur okkur líka dásamleg augnablik og bætir við ættingjum.
Til allra þeirra sem lesa þessar furðulegu síður mínar - takk fyrir að gefa ykkur tíma í að lesa þetta.
Munið að sjá það fallega í því smáa - litlum augnablikum þegar þú gengur framhjá litlu barni sem fitjar upp á nefið og brosir til þín, þegar þú tekur eftir eldri hjónum leiðast eða tekur eftir blóminu Gleym mér ei.
Skrifa athugasemd