

Sælt veri fólkið.
Ég þurfti að rökstyðja fyrir yngri syni mínum af hverju ég hefði málað mig um augun (honum finnst það algjör óþarfi þar sem ég er gift). Ég sagði honum að ég hefði þurft að fara í búðina og af því ég er búin að vera með flensuna svo lengi þá vildi ég mála mig svo ég liti ekki út eins og draugur............smá þögn hjá spekingnum og svo sagði hann: En þú ert ekki mjó. Ha? hváði ég.
Draugar eru mjóir þannig þú lítur ekki út eins og draugur. Já elsku börnin eru alltaf jafn yndisleg. Eftir að ég var búin að hlæja þá útskýrði ég að sú merking sem ég legði í það að líta út eins og draugur væri að vera fölur og slapplegur.
Jaaaá heyrðist bara í honum.
Ég er hætt að fylgjast með hraða tækninnar sem þýðir bara eitt, ég er að eldast. Krakkarnir eru byrjuð að taka símann af mér ef þarf að gera eitthvað (ég hafði kunnað ýmislegt áður og ekki þurft að láta rífa símann úr höndunum á mér) og stilla hann fyrir mig.
Það eru byrjaðir gelgjustælar hjá Magnúsi, systur sinni sérstaklega til ama. Hún tautar oft: Guð minn góður, var ég svona?!
Skrifa athugasemd