

Jæja - aumingja kötturinn fær að finna á því, fær að finna til tevatnsins, fær að finna hvar Davíð keypti ölið, að enginn er óbarinn biskup.
Kleó hefur tekið upp á því að sofa til fóta hjá okkur hjónum, hún hefur nokkrum sinnum fengið sængina hans Jóns yfir sig og á sig þannig hún hefur fært sig yfir á minn helming. Einnig finnst henni voða gott að klifra upp á mig og sofa á bringunni á mér eða á hliðinni á mér.
Í nótt gerðist það svo að Jón var búinn að hrekja hana óvart af horninu með því að vippa henni frá þannig hún ákvað að klifra upp á bringuna á mér. Ég vakna alltaf þegar þessar litlu loppur byrja að klífa mig og svo kemur hún sér fyrir á bringunni á mér. Núna ákvað hún samt að snúa rassinum á sér í andlitið á mér. Mér fannst það ekkert sérstaklega spennandi en við sofnuðum báðar. En viti menn ég sofnaði svo djúpt að ég steingleymdi að hún var á bringunni og sný mér snöggt á hliðina og elsku Kleó skutlast næstum í bókahillu sem er við hliðina og á gólfið. Hún varð eitthvað fúl yfir þessu og lét ekki sjá sig lengi sama hvað ég sendi mörg kyssi-hljóð út í loftið en hún hefur lært að ef einhver notar kyssihljóð þá kemur hún.
En hún var síðan búin að fyrirgefa okkur þegar við vöknuðum og fórum á fætur því þá var hún svo gasalega svöng og vafði sig á milli fóta okkar :) Annars gengur vel með hana.
Nú fara allir ungarnir okkar Jóns að byrja í skólanum á vorönninni, Róbert fer aftur í HR, Helena í Borgarholtsskóla og Magnús í Hamraskóla.
Eigið góðar stundir.
Skrifa athugasemd