Magnús Jón
 

Dálítið gott á mig þegar ég hef hneykslast á einhverju og geri svo það sama!

Þannig er  mál með vexti að þegar ég var um þrítugt átti ég það voða mikið til að vera með sleggjudóma, alveg hægri vinstri.  Eftir 33 ára aldur varð ég aðeins linari í dómum og fór að sjá aðstæður fólks öðru ljósi. 

Ég t.d. átti það til að hneykslast þegar fólk var að kyssa og kjassa dýrin sín og tala um þau eins og börnin sín og ég veit ekki hvað og hvað.  Um 35 ára aldurinn skyldi ég að fólki þætti vænt um dýrin sín og hugsaði vel um þau.  

Nú er búin að eiga Kleópötru, Kleó, í rúman mánuð og mig langar helst að láta hana sofa í vöggu við hliðina á mér!! Er þetta hægt nei held ekki sko!

Það er mjög vont veður hér í kvöld og höfum við haft kveikt á kertum með þá leyndu ósk að rafmagnið fari af en það fór ekki þannig nú slekkur maður bara ljósin og segir góða nótt kæra fólk :)

30. November 2014 - 23:10



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti