

Kæra fólk!
Það hefur fjölgað á heimilinu. Í hópinn okkar hefur komið kötturinn Kleópatra. Ljúf og blíð kisa, sem til að byrja með leyfði helst ekki að láta halda á sér en leyfir það núna þótt henni finnst það ekkert æði. Hún hafði verið hjá okkur í 2 sólarhringa þegar ég fór með hana á dýraspítala og lét taka hana úr sambandi og ormahreinsa og örmerkja - aumingja greyið skildi ekkert í þessum leiðindum í okkur. Þegar ég og MJJ og Helena komum síðan að sækja hana seinna þann dag úr aðgerðinni þá þurfti 2 starfsmenn til að koma henni í búrið því hún var sko alls ekki ánægð með þjónustuna þarna!! Við komum með hana heim og þar gekk hún um eins blindfullur sjóræningi. Sofnaði hér og þar og alltaf með opin augun - okkur fannst þetta mjög óþægilegt hvernig hún gat starað á okkur án þess að blikka augunum en eftir símtal á spítalann kom í ljós að fita er borin í augun á dýrunum og þau geta því sofnað með opin augun sólarhring á eftir aðgerð. Síðan hefur þessi elska fyrirgefið okkur því hún kemur upp í hjónarúm á nóttunni með fullt af "gjöfum" handa okkur Jóni, yfirleitt gerir hún þetta það hljóðlaust að við vöknum ekki og tökum fyrst eftir því á morgnana að nokkrar leikfangamýs eða spotti eða ullarsokkur er kominn upp í rúm til okkar 
Hún er afskaplega forvitin og þefar af öllu og þefar út í loftið þegar einhver ný lykt kemur á heimilið og heyrnin er í lagi því ef eitthvert skrjáf heyrist í eldhúsinu þá er hún mætt þegjandi og hljóðalaust eins og vofa.
Kleó, eins og hún er kölluð, er mjög klifurgjörn. Hún t.d. klifrar upp í bókahillu við hliðina á rúminu mínu og treður sér ofan á bjútíbox, eða stekkur upp í 3 hillu á annarri bókahillu og situr þar og starir á mann eða klifrar upp skúffugrindur í fataskápnum mínum og kemur sér svo fyrir í einni hillunni. Í eitt skiptið hafði ekki lokast alveg hurðin á fataskáp Jóns og hún kom sér þar inn og klifraði upp skúffur og tróð sér svo á bakvið stöngina sem herðatrén eru hengd á og lá ofan á skyrtunum!!
Jæja elskurnar - hafið það sem allra best
Hulda
Skrifa athugasemd