Magnús Jón
 

Hulk.

Sæl og blessuð kæra fólk.

Ég er farin að fá hitaköst.  Hvort sem það er aldri eða nýjum lyfjum um að "þakka" veit ég ekki en þessi köst eru líklegast komin til að vera í einhvern tíma.  Þegar ég fæ þessi köst þá finnst mér óþægilegt ef einhver er utan í mér eða liggur á mér að hluta eða bara talar voða mikið við mig.  Ég var að reyna að útskýra þetta fyrir Magnúsi, þ.e. um hvað þessi hitaköst snéru og af hverju ég hefði hvæst obbolítið á hann þegar hann vildi liggja á mér og spyrja mig þúsund spurninga.  Ég sagði að þegar þetta gerðist þá einhvern veginn hitnaði ég öll og jafnvel svitnaði og yrði eiginlega bara frekar pirruð.  Jaaaaá er þetta svona eins og þegar Hulk er að breytast? 

Mér fannst þetta frábær skýring hjá honum!

Ég hef lýst því hér áður að fjölskyldumeðlimir hafa gripið andann á lofti þegar nær dregur blæðingum hjá mér og stundum bakkað frá mér, nú erum við mæðgur á svipuðum tíma mánaðarins á þessum gleðidögum og eru mennirnir í þessari fjölskyldu farnir að hengja höfuð þegar þeir gera sér grein fyrir þessu.  

Þegar ég var yngri þá var ég svo handviss um margar minningar mínar - þær bara hlytu að vera 100% réttar af því þannig man ég það.  Síðan kom oft í ljós eftir hláturrokur móður minnar að sumar minningar mínar voru ekki réttar, ekki einu sinni rangar heldur barast ekki til heldur.  Núna skil ég hana að vissu leyti því börnin mín skella þessu kinnroðalaust á mig :)  Ég sagði í kvöld sorrý við MJJ því ég hafði ekki eirð í mér til að hlusta á eða skoða Lego, þetta var líklegast í 15 skiptið sem hann spurði mig í dag, þegar ég hafði sagt sorrý þá heyrist í honum, vá í fyrsta skiptið sem þú segir sorrý við mig og ég sagði nei það er ekki rétt, jú segir hann, þá minnti ég hann á að ég hefði sagt einmitt sorrý um daginn og hann hefði sagt nákvæmlega það sama við mig þá.  Hann mundi þá að það hefði gerst.

Lifið í friði.

4. August 2014 - 21:22



Athugasemdir

Hulda Magnúsdóttir

Bara tékk ađeins

14. September 2014

Nafn


Texti