Magnús Jón
 

Átt þú 2 en pabbi 1?

Góðan daginn gott fólk.

Ég fór í helgarferð til Akureyrar um daginn.  Á meðan ég var að pakka niður sat örverpið á hjónarúminu og fylgdist með.  Ég var með alla fataskápa opna til að sjá hvað ég átti og máta hvað ég ætti að taka með.

Í miðju ferlinu spyr hann hissa:  Mamma, átt þú 2 fataskápa en pabbi bara 1?  

Magnús verður fljótt hærri en ég og þar með verð ég minnst í fjölskyldunni.  Þetta er takmarka flestra í ættinni minni og minnir mig á Sigþrúði ömmu mín en hún var lágvaxin með afbrigðum og í hvert skipti sem við fjölskyldan komum suður frá Skagaströnd var það fyrsta sem maður gerði að máta sig við ömmu Smile

Eldri börnunum finnst Magnús Jón sleppa vel með flest allt.  Hann fær allt, má allt og kemst upp með allt (hafa ber samt í huga að MJJ er afskaplega ljúfur og gerir eiginlega ekkert nema spyrja um leyfi fyrst) Hann má fá dót, hann má svara öðruvísi en þau máttu, hann má seinka heimanámi um 1 klst kannski sem þau máttu ALDREI gera annars færi hausinn af þeim (þeirra orð ekki mín) Ég er enn að dúlla við MJJ sem ég var löngu hætt að gera með þeim eins og t.d. að hjálpa honum að taka Lego upp úr gólfinu eða leyfa honum að sleppa að taka til.

Yfirleitt tekst manni ekki að hrista upp í Róberti en ég sá tækifærið og greip það (nastý mamma).  Þannig var að við vorum að tala um peninga og vinnu og Róbert fór að tala um unglingavinnu við MJJ.  "Þú þarft að fara í unglingavinnuna og safna pening þar. "  Þá segi ég:  Æ veistu ég held að hann fari ekkert að vinna bara fyrr en kannski 9. eða 10. bekk eða eitthvað" og svo yppti ég öxlum kæruleysislega.  Svipurinn á frumburði mínum var stórkostlegur.  Hneykslaður spurði hann:  Af hverju ætti hann að sleppa?  Augabrúnir hans lengst upp á enni og augun galopin.  Ég gat nú ekki strítt þessari elsku lengi og sagði honum að það væri farið að stytta unglingavinnuna, þ.e. það er ekki vinna fyrir nema kannski 9. eða 10. bekk síðast er ég vissi.

Nú er sumarfrí og MJJ eiginlega saknar skólans.  

En nú er hann búinn að hella úr 2 stórum kössum af Lego á stofugólfið og því framundan Lego upptínsla hjá húsmóður :)  Æ það er allt í lagi, hann er nú litla barnið mitt Wink


27. June 2014 - 13:23



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti