

Komið þið sæl,
Konur eru skrýtnar. Þetta kom allt í einu upp úr örverpinu eitt kvöldið. Ekki komu nánari skýringar á þessu svo ég hóf laaaangan fyrirlestur um það hvað við konur værum frábærar, værum alltaf að skipta um skoðun jafnvel í sömu setningunni, værum að pæla í skóm og svona.
Dóttir okkar hringdi áðan og sagði: Við (áhersla lögð á við) ætlum að koma við á eftir að sækja tölvuna mína.
Hvað segirðu.........meinarðu þá að hann komi líka?? (hún á nefnilega vin - VIN) fliss í henni og já hann ætlar að koma upp líka. En ég er komin í náttkjólinn!!Ég verð þá að klæða mig! sagði ég alveg forviða. Já þú verður bara að klæða þig.
Á ljóshraða kvaddi ég barnið, greip brjóstahaldarann, leggings og peysu og hljóp inn á bað. Nei takk þessi "vinur" hennar skyldi sko ekki sjá mig eins og hænurass! Á fimm mínútum var ég klædd, komin með maskara, búin að greiða hárið til hlýðni og skellti svo á mig glossi sigri hrósandi.
Ha! Já maður verður að reyna alla vega - svo kem ég fram og Jón sér að ég er komin með gloss og alles og hlær að mér þá tek ég eftir því að eiginmaður minn til 20 ára ætlar að taka á móti tilvonandi .öööö ég meina vini Helenu...í náttbuxunum og með svaka hárspennu í hárinu!!
Mér fannst hann full kæruleysislegur í klæðnaði og spyr hann gáttuð hvort hann ætli ekki að klæða sig eða alla vega taka hárspennuna úr hárinu. Neibb, hárið flækist svo út um allt hjá honum. Ég hægt og rólega þurrkaði ég glossið af mér, ég ætlaði ekki að skyggja á manninn í náttbuxunum með hárspennuna :)
Nú eru 2 vikur eftir af skóla og sumarið brostið á.
Hafið það rosalega gott.
hahaha eruð yndisleg en mig vantar upplýsingar um heimsóknina....