Magnús Jón
 

Mamma þú ert miklu fallegri núna!

Já það er ekki slæmt að byrja daginn á þessari setningu.

Þetta sagði örverpið mitt við mig eldsnemma í morgun:  Veistu það mamma að mér finnst þú miklu fallegri núna en þegar þú varst ung...........................en ég sjáði þig heldur aldrei þegar þú varst ung!

Hahahahaha - ég gat nú ekki annað en brosað - og svo skrapp ég aðeins með Róberti og kynnti mig og þá horfði konan á mig og sagði svo:  Bíddu ert þú mamma hans?! En þú ert svo ung

Það þarf varla að segja það að rauðum bjarma lýsti inni í herberginu og ég brosti svo breitt að ég fékk verk í eyrun!

Og til að skilja ekki prinsessuna út undan þá kom hún heim - opnaði herbergið sitt - snéri sér við og dæsti mikið og sagði með þunga:  Ég bara get ekki byrjað að taka til í þessu herbergi - það er ógeðslegt!!

(lesist hún settist á rúmið og mamman fór á hnén að brjóta saman föt og setja í óhreina tauið) 

Annars er bara allt gott að frétta - kusum ekki í Júróvisiondæminu - Jón tryllti upp á Þingvöll í gærkvöldi með vini sínum að taka myndir og ætlaði að ná Norðurljósunum og á leiðinni var himininn baðaður í grænum loga, þeir skrensa og leggja bílnum, trylla myndavélunum út og á þrífótinn og Kabúmm - Norðurljósin fóru!  

Pabbi hefði orðið 69 ára næsta laugardag og föðuramma mín hefði orðið 106 ára á föstudeginum og svo á sunnudaginn verður kaffiboð hjá ættingjum Jóns því amma hans hefði orðið 100 ára 14.febrúar.

Hafið það rosagott :)

17. February 2014 - 17:49



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti