Magnús Jón
 

Kibota Daniel

Mynd 1 af 1

Þetta er hann Kibota Daniel okkar í Úganda - við höfum styrkt hann í gegnum ABC hjálparstarfið og þar sem má ekki senda miklar gjafir hef ég sett smáræði í pínustórt umslag og sent út. Stundum efast fólk um að gjafir nái á endastöð en alltaf fyrir utan einu sinni hafa bréfin okkar komist til hans. Á fyrstu myndunum þegar við byrjuðum að styrkja hann var hann alvarlegur lítill kútur en nú var hann voða glaður að fá vaxliti og nokkur blöð og fleira smádót. Hann skrifaði bréf og teiknaði og litaði og sagðist vera "..so happy" :) Hjálparstarf ABC er ómetanlegt og hjálpin berst alla leið.

 


Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti