

Alltaf jafn gaman að skoða síðuna ykkar og sjá hvað allir eru glaðir og hamingjusamir. Góða ferð í "sveitina" :0)
Yndislegar myndir ... svo gaman að upplifa Kólumbíu með ykkur:)
Það gengur greinilega allt eins og best verður á kosið ... ekki hægt að biðja um meira:)
Knús og kveðjur,
Gígja og co.
Kæra fjölskylda
Alltaf jafn gaman að líta hér við. Þið eruð rosalega dugleg að setja inn myndir og á því græðum við hin svo sannarlega. Vonandi halda dagarnir áfram að vera ykkur góðir.
knús og kveðjur
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Góðan daginn dásamlega fjölskylda.
Það er algjör unun að kíkja á ykkur og myndböndinn eru æði. Gaman að sjá hversu vel ykkur gengur að aðlagast hvert öðru.
Bestu kveðjur
Klara, Bragi og Egill Vatnar
Hæ elskurnar það er svo gaman að fylgjast með ykkur :) Vigfús er algjörlega dásamlegur og þessi brúnu augu svo ótrúlega falleg :)þið eruð heppin öll að fá að eiga hvert annað.knús og kossar og haldið áfram að njóta ykkar í botn.
Hæ hæ flotta fjölskylda.
Hann er svo yndislegur og flottur hann Vigfús William. Ég fæ bara ekki nóg að horfa á myndböndin af honum. Fyrsta sem ég geri þegar daman mín fær sinn lúr er að kíkja hér inn;)
Vonandi hafið þið það sem best í Kólumbíu og hlakka til að heyra hvað þið ákveðið að gera varðandi ferðalög.
Kveðja
Jana, Atli og Katrín Rut
p.s. var þetta nokkuð ís frá Crepes &waffles? Oh ég gæfi mikið fyrir einn svoleiðis og maturinn þar er geggjaður, þið verðið eiginlega að prófa;)
Halló :)
Alltaf að kíkja :) Skil vel að ykkur langi til að skoða ykkur um, því ekki..þið verðið nú örugglega ekki stödd í Kólumbíu á næsta ári aftur. Vigfús William finnur öryggið sitt hjá ykkur hvar sem þið verðið, þið haldið svo flottri rútínu á honum :)
Njótið dagsins :)
Kærar kveðjur úr Móasíðunni
Birna og co
Æi, hvað við værum nú til í einn svona strák:) Hann er bara algjört æði:) Yndislegt að fá að fylgjast með ykkur:)
Knús og kveðjur,
Gígja og co.
Sæl elsku Þórgunnur og fjölskylda
Til hamingju loksins, loksins. Hann er algjör dúlla, jafngamall mínum yngri sem varð tveggja ára á þessu ári. Það verður gaman að fylgjast með ykkur hérna og vera svo í sambandi þegar þið komið heim.
Sendi hlýja strauma og kveðjur frá Vestmannaeyjum.
Hólmfríður Sigrún og gaurarnir hennar.
það er svo gaman að skoða þessa síðu, ég er hérna inni 5sinnum á dag (Vala)
það er svo æðislegt að sjá hvað hann er að dafna vel hjá ykkur alltaf meira og meira brosandi og ánægður með þessa yndislegur foreldra með hann valdi sér, þið eruð svo lánsöm að hafa hvert annað..... falleg framtíð hjá ykkur og allri fjölskyldunni...:)
takk æðislega að vera svona dugleg að sinna síðunni þannig að við hérna heima getum fylgst með ykkur
og vá hvað okkur hlakkar til að fá ykkur heim í fjörðinn fagra
knús og kossar, krams og kjassar
kv. Hlíðarvegagengir í 34
Það er yndislegt að sjá myndirnar af ykkur og hversu vel gengur. Bestu kveðjur í bæinn,
Eyrún og co
Halló :)
Já hér byrjar hver dagur á þessum morgunverkum að athuga með fréttir og myndir :) Gaman að sjá litla kút, sjá að hann er að skríða úr skel sinni gagnvart ykkur :) Þið eruð náttúrlega bara flottust saman :)
Hvernig sefur svo litli kútur ? Vona að þið fáið að hvíla ykkur á næturnar :)
Kærar kveðjur og stórt knús á ykkur :)
Birna og co
Kæra fjölskylda!
Innilega til hamingju með fallega drenginn ykkar. Yndislegar myndirnar og gaman að fá að fylgjast með þessari stóru stund í ykkar lífi. Gangi ykkur áfram vel!
Bestu kveðjur Guðrún og Stulli
Kæra fjölskylda. Til hamingju með yndislega drenginn ykkar, það er gaman sjá myndirnar og lesa frá lífi ykkar þessa daga, sem hljóta að hafa verið ævintýri líkastir. (Ég kom við hjá afa og ömmu á Dalvíkinni og þau voru að springa af stolti). Megi gæfan fylgja ykkur. Kveðja frá víkinni - Herborg (Mási biður kærlega að heilsa.)
Það er alveg magnað að fylgjast með þessu - hér byrjar hver dagur á að fara í tölvuna og kanna hvort nýtt efni er komið inn- haldið áfram að vera svona dugleg að setja inn efni þá getur maður fylgst svo vel með - hann er algjör draumur drengurinn. Kveðja úr Hvassaleitinu
Vigfús Willam til hamingju með foreldra þín þú ert heppin.Höfum fengið að sjá myndir og smá videó af þér hjá ömmu (Karen vill sjá meira meira ) Kveðjur frá frænkum þínum Örnu Dögg og Karen Dögg Akureyri
Nú er komin tími til að kvitta er búin að fara svo oft inn á síðuna til að fylgjast með ykkur. Hjartalega til hamingju með fallega drenginn ykkar Vigfús Willam.Megi gæfa fylgja ykkur um ókominn ár
Bestu kveðjur .Halldóra og Maron
Hæ hæ :)
Dásamleg kastmyndin ;) við eigum nokkrar svona og þær vera geymdar vel og vandlega og teknar út við góð tækifæri síðar ;) En það er gott að hann "testar" ykkur svona :)
Hann er dásamlegur þessi fallegi strákur ykkar og yndislegt að sjá hann í foreldrafangi :)
Kærar kveðjur til ykkar!
Birna og co
Elsku fjölskylda til hamingju með að eignast hvort annað! Æðislega gaman að skoða myndirnar,myndböndin og bloggið og takk fyrir að leyfa okkur heima að fylgjast svona vel með.. Hann Vigfús er ekkert smá fallegur og æðislegur strákur og er greinilega mjög ánægður hjá ykkur!! hlökkum til að sjá ykkur öll!!
Það er bara yndislegt að fylgjast með ykkur og lesa hvað það gengur allt vel og myndirnar eru æði. Takk fyrir að vera svona dugleg að setja inn myndir. Þið eruð greinilega í allt öðru umhverfi í Cali en við vorum í Neiva og er ég ofsalega ánægð að heyra það;) Vonandi gengur ferlið áfram og þið þurfið ekki að bíða neitt allt of lengi eftir dómnum:)
Bestu kveðjur
Jana og Katrín Rut sem hefur átt sinn erfiðasta dag í dag hjá okkur.
Frábært að sjá og lesa hvað allt gengur vel:) Við fylgjumst vel með hérna í hamrinum!
Innilegar hamingjuóskir með þenna frábæra strák - ert þetta ekki algjört æði! Yndislegt hvað gengur vel hjá ykkur og njótið hverrar stundar. Við fylgjumst spennt með og höfum skoðað myndböndin vel og vandlega. Tvíburunum fannst Bogota ROSALEGA stór og heiti potturinn æði, enn mikill hávaði í bílunum ;o) Höfum átt mjög innilegar samræður og meðal annars spurt hvort þessi skemmtilegi strákur væri ekki frændi þeirra. Þau eru afar stollt af þessum litla snáða og finnst hann mikið krútt.
Ástarkveðjur
Anna Margét, Jón Einar og Margrét Rós (6 ára)
Yndislegar myndir og myndbönd. Ómetanlegt að sjá hann í hláturskastinu í dag !
Maður víbrar hreinlega af öllum góðu straumunum sem maður sendir til ykkar elskurnar :)
LovJú
Ekki annað hægt en að líta hér við a.m.k. einu sinni á dag. Vifús William er yndislegur og þið ekkert smá dugleg að setja inn myndir og myndbönd.
Enn og aftur til hamingju með hvert annað.
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Myndböndin eru yndisleg:) Þið eruð heppin að hafa fengið þennan strák í hendurnar:)
Knús og kveðjur,
Gígja og co.
Kæra fjölskylda
Innilegar hamingjuóskir með hvert annað.
Hann er svo fallegur litli strákurinn ykkur og greinilega alveg yndislegur. Æðisleg myndbönd hjá ykkur.
Bestu kveðjur
Bjarnhildur og Friðrik
til hamingju ;** frábær strákur og rosalega fallegur =)
Vá ekkert smá sætur strákur... Innilega til lukku með hann. Hlökkum til að sjá hann þegar við komum norður.
kveðja að austan
William, Jóhanna og Smári Leví
Innilega til hamingju með fallega prinsinn ykkar, gaman að fá að fylgjast með ykkur og gangi ykkur vel :) Kveðja úr firðinum fagra
Innilega til hamingju með litla prinsinn:) Hann er bara fallegur og æðisleg augu. Maður er alltaf með tárin í augunum þegar maður er að skoða myndirnar eða les í dagbókinni. Gangi ykkur vel með framhaldið.
Kveðja úr firðinum