

Til hamingju kæra fjölskylda!:) Nú styttist heldur betur í heimferðina!:)
Knús og kveðjur,
Gígja og co.
Elsku Þórgunnur
Sit bara hér og skæli þegar ég skoða þessa yndislegu síðu. Innilega til hamingju með drenginn ykkar. Ég hitti Andreu og mömmu þína í Hagkaup áðan og fékk nýjustu fréttir og slóðina á síðuna hjá þeim. Mikið hlakka ég til að sjá ykkur og fá að fylgjast með litla Vigfúsi William. Hann er ólýsanlega fallegur og yndislegur. Það sést best á myndböndunum. Góða heimferð. Bestu kveðjur til Arnars. Og hamingjuóskir og kveðjur frá restinni af fjölskyldunni
Knús
Anna Ólafs
Dásamlegt að heyra að þið séuð farin að eyja það að komast heim því heima er BEST. En og aftur takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með það hefur verið alveg ómetanlegt fyrir okkur að geta stytt okkur stundir og skoðað fallegar myndir af hamingjusamri fjölskyldu sem greinilega var ætlað að ná saman.
Bestu kveðjur og gangi ykkur vel á endasprettinum.
Klara, Bragi og Egill Vatnar sem eru tilbúin við rásmarkið.
Ég segi eins og Birna, gott að fá fréttir af ykkur:)
Við biðjum kærlega að heilsa Veru og Juan og þið megið segja þeim að við hlökkum mikið til að vera hjá þeim aftur:)
Drengurinn hefur heldur betur braggast í mömmu- og pabbafangi ... bara yndislegur:)
Knús og kveðjur,
Gígja, Tommi og María Mist.
Halló,
gott að fá loksins fréttir af ykkur, refresh takkinn orðinn eyddur ;)
Skil svo vel að þið séuð farin að þrá að komast heim og fara að koma öllu í sínar skorður, erfitt að vera svona á þvælingi og fjarri öllum sínum.
Nú hlýtur þetta að fara að koma :)
Kærar kveðjur til ykkar :)
Birna og co
Vonandi fer vel um ykkur hjá Veru og Juan. Við biðjum kærlega að heilsa þeim:)
Nú hlýtur að fara að styttast í dóminn svo þið getið farið að huga að heimferð því okkur fannst nú allt gerast hratt eftir að sá áfangi var búin. Við skiljum svo vel að hugurinn er farin að halda heim því þetta er langur tími til að vera frá ástvinum og auðvitað eins og þú segir best fyrir börnin að komast í sitt framtíðarumhverfi með mömmu og pabba. Þá fóru líka hlutirnir að ganga enn betur í okkar tilviki og allt enn betra og þægilegra:)
Við fórum með Hermanni okkar í æðislega mynjagripaverslun þar sem maður gat keypt allt sem maður var búin að vera að sjá á götunum á einum stað og ekki dýrara, bara svona ef þið viljið vita af því;)
Alltaf gaman að kíkja hér inn og hafið það sem allra best í Bogotá.
Kveðja
Jana, Atli og Katrín Rut
Jeminn, Vigfús William er nú meiri prinsinn, og fallegu brúnu augun maður minn! Hann algerlega bræðir mann með fallega brosinu. Vonandi fer að styttast í heimferð hjá ykkur, gangi ykkur vel á komandi vikum.
Kveðja Jónína.
Elsku Þórgunnur, Arnar og Vigfús william. Yndislegt að heyra og sjá hvað allt gengur vel hjá ykkur, það gaman að fá að fylgjast með. Bestu kveðjur frá okkur.
Ekkert smá flottar myndir úr sveitinni, gaman að fá að sjá hvernig "lífið" í Kolumbíu er.
Vonandi fer svo tíminn ykkar úti að styttast, þannig að þið komist heim til að hitta stóru systur.
bestu kveðjur
Stina, Nonni og Friðrik Daði Deb
Bara yndislegt að skoða myndirnar úr sveitinni og rifja upp gamla tíma:) Algjörlega dásamlegur staður:)
Vigfús William er náttúrulega samt yndislegastur!:) Það sem þið eruð heppin!:)
Knús og kveðjur,
Gígja, Tommi og María Mist.
Takk fyrir fréttir! Var búin að tékka nokkrum sinnum ;)
Æðislegar myndirnar og greinilega margt fróðlegt og skemmtilegt að skoða.
Vigfús William alltaf jafn flottur og ég er ekki frá því að mig eigi eftir að langa til að knúsa hann svolítið þegar þar að kemur :)
Njótið dvalarinnar þarna, mér sýnist varla annað hægt :)
Knús og kveðjur
Birna
jæja Þórgunnur:) heldurðu að hann léttfeti(ég) hérna hafi ekki bara hlaupið til Dalvíkur í dag í hreins út sagt hyggeligt veðri:) var bara næs,, þótt að hlaupafégann(þig) hafi vantað:) reikna fastlega með að við förum þetta saman næsta sumar:)
annars skilja ég bara kveðju á restina af famelíunni og alltaf er jafn gaman að fletta í gegnum myndirnar og sjá hvað hann er frábær litli strákurinn YKKAR:)
Hilsen Villi ;)
Bara að láta ykkur vita af okkur. Agalegt að vera ekki búin að heyra frá ykkur í tæpa viku! Maður er komin með fráhvarfseinkenni :)
Ég er að reyna að taka ykkur mér til fyrirmyndar og bæta úr myndaleysi á síðunni hans litla kúts - set eitthvað inn núna á eftir.
Hlakka til að heyra í ykkur elskurnar - njótið sveitasælunnar til hins ýtrasta!
LovJú
Innilegar hamingjuóskir með litla drenginn ykkar!
Gaman að fá að fylgjast með ykkur kæru vinir! Takk kærlega fyrir það!
Góðar kveðjur með ósku um góða daga og megi þið njóta lífsins nú og alltaf!
Ólöf og Barði
Við hjónin erum í hvílíkri nostralgíu þegar við skoðum síðuna ykkar....myndirnar rifja svo sannarleg upp margar góðar minningar og það er alveg öruggt að við munum fara aftur sem fyrst til fæðingarhéraðs barnanna okkar. Takk, takk, takk fyrir að setja inn allar þessar frábæru myndir af umhverfinu. Okkur finnst við hafa dottið í hvílíkan lukkupott að geta sýnt þeim þessa yndislegu liti í nýjum myndum :o). Finnst ykkur heimamenn ekki litaglaðir - en samt ótrúlega smekklegt á sinn hátt - draumurinn er að eignast kólumbískan sumarbústað í Skorradalnum ;o)
Ekki spillir fyrir að sjá gullmolann ykkar blómstra í höndunum á mömmu og pabba, hann er nátttúrulega algjört sjarmatröll og hvílíkt bros, alveg ómótstæðilegur.
kveðja
Anna, Gummi, Margrét Rós og Jón Einar
Sæl verið þið - innilega til hamingju með prinsinn ykkar. Yndislegur er hann.
Í svona ættleiðingarheimi fréttist af fólki sem er að fá gullmolana sína og maður stenst það ekki að kíkja aðeins þó að maður þekki ekki mikið til ;)
Vona að vel gangi hjá ykkur - þetta er bara yndisleg.
Kær kveðja, Kitta - sem á gullmola frá Kína - 4ra ára yndislega stelpu :)
Innilega til hamingju með þennan yndislega áfanga elsku Þórgunnur og Arnar =) Hann er algjört konfekt þessi elska! Gaman að skoða allar myndirnar af ykkur og sjá hvað þið geislið úr hamingju! =)
Kær kveðja til ykkar frá okkur hérna í bylgjubyggðini
úpps ýtti aðeins of snemma á takkann :) En innilega til hamingju með prinsinn hann er fallegastur :) Gaman að sjá að allt gengur svona vel.. Kveðja frá Ólafsfirði
Bíð spennt eftir að heyra fréttir úr sveitinni. Vonandi gekk flugið og allt það vel :)
Kærar kveðjur
Birna
Villa de Leyva er yndislegur staður:) Njótið ykkar í botn!:)
Knús,
Gígja.
Hei hei hei gaman að kíkja og fylgjast með ykkur ég hugsa í hvert skipti sem ég fer inn á síðurn ykkar hvað hann Vigfús er heppinn að fá ykkur og auðvita þið líka að fá hann. p,s allt í góðum gír í BÓ nema Beg......ga hí hí hí.
Innilega til hamingju með prinsinn ykkar.. :) Hann er yndislegur.. :) Gaman að sjá hvað gengur vel hjá ykkur...
Innilega til hamingju með prinsinn ykkar!!!
Gamna að kíkja á síðuna ykkar og fylgjast með. Gott að vita að allt gengur vel.
Bestu kveðjur úr Eyjafjarðarsveit
Maður kíkir á þessar yndislegu myndir og myndbönd á hverjum degi. Frábært að fá að fylgjast með ykkur :)
Kæra fjölskylda innilegar hamingjuóskir með gullmolann ykkar, hann er yndislegur.. Frábært að sjá hvað gengur vel hjá ykkur :))
Mikið er gaman að fylgjast með ævintýrinu ykkar :) Prinsinn er algjör draumur og dásamlegt að skoða myndirnar ykkar :) Það er hluti af daglegu rútínunni á okkar heimili að kíkja á ykkur í morgunsárið og skoða myndir :) Vonandi náið þið að hrista kvefið úr ykkur því eins og Jana sagði þá þarf maður sko á öllum sínum kröftum og rúmlega það í þessu ferðalagi.
Gangi ykkur vel áfram
Knús og kveðjur
Inga, Ásdís Arna Fen og Freydís Jóna Jing
Akureyri
Guð myndböndin eru æði, þið eruð svo yndisleg með gullmolan ykkar. Sést að þið eruð þvílíkt "happy family".
Kveðja Lísbet frænka
Flotta fjölskylda
Alltaf jafn gaman að líta hér við, það er svo sannarlega gert á okkar heimili og stundum oft á dag:-). Yndislegt að sjá hvað allt gengur vel hjá ykkur:-)
Sólarkveðja úr firðinum fagra:-)
Halló :)
Hann er algjör gullmoli þessi strákur, það leynir sér ekki. Gaman að sjá og heyra hvað gengur vel hjá ykkur. Það er allt svo miklu betra þegar blíðan og knúsviljinn er til staðar :) Þið eruð ótrúlega yndisleg öll saman og hann svo algjörlega strákurinn fyrir ykkur, alveg eins og þetta gerist bara :)
Njótið dagsins! Takk fyrir allar færslurnar og myndirnar :) Ómetanlegt að fá að fylgjast svona með ykkur.
Knús og kveðjur
Birna