Vigfús William Arnarsson
 

Bloggleti

Við höfum verið ákaflega löt að setja inn færslur, ég veit það! Vildi þó koma inn að loksins er vigtin farin að telja af einhverju ráði hjá VWA. Hann er orðin tæp 15 kg........loksins meira en rúm 12. Þegar við fengum hann var hann um 10 kg. Annars er allt gott. Vinnan hjá frúnni komin á fullan skrið og nóg að gera, eiginmaðurinn á síðustu önninni í VMA, svo er bara að krossa fingur að hann fái vinnu hér á víkinni :) Leikskólaveran gengur vel og Vigfús er alltaf janfsæll og glaður. Orðaforðinn fer hratt stækkandi svo og stjórnsemin. Foreldrarnir þurfa reyndar að passa sig á þjónustunni sem þeir veita-hún er stundum kannski aðeins of mikil {#emotions_dlg.laughing}. Frúin er alltaf á leiðinni að hefjast handa við "Lifebook" handa Vigfúsi sem vonandi fer nú að verða að veruleika.

Sumarið var fljótt að líða en haustið er náttúrulega búið að vera dásemd og við fengið góða gesti í helgarheimsóknir.

22. September 2010 - 20:20



Athugasemdir

Amma og afi

Gott hvað gengur. Vigtin hérna megin Víkur er aðeins að mjakast niður á við.Ekki bara sumarið líður allt of fljótt, tíminn rennur hjá og alltaf of mikið að gera hjá sumum svo ritgerð situr á haka. Vel meint.

25. September 2010

Margrét Eiríksdóttir

Gott að heyra að hann er að auka þyngd sína í kroppi og orðum ;) Bestu kveðjur á Húsavíkina ;)

15. October 2010

Nafn


Texti