

Þá er fjölskyldan búin að koma sér fyrir á Húsavík
Síðustu dagar hafa verið góðir og margir góðir gestir runnið hjá. Frúin átti afmæli á fimmtudag og svo einkaprinsinn á föstudag. Afmælisveislan var svo haldin á mánudag sl. Hann tók þessu öllu með stóískri ró og gróf sig nú bara í pabba hálsakot þegar afmælissöngurinn var sunginn. En yndislegur dagur í alla staði og Vigfús William mörgum BÍLUM ríkari og það líkar honum nú vel.
Við höfum verið dugleg að ganga um bæinn og læra á umhverfið hér á Húsavík. Það verður að segjast alveg eins og er að Húsavík er mjög fallegur bær og oft svolítið "útlenskur" einhvern veginn. Í gær borðuðum við t.d. úti við Söllku og drukkum kaffi niður við höfn á Skuld, frábærir staðir báðir tveir. Frúin hugsaði einmitt með sér eftir gönguna í gær að hún yrði að fara að lesa sögu staðarins, því hún hefur á tilfinningunni miðað við byggingar og annað að hér hafi verið svolítið öðruvísi líf til forna en á Dalvík eða Ólafsfirði. Allir sakna þess auðvitað að hafa Andreu ekki hjá okkur í þessu tilstandi öllu en við vitum að hún er í góðu yfirlæti hjá "sys" Lísebetu og co
Arna Dögg hefur hins vegar verið hjá okkur þessa fyrstu daga og það er yndislegt. Andrea kemur til okkar þann 15, vonum við en hún fer til Bandaríkjanna þann 19. ágúst og ætlar að vera fram að jólum
Það verður lengsti aðskilnaður mæðgnanna ! Ekki laust við að frúin kvíði smá fyrir en það verður nóg að gera og vonandi bara agalega gaman og gagnlegt hjá Andreu.
Þeir frændur Vigfús William og Oddur Atli hafa verið óaðskiljanlegir síðan Oddur kom til landsins. Algerlega frábært og yndislegt að horfa á þá mynda vinatengslin og fylgjast með þeim leika sér saman og ganga um hönd í hönd, algjörir gullmolar. Vona að ég geti bráðlega sett inn myndir af þeim félögum í kjólfötunum sínum en Andrea hefur verið að mynda þá fyrir okkur systur. Það er algjörlega óborganlegt að horfa á eftir þeim þar sem þeir leiðast og röfla hvor við annan í göngutúr um túnið hjá ömmu og afa
Ómetanlegir !
:-) ég verð alltaf ánægðari og ánægðari með þennan yndislega titil þar sem ég hef alltaf bara átt tvo bræður sem standa yfirleitt saman á móti mér. Vil koma því að, að ég sé líklega svona frek og sjálfstæð og yndisleg út af þeirra framkomu í gegnum tíðina ;-)
Gaman að lesa þennan pistil og skoða myndirnar, hlakka ennþá meira til að koma til útlanda og sötra með þér kaffi á þessum fornu og flottu stöðum(við getum þó allavega ímyndað okkur að þeir sem fornir ef þeir eru það ekki!!!) og ganga eftir þessum hlaðna göngustíg, mér finnst hann guðdómlegur og brúin og... og ... ;-)
Knús á ykkur sys
sys