Vigfús William Arnarsson
 

4 ára og fl.

Ég veit, ég veit........við höfum verið afar löt viðað uppfæra síðuna,sorry :( það eru bara allir fjölskyldumeðlimir á landinu og þá einhvern veginn dettur þetta niður.

Lífið gengur sinn vanagang, sumarið búið að vera fremur kalt og blautt og fáar útilegur sem Vigfúsi William finnst mjög miður. Við erum hins vegar búin að fá marga góða gesti til lengri og skemmri tíma.  VWA veit held ég fátt sekmmtilegra en að sofa í "tjaldinu". Þó erum við búin að ná því að fara öll saman Laughing eina helgi í skóginn. Dásamlegt að hafa stelpurnar með sér. Vigfus William fagnði 4 ára afmælinu sínu með hita og ælupesti! Til allrar lukku höfðum við haldið upp á daginn helgina áður, Vigfús var nefnilega farinn að bíða eftir þessum merkisdegi þegar hann fengi pakka og það áttu sko að vera bílar í öllum pökkunum og að sjálfsögðu Bósakaka. Hann var alsæll eftir daginn og gat vart út úr húsi farið fyrstu dagana á eftir hann var svo upptekinn af nýja dótinu Laughing 

Nú er leikskólinn að hefjast á ný og Vigfús kemst vonandi sem allra fyrst til talmeinafræðings, það vantar ennþá nokkur hljóð og að kveða fastar að. Við höfum verið dugleg í tunguæfingum í sumar en vantar náttúrulega fagmann til að leiðbeina okkur frekar Wink

Nú svo er örugglega næsta skref að gera ýtarlega skýrslu fyrir Kolumbíu nú þegar líður að tveggja ára afmæli okkar með þennan gullmola! Loksins nýjar myndir.

3. August 2011 - 11:12



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti