Vigfús William Arnarsson
 

Páskarnir að koma :)

Páskafríið að skella á, loksins og þá ætlar stór fjölskyldan að sameinast Laughing Það er, Andrea og Arna koma heim sem gleður okkur hin ákaflega mikið og þó sérstaklega Vigfús William. Annars er hann búinn að vera veikur í viku og voru afi og amma svo góð að sækja hann bara svo hann fékk marga góða daga með þeim. Honum líkar það nú ekki illa!

Hlökkum mikið til að fara í fjörðinn en við ætlum að eyða páskunum á Þverá og hjónakornin fara náttúrulega í gleðigönguna á föstudaginn langa kringum vatnið. Fórum í fyrra 17 km í kafsnjó og minnumst þess enn með bros á vör en nú er allt autt.....jiibbbíí svo þetta verður létt verk Wink Þetta verða sannkallaðir fjölskyldupáskar þar sem bróðir og co eru líka að koma norður og dagskráin orðin full af gleðilegum samverustundum-enda ekkert mikilvægara.

Gleðilega páska

 

18. April 2011 - 11:58



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti