Vigfús William Arnarsson
 

Allt að gerast á aðventunni

Allt að gerast á aðventunni, má með sanni segja. Draumaprinsinn hann Vigfús William hefur eignast sitt alvöru rúm og sefur orðið í sínu herbergi {#emotions_dlg.laughing} Þvílíkur snillingur. Hann er ákaflega montinn með "húmmið" sitt og leggst þar með Elmo og sofnar án nokkurrar fyrirhafnar og sefur til 7.00 sem er ótrúlega frábært, takk fyrir það, elsku Vigfús. Fyrsta pissið kom líka nú á dögunum í klósettið og þvílík kátína. Foreldrarnir ákaflega stoltir, eins og annað eins hafi aldrei gerst fyrr. Annars er gleðin mest yfir því að hann skuli vera farinn að spá eitthvað í þetta allt saman. Síðast þegar hann pissaði ber þá sló á hann á "félagann" og sagði í sífellu; Hættu, hættu!

Fyrsta foreldraviðtalið á leikskólanum var nú á dögunum og eins og við var að búast allt glæsilegt og gengur eins og í sögu. Þarf reyndar að efla Vigfús í að láta vita af sér og sérstaklega ef gert er á hans hlut. Hann nefnilega lætur það yfir sig ganga og snýr sér bara að einhverju öðru. Leikskólakennararnir og starfsfólkið á Grænuvöllum eru líka algjörir snillingar í sínu starfi.

Stekkjastaur kom svo við í fyrsta skipti hjá VWA í nótt og skildi eftir bíl og límmiða. VWA skilur náttúrulega ekki neitt í neinu {#emotions_dlg.smile} en jólasveinarnir koma samt, foreldrunum til mikillar gleði.

Nemó og Leikfangasaga koma sterk inn nú fyrir jólin sem og Jóla Shrek. Og á hverjum degi gleður VWA okkur með miklum söng og einstökum danstilburðum {#emotions_dlg.laughing}

12. December 2010 - 18:23



Athugasemdir

Amma og afi

Ég skil ekki hvernig þessi skrif fóru framhjá mér á aðventunni. Ég hlýt að hafa verið að baka smákökur eða búa til konfekt. Vigfús litli er yndislegur rétt eins og nafni hans og afi. Love (þið líka)

12. January 2011

Nafn


Texti