

Hér er annasamur október að baki og nú styttist verulega til jóla
. Vigfús William er alltaf sama gullið og allt gengur í sóma þar. Orðaforðinn fer hratt stækkandi og hann reynir orðið við öll orð. Hann fékk fyrstu alvöru felnsuna sína og var heima í rúma viku, takk fyrir. Hitinn var mikill og kvefið. Einhverra hluta vegna var amma hans , Svansa viss um að hann væri með höfuðverk líka, snillingur 
Við skruppum í höfuðborgina og fórum í Húsdýragarðinn og verð ég að segja að það er dýrasti göngutúr sem ég farið í ! Einkasyninum fannst nú lítið merkilegt að skoða þar og dýrin eins og hvert annað húsgagn-held að hann hefði skemmt sér mun betur hefði hann fengið að rölta um bílastæðið fyrir utan garðinn og velta fyrir sér bílategundum og litum
. Það kemst fátt annað að þessa dagana. Hann kann Cars utanbókar og er alltaf að opinbera hvað gerist næst í myndinni. Okkur foreldrum til léttis koma þó Dýrin í Hálsaskógi sterk inn núna, hjúkket!
Litla fjölskyldan fór í Ólafsfjörðinn og kíkti í gegnum Héðanfjarðargöng-þetta er náttúrulega snilld fyrir þá sem þar búa. Gistum hjá Þórði og Hófý og áttum góðar fjölskyldustundir með ömmu Freyju.
Nú Andrea er komin frá Ameríkunni og erum við afar glöð að vera búin að hitta hana aðeins. Hún ætlar hins vegar að vera í borginni eitthvað, þar sem hún hefur vinnu með skólanum. Hún er svo skynsöm stúlka. Hún kemur líka reynslunni ríkari eftir tveggja og hálfs mánaðar dvöl í faðmi litlu systur minnar og fjölskyldu. Við nutum þess um helgina síðustu að vera öll heima sama, Andrea og Arna, Vigfús William og foreldrarnir. Það var meira að segja keypt gos :) en það gerum við orðið bara til hátíðarbrigða.
Vigfús William er heilmikið farinn að velta fyrir sér hvar afi sé eiginlega
. Hann spyr á hverjum degi nú orðið ( en afi og amma Svansa eru á Spáni) í gær bætti hann svo við og sagði; Mamma, afi heim! Verður maður eitthvað krúttlegri ?
Skrifa athugasemd