
hæ frændi
takk fyrir samveruna í Botni, voða gaman að koma þangað.
Flottar myndir og sætir hvolparnir.
kveðja,
Herdís
Hæ sæti,
takk fyrir samveruna, hvenær eigum við svo að drífa okkur aftur í útilegu, þetta var svo gaman :)
Flottar myndir hjá þér frændi, hlökkum til að hitta þig í Ásbyrgi víííí
knús og kossar úr Kópavoginum.
Hæ flottastur :o)
Alltaf jafn sætar og fínar myndirnar af þér. Og þú heppinn að geta kíkt í ekta sveit....með hvolpi og alles ;o)
Við verðum svo að fara að kíkja í kaffi...eigum alltaf eftir að skila af okkur einum afmælispakka...suss...ekki hafa hátt um það!
Kv.
Viktor Freyr og Jagga
Hæ félagi :)
Rosa flottar myndir, greinilega þvílíkt stuð í útlandinu. Þú ert ekkert smá duglegur í kringum dýrin í sveitinni.... Axel Ingi er sko ekki svona hugaður í kringum þessi loðnu verur.... þyrftum að eiga svona flotta sveit eins og þið !!!
sjáumst......bráðum vonandi
Axel Ingi og co
Elsku Ísak Árni minn, rosalega skemmtilegar myndir og þú alltaf brosandi. Greinilega mikið um að vera upp í sveit og gaman hjá þér.
Mamma saknar þín alveg ofboðslega mikið en við sjáumst eftir viku.
Þín mamma.
Hmm já enn að leita að nýjum myndum :)
Bara kíkja á þig og leita að einhverju nýju :)
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra, það er örugglega erfitt fyrir ykkur að vera öll erlendis núna.
Kær kveðja
Sibba
Innilega til hamingju með 3 ára afmælið í gær og takk kærlega fyrir okkur.
Hæ hæ
Til hamingju med afmælid Ísak Árni, ef ég tekki módur tína rétt hefurdu fengid svaka afmæliskøku:)
Kærar kvedjur frá Køben, Svandís og strákarnir
Halló elsku 'Isak 'Arni og til hamingju með giftingu mömmu og pabba,þú varst allveg æðislegur og duglegur í kirkjunni að fara með hringana uppá altari.knús og kossar.þín amma.
Hæ hæ sæti strákur,
Rosa flott heimasíða, við svo hallló,, vissum nefnilega ekki af henni fyrir en fyrir nokkrum dögum. EN til lukku með síðuna, betra er seint en aldrei.
Við viljum koma smá kveðju til mömmu og pabba, þökkum kærlega fyrir okkur, takk fyrir boðið í brúðkaupið ykkar, voða gaman að fá að taka þátt í þessu með ykkur. Rosalega flott í alla staði, æði pæði :)
Sjáumst vonandi bráðum,
kveðja
Íris, Árni og Axel Ingi
Elsku Ísak Árni,
Gleðilega páska. Til hamingju með mömmu þína og pabba, stórglæsilegt og skemmtilegt brúðkaup í gær. Þú stóðst þig líka svo vel í kirkjunni :)
kveðja,
Herdís
Ekkert smá flottur sem Bubbi byggir með öll þessi verkfæri og færð greinilega mikla reynslu að hjálpa afa í smíðavinnunni.
PS. matseðillinn lítur einstaklega girnilega út og ég hlakka mikið til dagsins.
Bestu kveðjur
Kristín
Hæ Ísak Árni, þú ert svaka fottur strákur :)
Vertu nú duglegur að hjálpa mömmu og pabba að undirbúa brúðkaupið :)
kær kveðja, Hildur frænka
Halló 'isak 'Arni og til hamingju með nýju síðuna þina hún er mjög flott.og þú flottur á myndunum.kveðja amma.
Elsku Ísak Árni,
takk kærlega fyrir samveruna í sumarbústaðnum, ekkert smá gaman að fara á "sprengjusvæðið" og sjá njósnamyndavélina og bara leika endalaust. Sjáumst vonandi í næstu viku og höldum áfram að leika.
Þínir frændur, Jakob Örn og Rafnar Örn
Ekki vissi ég þú værir kominn með síðu hér en datt í hug að gá, til hamingju með hana.
Hæ hæ elsku Ísak Árni og til hamingju með nýjustu heimasíðuna þína. Pabbi þinn má nú alveg fara að setja eitthvað smá :o)
Þín frænka, Herdís
Til hamingju með síðuna þína kútur ;-)
Pabbi.