
Hér má finna helstu upplýsingar um brúðkaupið okkar:
Myndir úr brúðkaupinu mér sjá með því að smella hér.

Gjafalisti:
Gjafalista er að finna í eftirfarandi búðum:
Epal (http://www.epal.is/), mest að finna þar.
Mirale (http://www.mirale.is/).
Einar Farestveit (http://www.ef.is/).
Artform.
Fyrir utan það sem er á þessum gjafalistum er eftirfarandi ofarlega á lista:
Tjald, í stærra lagi með góðu fortjaldi.
Útivistarvörur (vantar allt þetta klassíska í útileguna).
Ferðataska, Samsonite Midori II (S123(1)09 180), sem fæst í Odda Borgartúni.
Mínútu-/samlokugrill.
Stafræna vigt í eldhúsið.
Góðan örbylgjuofn.
Weber gasgrill.
Kjöthitamælir úr Kokku á Laugavegi.
Staðsetning:
Til glöggvunar fyrir áttavillta veislugesti, þá er veislusalurinn í litla hverfinu beint fyrir ofan Smáralind. Nákvæm staðsetning er Holtasmári 1, 8. hæð, en húsið má þekkja úr órafjarlægð á Hjartaverndar skiltinu sem trónir efst á því. Staðsetninguna má greinilega sjá á meðfylgjandi mynd, sem tekin er af vefnum http://www.ja.is/, fylgið rauðu örinni vinstra megin á myndinni 

Veislustjórar:
Brynleifur Birgir Björnsson, s. 893-9336.
Helga Margrét Skúladóttir, s. 862-8001.
Matseðill:
Forréttur:
Parmaskinka með ristuðum furuhnetum, melónum, ferskum parmesan, balsamikgljáa og klettasalati.
Aðalréttur:
Hunangsgljáðar kalkúnabringur
Glóðarsteikt lambainnralæri með hvítlauk og ferskum kryddjurtum.
Meðlæti:
Ofnsteiktar kartöflur, pönnusteikt ferskt grænmeti, eplasalat með pecanhnetum og döðlum, ferskt grænt salat, grískt tómatsalat með feta osti, skógarsveppasósa.
Eftirréttur:
Gómsætur 
Hljómsveit:
Stórsveitin SLUR sem saman stendur af Begga, Frissa, Inga og Sigga.
Hlökkum mikið til að sjá ykkur þann 7. apríl,
Jói & Margrét.