Ísak Árni og Brynjar Páll
 

Vefdagbók

 

Sverige

Hej.
Smá fréttir af okkur í Svíþjóð.  Erum komin með bílinn og búslóðina og búin að koma okkur þokkalega fyrir. 
 
Hér er allt á kafi í snjó og var alveg upp í 17 - 18 stiga frost fyrstu dagana.  Hitastigið þessa dagana er svona 1 - 3 stiga frost og spáð er snjókomu, svo veturinn verður víst hér eitthvað lengur.  Einn nágranninn, eldri en tvævetur, segir okkur að það séu 6 vikur í vorið.. svo það fer nú að hlýna hjá okkur.
 
Strákarnir taka þessu bara nokkuð vel, með smá undantekningum :) .. enda búið að vera ansi mikið ys og þys fyrstu vikuna.  Ísak Árni er eins og prentsmiðja, teiknar og litar Disney fígúrur út í eitt og hengir upp um allt hús.  Brynjar Páll lætur kassana soldið fara í skapið á sér, gengur á þá og rífst við þá :)  Sérstaklega þegar eitthvað nýtt kemur á stað sem hann var kannski vanur að hafa ekkert á.  Sérstaklega var hann fúll þegar búslóðin kom, við settum hann út að sofa rétt áður en gámurinn kom og þegar hann vaknaði var allt á rúfi og stúfi.. hann var ekki mjög ánægður með það.
 
Hverfið virkar mjög skemmtilegt.  Fullt af krökkum hér í nágrenninu, nágrannarnir mjög vingjarnlegir og MOLLIN eru æðisleg :)  Verðlagið er líka nokkuð hagstætt, þrátt fyrir gengið og verður enn betra þegar sænsk laun fara að tikka inn.
 
Húsið stóðst alveg okkar væntingar og þegar við verðum búin að koma okkur alveg fyrir, þá verður þetta bara ansi fínt allt saman.
 
Okkur líst því bara vel á þetta allt saman.  Helga og Sturla, sem eru búin að hjálpa okkur rosalega fyrstu vikuna, fara heim á morgun og þá er einnig mesti asinn búinn.  Við setjum svo inn myndir á heimasíður strákanna og jafnvel á facebook við tækifæri.
 
Svo erum við komin með sænsk gsm númer, en heimasíminn bíður.  Númerin eru 0046765673402 hjá mér og 0046720477946 hjá Margréti.
 
Knús á línuna.
 
Jói, Margrét og strákarnir.

6. February 2010 - 15:09

 
 

Jólin nálgast

Hæ hæ.

Þá eru jólin farin að nálgast og það fyrstu jólin sem maður er almennilega farinn að spá í þessu stússi öllu.  Ég er búinn að hitta þó nokkra jólasveina og hef mjög gaman að þeim, þó ég vilji nú helst halda í mömmu og pabba ef ég fer of nálægt þeim.  En ég veit að þeir eru góðir og ég ætla að passa mig að vera stilltur strákur svo ég fái örugglega einhverja skemmtilega "pakka" í skóinn :)

Af mér er annars bara allt fínt að frétta.  Ég uni mér vel ég leikskólanum, þó mér finnist nú alltaf best að vera eitthvað að dúlla mér með mömmu og pabba.  Ég er ennþá Bubba byggir óður og hugsa varla um annað en hann og gröfur.  Ég er þó aðeins farinn að víkka sjóndeildarhringinn, en þetta ætlar að eldast hægt af mér.. sem er bara allt í lagi :o)

Læt þetta nægja í bili og bið að heilsa öllum.

Ykkar Ísak Árni :)

10. December 2007 - 21:47

 
 

Dagar nætur vikur mánuðir ár!

Jæja gott fólk.  Tíminn flýgur eins og venjulega og maður verður bara byrjaður í skóla áður en maður veit af!

Af mér er annars allt gott að frétta.  Ég er búinn að eiga dásamlegt sumar og sumarfrí með mömmu og pabba og hefur ýmislegt verið brallað.

Eins og flestir vita var mamma úti í Bandaríkjunum í tæpa tvo mánuði í vor og var ég einn í kotinu með pabba á meðan.  Það gekk rosa vel enda eigum við góða að og tæknin skemmir ekki fyrir.  Við pabbi töluðum við mömmu næstum því daglega á Skype og með vefmyndavél, þ.a. við sáumst nú bara ansi oft á meðan hún var í burtu.  Svo tókum við líka smá forskot á sumarfríið og fórum út til hennar og þvældumst um Minnesota í 8 daga, ásamt því að gista hjá öðlingunum Haraldi og Katrínu.  Það var alveg ótrúlega gaman í Bandaríkjunum og andrúmsloftið rosa fínt í Rochester.. hver veit nema við komum þangað aftur :)

Mamma kom svo heim um miðjan júní og svo vorum við öll saman í fríi í júlí.  Það var alveg rosa fínt frí, þar sem við dvöldum uppi í sumarbústað, þvældumst hringinn í kringum landið, dvöldum með fjölskyldunni hans pabba í Ásbyrgi, á Akureyri og fleiri stöðum í nokkra, fórum meira í sumarbústað og svo mætti lengi telja.  Það er nú ekki hægt að sleppa því að minnast á veðrið heldur, sem hefur verið hreint ótrúlegt í sumar.  Loksins loksins, kom almennilegt sumar hérna og höfum við notið góða veðursins út í ystu æsar, maður er eiginlega alltaf jafn hissa, viku eftir viku, á veðrinu!

Í ágúst tók alvaran svo aftur við.  Mamma og pabbi fóru að vinna og ég fór í leikskólann.  Ég og Hlynur vinur minn erum elstir núna á deildinni minni og því er ég ansi hagvanur þar og ekkert mál að vera á leikskólanum.  Ég mun þó eflaust vera fluttur á eldri deild fljótlega, en þar eru allir vinir mínir síðan í fyrra, svo þetta á eflaust bara allt eftir að ganga vel, enda fyrirmyndar leikskóli :)

Annars fór ég á tónleikana á laugardalsvelli í gær og skemmti mér bara ágætlega framan, eða þangað til ég sofnaði :)  Nú á eftir er ég svo að fara í Latabæjarhlaupið og svo verður eitthvað dúllað sér fram eftir kvöldi á Menningarnótt.

Takk í bili og takk fyrir að fylgjast með mér :)

Ísak Árni.

18. August 2007 - 11:06

 
 

15.03.2007 - Ný heimasíða

Hæ öll.
Þá er ég kominn með nýja heimasíðu sem ætti að vera opin allan sólarhringinn :) 

Af mér er bara allt fínt að frétta.  Síðan síðast hefur náttúrulega heilmikið gerst, enda langt síðan hefur verið skrifað :l  Ég fór til Spánar síðasta sumar með mömmu og pabba og mömmu fjölskyldu og skemmti mér alveg rosalega vel.  Síðan byrjaði ég í leikskóla í ágúst og finnst alveg rosalega gaman þar, enda skemmtilegir krakkar og kennarar :)  Ég er hef náttúrulega stækkað heilmikið og hætti að nota bleyju á daginn um miðjan desember 2006, en sef þó alltaf ennþá með hana á nóttinni.  Ég er náttúrulega farinn að tala heilmikið líka, en þó skilja mig nú ekki alltaf allir :)

 Svo er ýmislegt framundan hjá okkur í fjölskyldunni.  Mamma og pabbi ætla að gifta sig í apríl og hafa síðustu vikur og mánuðir soldið helgast af undirbúningi fyrir það.  Síðan fer mamma til Bandaríkjanna rétt eftir að ég verð þriggja ára og verður þar í næstum tvo mánuði að gera rannsóknir.  Það verður örugglega soldið skrýtið fyrir okkur feðgana, en við ætlum þó að heimsækja hana í viku og hafa það gott með henni :)

 Jæja, hef þetta ekki lengra í bili, læt heyra í mér von bráðar :)

 Ykkar Ísak Árni :)

15. March 2007 - 13:08

 
 

06.05.2006 - 2ja ára

Hæ hæ. Það er aldeilis að tíminn líður hratt, maður er bara orðinn 2ja ára, sjálfstæður og getur allt :-) Frá því að síðast var skrifað hefur mikið gerst. Ég er kominn í sér herbergi og gengur bara rosa vel, bæði er ég farinn að sofa betur og mamma og pabbi líka. Mömmu og pabba fannst nú svolítið einmanalegt að hafa mig ekki hjá sér en við erum öll búin að venjast þessu. Mamma útskrifaðist úr skólanum í febrúar og nú erum við fjölskyldan farin að geta átt meiri tíma saman, sem mér finnst alveg ofboðslega gaman :o) Í sumar fáum við svo loksins frí saman og ætlum að skella okkur til útlanda. Við erum búin að panta okkur ferð til Spánar, þar sem við ætlum að njóta lífsins með Helgu ömmu, Sturlu afa, Hildi og Hödda í tvær vikur.

Ég er svo búinn að fá leikskólapláss í sumar á leikskólanum Jörfa, en við förum stundum þangað um helgar og leikum okkur þar. Það verður örugglega rosalega gaman á leikskólanum þó ég eigi eftir að sakna Döbbu dagmömmu og krakkanna þar. Það er þó huggun að þeir krakkar sem ég mest með hjá Döbbu eru líka að hætta í sumar.

Mamma og pabbi eru að reyna að venja mig á koppinn en það gengur ekki allt of vel. Ég er svosem duglegur að sitja á koppnum en yfirleitt endar pissið nú á gólfinu :-p Mér finnst það samt frekar ógeðslegt og þar sem ég er nú farinn að tala soldið, þá er ég fljótur að tilkynna mömmu og pabba það :-)

Ég er gjörsamlega gröfuóður og get leikið mér endalaust með gröfurnar mínar. Ég leita líka uppi allar gröfur í bænum þegar ég er úti að keyra með mömmu og pabba og tilkynni öllum hátt og snjallt um þær, svo enginn missi nú af :0) Við vorum um daginn í heimsókn hjá Helenu Sirrý, 9 mánaða vinkonu minni, sem var að flytja í nýja íbúð. Þar var grafa að moka úti og ég vildi helst vera úti á svölum allan tímann að horfa á hana. Helst vil ég vera með gröfu í hendinni allan daginn og þegar við pabbi förum út á morgnanna þá tek ég gröfuna með í bílinn en geymi hana þar á meðan ég er hjá Döbbu. Síðan þegar pabbi kemur heim eftir vinnu þá hleyp ég til hans og kalla pabbi grafa! Veit ekki hvort er betra að fá pabba eða gröfuna heim :-)

2ja ára afmælisveislan mín var síðastliðinn laugardag. Þetta var heljarinnar veisla, pylsur, kökur og grænmeti til vega upp á móti óhollustunni. Húsið var fullt af ættingjum og vinum og mikið stuð en helíum blöðrurnar sem pabbi keypti vöktu samt mesta lukku. Ég fékk að sjálfsögðu fullt af gjöfum en hafði ekki tíma til að opna þær fyrr en um kvöldið og daginn eftir. Takk fyrir mig.
Jæja, ég hef þetta ekki lengra í bili, hafið það gott,
Ísak Árni gröfukarl.

7. March 2007 - 16:18

 
 

01.08.2005 - Labba

Halló allir saman :-)
Loksins gefa mamma og pabbi sér tíma til að skrifa fyrir mig, þetta er nú algjör skandall!!! Á síðastliðnu hálfu ári hefur svo margt gerst, ég stækkað og þroskast svo ótrúlega mikið svo að mamma getur bara stiklað á stóru.
Í lok febrúar byrjaði ég á framhaldsnámskeiði í sundi. Mamma og pabbi voru hrædd um að ég hefði gleymt miklu því að þau hafa ekki verið dugleg að fara með mig í sund, en ég hafði engu gleymt og fór í kaf eins og ekkert væri. Núna er ég mikill sundgarpur og finnst æðislega gaman að fara í rennibrautir. Í síðasta tímanum var ég svo veikur, týpískt því ég hafði ekki misst af neinum tíma, en þá voru teknar myndir í kafi. Ágústa sundkennari sagði okkur bara að koma í lok næsta námskeiðs og fá myndatöku þá.
Í byrjun mars fór ég svo í myndatöku hjá brosbörnum og stóð mig eins og hetja. Brosti hringinn allan tímann og sýndi alls kyns kúnstir, myndirnar eru líka alveg frábærar. Myndatakan gat nú ekki klikkað með svona góða fyrirsætu :-).
Ég byrjaði hjá Döbbu dagmömmu í byrjun apríl, var þá til tvö á daginn og ömmurnar voru svo frábærar að þær skiptust á að sækja mig út apríl. Ég var nú ekkert alltof hrifinn af því að vera skilinn svona eftir og það tók tíma fyrir mig að venjast þessu en fannst samt spennandi að leika við krakkana. Reyndar var mamma með mig heima í maí og svo byrjaði ég aftur hjá Döbbu í júní, pínulítið vesen og erfitt að þurfa að fara tvisvar í aðlögun en ég var mun jákvæðari í seinna skiptið. Núna finnst mér frábært að vera úti að leika og vil helst vera úti á róló hjá Döbbu allan daginn.
Þann 15. apríl varð ég eins árs en þar sem mamma var í próflestri var ekki hægt að hafa almennilegt afmæli fyrir mig þá. Hildi frænku fannst samt ómögulegt að ég myndi ekki fá afmælistertu á afmælisdaginn sjálfan svo að hún bakaði svakalega flotta köku fyrir mig. Ömmurnar, afarnir, Hildur og Hörður komu í mini afmæli og gæddu sér á afmæliskökunni. Þetta var bara stutt boð því að mamma þurfti að halda áfram að læra. Þegar mamma var búin í prófunum var svo haldin almennileg afmælisveisla með fullt af gestum, kökum og blöðrum. Svakalegt stuð :-)
Mamma og pabbi skelltu sér til New York seinni partinn í maí og þá gisti ég hjá ömmu og afa í Sigluvoginum. Það gekk mjög vel en ég held samt að amma og afi hafi verið ansi þreytt eftir pössunina!!!! Mamma og pabbi voru úti í rúma 4 daga og skemmtu sér vel en söknuðu mín samt ofsalega mikið (enda fékk ég mikið dót þegar þau komu heim, alltaf að hugsa um mig). Þau voru mikið búin að spá í því hvernig ég myndi bregðast við að sjá þau. Fyrst þá var ég svo hissa og horfði bara á þau til skiptist en síðan vildi ég komast til þeirra og passaði þau vel eftir þetta ;-). Pabbi náði þessu öllu saman upp á video og það er ótrúlegt að sjá svipinn á mér :-)
Þegar ég var 14 mánaða byrjaði ég að labba um allt, var reyndar farinn að taka nokkur skref um 12 mánaða en fór svo alltaf niður á hnén og skreið :-( Þetta kom allt í rólegheitunum en mömmu og pabba finnst þetta vera algjör lúxus núna þegar ég labba um allt, miklu auðveldara að fara með mig. Svo er ég líka með æðislega krúttlegt göngulag :-).
Í sumar höfum við verið á faraldsfæti, búin að fara á ættarmót, 2 upp í sumarbústaðinn í Botni og oft upp í Kjós. Mér finnst rosalega gaman að vera í sveitinni og mikið stuð að fá að henda steinum í ána. Í síðustu viku fórum við upp í bústað með Herdísi, systur hans pabba, og hennar fjölskyldu. Veðrið var ótrúlegt og ég var bara á stuttbuxum allan tímann! Jakob og Rafnar eru SVO skemmtilegir og duglegir að leika við mig, ég hermdi náttúrulega eftir öllu sem þeir gerðu og var gjörsamlega úrvinda á kvöldin eftir allt stuðið. Það var ýmislegt brallað, m.a. farið í gilið, golf, sund, farið í pottinn, róla, moka.........algjör sæla :-).
Ég er alltaf svo yndislegur og geri ýmsa krúttlega hluti eins og að þefa af öllum blómum sem ég sé! Síðan er ég ennþá mikill knúsukarl og knúsa alla við mismikinn fögnuð, mömmu og pabba finnst það æðislegt en litlir krakkar og dýr eru ekki alveg á sama máli! Núna er ég að byrja að tala aðeins, segi t.d. takk í tíma og ótíma og reyni að herma eftir öllu sem mamma og pabbi segja þó yfirleitt geti ég bara bablað. Flugvélar eru nýjasta æðið og ég hleyp út í glugga ef ég heyri í þeim og vinka á fullu. Ég er líka mikill boltastrákur og finnst æðislegt að sparka í bolta, pabba líka!!!
Svona í lokin fréttir af öðrum en mér, Fríða vinkona hennar mömmu eignaðist litla prinsessu á laugardagskvöldið með látum! Sú litla kom 6 vikum fyrir tímann í heiminn og var um 8 merkur, pínulítið krútt :-).
Bið að heilsa öllum og lofa að láta mömmu og pabba skrifta oftar.
Sumarkveðjur, Ísak Árni orkubolti.

7. March 2007 - 16:17

 
 

06.11.2005 - Stuð

Halló öll :-)
Eftir smá rit- og uppfærslustíflu, kom pabbi sér loksins í að uppfæra heimasíðuna mína :-)
Af mér er allt gott að frétta og það er allt í ljómanum hjá okkur í fjölskyldunni. Ég átti mjög gott sumar með mömmu og pabba en við vorum mjög dugleg að gera eitthvað skemmtilegt. Við fórum t.d. oft upp í sumarbústað og ferðuðumst einnig svolítið um landið. Þegar við skelltum okkur til Egilsstaða þá fór ég í fyrsta skipti í flugvél og sú ferð gekk vonum framar þrátt fyrir áhyggjur foreldranna. Þaðan skelltum við okkur á Seyðisfjörð og í Borgarfjörð eystri en það var ótrúlega gaman að koma á alla þessa staði.
Annars er ég bara ennþá hjá dagmömmunni og verð þar örugglega fram á næsta sumar. Dabba er svo skemmtileg og uni ég mér rosa vel hjá henni við að lita, mála og leika mér, svo nenna mamma og pabbi heldur ekki að taka þátt í þessu leikskólarugli sem er hérna í bænum núna. Ég er líka alltaf svo hress og kátur, þ.a. það er engin ástæða til að vera eitthvað að breyta til.
Jæja, við höfum þetta ekki lengra í bili. Skoðið bara myndirnar því ein mynd segir jú meira en þúsund orð :o)
Bið að heilsa ykkur öllum og hafið það gott,
Ísak Árni töffari.

7. March 2007 - 16:17

 
 

14.02.2005 - Stend upp

Halló öll. Það er mikið að einhver gefur sér tíma til að skrifa fyrir mann, en síðan síðast hefur nú ýmislegt gerst hjá mér. Milli jóla og nýárs fór ég að skoða dýrin í sveitinni sem pabbi var í þegar hann var unglingur. Mér fannst rosa gaman og var alveg til í að klípa soldið í dýrin og sagði Einar bóndi að pabbi hefði frekar átt að halda á mömmu heldur en mér :o) Ég var alveg óður í hundana og fannst þeir frábærir og svo fékk ég meira að segja að fara smá á hestbak.. svona fyrir utan öll hin dýrin sem ég skoðaði. Ég upplifði svo mín fyrstu áramót og varð ég nú svosem ekki mikið var við þau. Ég var rosa spenntur fyrir flugeldunum fyrst en kippti mér annars lítið upp við þá. Á nýársnótt fékk ég svo að sofa hjá ömmu og afa í Sigluvoginum í fyrsta skipti og gekk það rosa vel. Það var varla hægt að sjá að ég saknaði mömmu og pabba mikið þegar þau komu að ná í mig daginn eftir.. en þau söknuðu mín greinilega mikið.. eins og þau geti ekki verið án manns einn dag ;-) Í byrjun janúar byrjaði ég svo að standa upp í rúminu mínu og þegar leið á mánuðinn var ég farinn að standa upp við hvert tækifæri sem gafst og vissi svo ekkert hvað ég átti að gera síðan :-) Um 20. janúar byrjaði ég meira að segja að fikra mig aðeins meðfram því sem ég stend við en ég hef ekkert mikið bætt við mig síðan þá göngulega séð, tek bara 2-3 skref þegar ég þarf að ná í eitthvað en virðist ekki fatta alveg að ég geti ferðast svona. Af tanntöku minni er það að frétta að ég er kominn með tvær tennur og er nú 1 1/2 mánuður síðan seinni tönnin kom. Það er nú samt farið að glitta í þriðju tönnina og orðið vel bólgið í kringum hana, þ.a. við eigum von á henni á næstu dögum. Eins og ég sagði síðast frá, þá var ég farinn að skríða um allt með því að draga mig áfram á höndunum, þ.e. lá á maganum og togaði mig útum allt. Í byrjun janúar hætti ég þessu og byrjaði að skríða "venjulega". Þá fyrst byrjaði líka fjörið því ég ferðast alveg ótrúlega hratt og er snöggur að tæta það sem ég má ekki skoða. Ég er líka algjör boltakall og virðist óþreytandi þegar ég þeytist útum alla íbúð á eftir boltunum mínum.. rosa gaman :-) Skapið mitt þessa dagana er bara eins og venjulega, en ég er alveg rosalega skemmtilegur og alltaf í góðu skapi. Ég er nú samt soldið skeptískur á fólk fyrst þegar ég sé það, en er nú yfirleitt fljótur að taka það í sátt :-) Ég nenni nú samt yfirleitt ekkert mikið að hanga utan á fólki, vil bara vera á gólfinu og leika mér sjálfur.. sem mömmu og pabba finnst rosa stór kostur. Það er semsagt ýmislegt að gerast og fyrir nokkrum dögum gerðist sá merkilegi hlutur að ég byrjaði að tala orð :-) Ég er voða duglegur að henda dótinu mínu í gólfið þegar ég er að borða (fæ þá að leika með dót í leiðinni) og mamma og pabbi segja alltaf datt þegar ég geri það. Svo núna er ég byrjaður að herma og segi oftast dahh en stundum þó voða skýrt datt. Að lokum langar mig að segja frá því að ég er búinn að fá pláss hjá dagmömmu :-) Hún heitir Dabba og er alveg frábær. Hún er búin að passa fullt af börnum í fjölskyldunni hennar mömmu í fleiri fleiri ár, þ.a. mamma og pabbi eru örugg með að ég verð í góðum höndum þar. Ég byrja á fullu hjá henni þann 1. apríl, en þó hefði verið betra ef ég hefði komist að aðeins fyrr, því pabbi á bara frí fram í miðjan mars og verður þá búinn að vera heima með mér í tvo mánuði frá því mamma byrjaði aftur í skólanum (algjör lúxus ;-)). Ömmur mínar eru því búnar að bjóðast til að vera eitthvað með mig svo þetta gangi allt upp og efumst við ekki um að það geri það. Bless bless í bili og hafið það rosa gott þangað til næst. Ísak Árni.

7. March 2007 - 16:16

 
 

26.12.2004 - Á fleygiferð

Það er svo sannarlega búið að vera mikið að gerast hjá mér á undanförnu þannig að mamma getur bara stiklað á stóru.
Amma og afi í Sigluvoginum pössuðu mig á meðan mamma var í skólanum og pabbi í vinnunni. Afi var með mig í heila viku en amma bara tvo daga því svo fékk hún lungnabólgu (ég varð sem betur fer ekkert veikur). Pössunin gekk vel og við skemmtum okkur vel saman enda ágætt að leika við einhvern annan en mömmu og pabba :-).
Í byrjun mánaðarins fór ég að byrja að draga mig áfram á höndunum og núna fer ég út um alla íbúð en blómapottar og jólatréð eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég fer líka uppá hnén en gólfið hjá okkur er svo sleipt að það er betra að draga sig bara áfram :-). Síðan er ég að prófa mig áfram með hvað ég get híft mig mikið upp, núna kemst ég alla leið upp á hnén en rassinn á mér er bara svo þungur að ég kemst ekki lengra ;-)
Mömmu og pabba til mikillar ánægju er ég farinn að sofa mun betur og hef ég sofið sérstaklega vel um jólin enda er alltaf svo gott að sofa þá.
Loksins er ég kominn með tönn en eftir prófið hennar mömmu þá var hún að gefa mér að borða og fann þá fínu tönnina mína. Hún var svo glöð að hún stökk upp úr stólnum og pabbi og Hildur frænka vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið, héldu bara að mamma væri orðinn eitthvað verri. Tönninn er í neðri gómnum hægri megin og við hliðina á henni sést í næstu tönn, bara spurning hvenær hún brýst í gegn.
Það er búið að vera mikið flakk á okkur fyrir jólin og ég búinn að fara í Smáralindina og Kringluna hvað eftir annað í jólagjafaleiðangur. Ég er svo mikið yndi og er búinn að vera svo góður og duglegur, fór meira að segja að klappa í Debenhams í fyrsta skipti og mamma og pabbi voru að sjálfsögðu stolt af mér.
Á aðfangadag var ég svo hjá ömmu og afa á Kleppsvegi og mér fannst það vera rosalega gaman. Þegar fullorðna fólkið var búið að úða í sig mat í einn og hálfan tíma var ég orðinn óþreyjufullur að fá líka að borða :-). Ég var nú ekkert æstur í pakkana þessi jólin en fannst fínt að leika með pappírinn og skrautið. Ég verð samt örugglega skæður næstu jól. Síðan hafa verið endalaus jólaboð og mér líst ekkert á allt þetta ókunnuga fólk í þessum boðum, vil bara vera hjá mömmu og pabba (og þeim sem ég þekki vel).
Á morgun ætlum við litla fjölskyldan og Hildur frænka að kíkja í sveitina sem pabbi var í þegar hann var lítill. Það verður gaman að kíkja á dýrin og sjá þau "live" en mamma og pabbi eru alltaf að kenna mér hvað þau segja.
Hef þetta ekki lengra í bili en ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, takk fyrir síðustu rúma 8 mánuði og takk fyrir allar fínu gjafirnar sem ég fékk um jólin :-).
Kveðja, Ísak Árni jólasveinn.

7. March 2007 - 16:16

 
 

18.09.2004 - Busl busl

Þá er maður orðinn 5 mánaða gamall og ýmislegt hefur gerst síðan síðast. Hárið var farið að pirra mig soldið, því það fór alltaf í augun á mér. Svo var ég alltaf að reyna að klóra mér í kringum augun, en klóraði bara sjálfan mig, þ.a. mamma og pabbi ákváðu að klippa bara toppinn.. þó þau tímdu því varla :-)
Ég er líka byrjaður að velta mér yfir á bakið og rúlla mér stundum í hringi, þó ég nenni nú ekki að eins mikið að velta mér af maganum yfir á bakið og af bakinu yfir á magann(það má varla leggja mig niður, þá er ég kominn á magann).
Ég er líka byrjaður að færa dót viljandi milli handa, þó ég hafi verið löngu byrjaður á því óviljandi.. svo það er bara allt að gerast hjá mér og mamma og pabbi eru ofboðslega ánægð með mig.
Mömmu og pabba finnst ég líka vera að myndast við að taka tennur, því mig klæjar alveg hrikalega í góminn stundum og djöflast á öllu sem hægt er að naga, svo það kæmi nú ekkert rosalega á óvart ef tönn færi að skjóta upp kollinum.
Fyrir svona hálfum mánuði, byrjaði ég svo í sundi. Mér fannst alveg rosalega gaman í fyrsta tímanum og buslaði og barði höndunum í vatnið hvað eftir annað. Ég skvetti því fullt af vatni framan í sjálfan mig og svelgdist bara á á köflum.
Annars er nú bara allt ljómandi gott af mér að frétta, ég stækka bara og stækka og verð meiri og meiri gaur. Ég er nú samt farinn að taka upp á því að vakna soldið oft á næturnar til að drekka, mömmu og pabba til lítillar gleði, því ég var farinn að sofa svo vel á nóttunni. Mamma og pabbi ætla því bráðum að fara að prófa að gefa mér graut, til að athuga hvort það minnki ekki aðeins svengdina á nóttunni. Svo er ég líka farinn að leika mér soldið að mömmu og pabba þegar ég á að fara að sofa á kvöldinn, stundum sýni ég bara engin merki um að fara að sofa og þegar mamma og pabbi taka mig fram, þá alveg hlakkar í mér og ég hlæ bara að þeim :-) Þ.a. nú ætla mamma og pabbi að fara að athuga með að setja mig á eitthvað svefnprógram svo ég fari nú að sofa á skikkanlegum tíma.
Svo er ég líka farinn að taka uppá því að vera soldið mannafæla, svona þegar mamma og pabbi eru ekki í augsýn.. en það eldist nú væntanlega af manni ;-)
Bið að heilsa öllum þangað til næst, Ísak Árni prakkari.

7. March 2007 - 16:15