Lilja Sól, Birta Karen og Freyja Nótt
 

Góð ráð fyrir nýbakaða feður

Margir feður upplifa óöryggi eftir að nýfædda barnið er komið heim. Þeim finnst oft að þeir séu ekki í stakk búnir til að ala upp barn. Þetta er yfirleitt óraunhæfur ótti meðal feðra. Hér koma nokkrar ábendingar um hvernig þú getur öðlast sterkara samband við barnið þitt.

Æfingin skapar meistarann

Fyrst og fremst skal nefna nokkur atriði sem þú mátt EKKi gera: Þegar barnið verður órólegt og byrjar að gráta skaltu ekki láta móðurina fá það. Hún getur sennilega huggað barnið á aðeins styttri tíma en þú en í rauninni hefur móðirin sjálf þurft að prófa sig áfram með það. Besta leiðin fyrir þig til að læra að hugga barnið er með því að æfa þig. Rannsóknir sýna að ein helsta ástæða þess að sumir feður telja sig ekki mjög nána barninu sínu er að þeir fá ekki tækifæri til að sýna að þeir ráði ekki við aðstæðurnar. Annað hvort gefast feðurnir of fljótt upp og láta móðurina fá barnið um leið og eitthvað bregður út af eða við mæðurnar erum of fljótar að grípa inn í í stað þess að leyfa ykkur feðrunum að spreyta ykkur! Því meiri tíma sem þú eyðir með barninu þínu, þeim mun öruggari finnst þér þú vera. Þú skalt heldur ekki láta konuna þína taka við þótt eitthvað óvænt komi upp á. Reyndu frekar að bjarga málunum sjálfur. Það er ekkert sem mælir gegn því að leita ráða hjá konunni því auðvitað veit hún margt sem þú veist ekki og öfugt. Það er um að gera að foreldrar deili sem mestu og læri hvort af öðru. Reyndu að fá konuna þína til að segja þér hvernig þú átt að gera en láttu hana ekki gera það fyrir þig! Vertu óhræddur við að taka ákvarðanir sjálfur, jafnvel þótt það kosti einhver mistök? aðeins þannig lærum við að breyta rétt.

Lærðu "tungumál" barnsins þíns

Önnur góð leið til að byggja upp náin tengsl milli þín og barnsins þíns er að kynnast barninu vel. Gott er að byrja á að læra ?tungumál? barnsins. Þó svo að barnið hafi takmarkaðan orðaforða á þessum tímapunkti (geti reyndar ekki sagt eitt einasta orð) lærir þú fljótt að þekkja muninn á því hvernig barnið grætur. Gráturinn er eina tjáningarformið sem barnið býr yfir á fyrstu mánuðum ævinnar. Þú munt komast að því að barnið grætur á sérstakan hátt þegar það segir: ?ég er þreytt(ur), ég er svöng/svangur, ég þarf hreina bleiu, mig langar að leika?. Þegar þú hefur lært að þekkja mismunandi tegundir gráts hjá barninu þínu verður mun auðveldara að uppfylla þarfir þess og mun skemmtilegra að vera faðir.

Gerðu eitthvað með barninu þínu

Nýbakaðir feður velta því oft fyrir sér hvað þeir geti gert með litla barninu sínu. Þeir geta jú ekki spjallað um daginn og veginn og ekki heldur spilað fótbolta. Barnið gerir ekki mikið annað en að liggja og hjala. Strax frá fyrsta degi getur þú gert heilmikið með barninu þínu. Þú getur til dæmis farið með barnið í göngutúr eða hlustað á tónlist. Annað gott ráð er að lesa upphátt fyrir barnið. Það er aukaatriði hvað þú lest (hvort sem það er eitthvað eftir Halldór Laxness eða klausur úr Séð & heyrt). Aðalatriðið er að barnið venst röddinni þinni sem róar það og fær það til að treysta þér. Og það er einmitt það sem náið samband byggist á.